Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Heilsukoddar Heilsunnar vegna ÞÖRF er á mjög alvarlegri umræðu um hvernig vinna má að auknum hlut kvenna við stjórnun fyrirtækja á Íslandi, að sögn Marit Hoel, fram- kvæmdastjóra Miðstöðvar margbreytileika í at- vinnulífinu (CCP). Hún hafði umsjón með úttekt á stjórnum og stjórnendum 500 stærstu fyr- irtækjanna á Norðurlöndum, Nordic 500, sem kynnt var í Ósló í gær. Samkvæmt úttektinni stendur Noregur fremst hvað varðar fjölda kvenna í stjórnum fyrirtækja á Norðurlöndunum. Þar stendur Ís- land aftast en fremst hvað varðar fjölda kvenna í æðstu stjórnunarstöðum í fyrirtækjunum. Sví- þjóð stendur sig best á heildina litið. Rannveig Rist, forstjóri Alcan og stjórnarformaður Sím- ans, og Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmda- stjóri fjárfestingarfélagsins Gaums og stjórn- armaður í Baugi, voru í hópi 10 kvenna sem valdar voru af Nordic 500 sem áhrifamestu kon- ur í stjórnum fyrirtækja á Norðurlöndum. Karlar þröngsýnni „Það sem við vonumst eftir að fá út úr Nord- ic 500-verkefninu er umræða um hvernig auka megi hlut kvenna við stjórnun fyrirtækja. Fram til þessa hefur þessi umræða verið á alltof einföldum nótum,“ segir Marit Hoel, í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins. „Það er mjög breitt bil á milli kvenna og karla hvað varðar sýn á þetta málefni. Konur vilja gjarnan að fleiri konur sitji við stjórnvöl- inn en karlar eru þröngsýnni hvað þetta varð- ar. Þetta bil er einnig að finna hjá stjórn- endum stórfyrirtækja. Þess vegna viljum við koma af stað mjög alvarlegri umræðu um hvernig megi vinna að auknum hlut kvenna og hvort fyrirtækin þurfi að setja sér markmið. Niðurstöðurnar fyrir Ísland sýna að þessi um- ræða þarf einnig að fara fram á Íslandi,“ sagði Hoel. Ný úttekt á hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja á Norðurlöndum kynnt í gær Íslendingar reka lestina  Þörf á umræðu/1C ROBERTINO rifjaði upp gamla takta fyrir fjölda aðdáenda í Austurbæ í gærkvöldi. Ítalski drengurinn með gullröddina kom hingað til lands 1961 og söng þá á nokkrum tónleikum í Austurbæjarbíói. Áheyrendur í gær- kvöldi voru eflaust sumir að rifja upp gömul og góð kynni frá þeirri heim- sókn. Robertino var innilega fagnað og létu áheyrendur vel af söng hans. Morgunblaðið/Kristinn Robertino syngur á ný KRAKKARNIR á leikskólanum Jörfa við Hæð- argarð í Reykjavík höfðu það huggulegt á aðvent- unni á leikskólanum í gær, drukku kakó og borðuðu bollur sem þau höfðu sjálf bakað. Eftir kaffitímann var svo haldið í Félagsmiðstöðina Hæðargarð, sem er rétt hjá. Hjálpuðu börnin gamla fólkinu að kom- ast í jólaskapið með því að syngja jólalög og dansa í kringum jólatréð. Ríkti mikil ánægja bæði hjá ungum sem öldnum með vel heppnaðan dag./18 Morgunblaðið/RAX Börnin höfðu það huggulegt á aðventunni FYRSTI vinningur í Víkingalott- óinu gekk út í gær, rétt rúmar 127 milljónir króna. Þrír voru með allar sex tölurnar réttar, þar af einn Íslendingur, og fær hver og einn þeirra 42.338.620 krónur í sinn hlut. Að sögn Bergsveins Sampsted, framkvæmdastjóra Íslenskrar getspár, var vinningsmiðinn keyptur í söluturninum Rebba í Hamraborg í Kópavogi í gær, og var enginn búinn að gefa sig fram þegar Morgunblaðið hafði samband við Bergsvein og sölu- turninn í gærkvöldi. Ofurpotturinn stendur hins vegar enn óhreyfður frá því í ágúst og hækkar jafnt og þétt, en röðin var þá hækkuð úr 35 krónum í 50 krónur til þess að standa straum af pottinum. Pott- urinn er orðinn gríðarstór eða rúmar 300 milljónir króna. Til þess að vinna Ofurpottinn þarf að hafa allar sex tölurnar réttar auk þess sem Ofurtalan þarf að koma upp og hefur það ekki gerst hingað til. Bónusvinningurinn var rúmar 26 milljónir en hann gekk ekki út að þessu sinni. Hefur hann aldrei verið hærri. Risavinningur í Víkingalottóinu gekk út í gærkvöldi Íslendingur vann rúmar 42 milljónir Vinningsmiðinn seldur í Rebba í Kópavogi NÝJASTA skáldsaga Arnaldar Indr- iðasonar, Kleifarvatn, er söluhæsta bókin á Íslandi fjórðu vikuna í röð, samkvæmt samantekt Félagsvísinda- stofnunar fyrir Morgunblaðið. Könn- unin var gerð dagana 23. til 29. nóv. Barnabókin Öðruvísi fjölskylda eft- ir Guðrúnu Helgadóttur er í öðru sæti og lyftir sér upp um tvö sæti milli vikna. Útkall – Týr er að sökkva eftir Óttar Sveinsson er áfram í þriðja sæt- inu og Heimsmetabók Guinness fer úr sjötta sæti í það fjórða. Nýjasta skáldsaga Ólafs Jóhanns Ólafssonar kemur ný inn á listann yfir tíu sölu- hæstu bækurnar, í fimmta sæti. Allar bækurnar, ef undan er skilin bók Óttars, koma út hjá Vöku- Helgafelli. Kleifarvatn enn þá efst  Bóksala/52 IMG og KPMG Ráðgjöf verða form- lega sameinuð um næstu áramót undir nafninu IMG. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að með samein- ingu þeirra verði til öflugasta rann- sókna- og ráðgjafarfyrirtæki lands- ins. Bjarni Snæbjörn Jónsson, fram- kvæmdastjóri IMG Deloitte, og Ragnar Þórir Guðgeirsson, fram- kvæmdastjóri KPMG Ráðgjafar, munu í sameiningu fara með fram- kvæmdastjórn hins nýja ráðgjafar- sviðs IMG. /2C IMG og KPMG sameinast ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.