Morgunblaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 55
MENNING
„Andrúmsloftið í ljósmyndum Rax getur bein-
línis kallað fram gnauðið í vindinum, seltuna í
sjónum og nísting kuldans.“
Mary Ellen Mark
Ragnar Axelsson hefur um árabil verið einn
kunnasti og dáðasti ljósmyndari Íslendinga.
Á hlýjan og nærfærinn hátt veitir hann
áhorfandanum hlutdeild í lífi íbúa við Norður-
Atlantshaf á tímum örra breytinga á lífsháttum
og umhverfi.
...meira fyrir áskrifendur
Tilboð til áskrifenda
Nú býðst áskrifendum Morgunblaðsins ljósmyndabók Ragnars Axelssonar með 33% afslætti,
eða á 3.990 kr. Bókin er til sölu í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1. Einnig er hægt að
hafa samband í síma 569 1100 eða með tölvupósti á netfangið askrift@mbl.is
GEISLADISKURINN Góðir hlust-
endur, með 16 lögum hins góðkunna
útvarpsmanns Jónasar Jónassonar,
kemur út í dag. Jónas hefur alla sína
starfsævi verið tengdur Ríkisútvarp-
inu með einum eða öðrum hætti og
stýrt fjölmörgum skemmtiþáttum út-
varpsins. Í tengslum við þessa þætti
sem hljómuðu á öldum ljósvakans á
merkum tímamótum eins og gaml-
árskvöldum, nýársfögnuðum og
páskum, hefur Jónas samið ein 50
lög. Lögin sem valist hafa á geisla-
diskinn, Góðir hlustendur, samdi
Jónas fyrir útvarpsþætti sína. Sum
þeirra voru notuð til kynningar á
þáttunum sjálfum, en önnur til
skemmtunar inn á milli atburða.
Áttu aldrei að verða vinsæl
Á disknum má m.a. finna lögin
Hagavagninn og Bátarnir á firðinum
sem eru þekktar perlur úr smiðju
Jónasar. Önnur lög eru fólki eflaust
ekki eins kunn, enda leggur lagahöf-
undurinn áherslu á að þau voru ein-
ungis samin fyrir eitt skipti og áttu
aldrei að verða vinsæl. Um tildrög
tónverkanna segir Jónas: ,,Ég hafði
tekið að mér skemmtiþátt og leitaði
til tónskálds um að búa til lag við ljóð
sem hafði verið samið í tilefni þátt-
arins. Svo leið og beið og daginn fyrir
æfinguna hafði ekkert heyrst frá tón-
skáldinu. Þá kom í ljós að ekkert lag
hafði verið samið. Ég varð því að
grípa til minna ráða og semja sjálfur
lagið á einni kvöldstund. Tónverkinu
kom ég svo til Magnúsar Péturssonar
hljómsveitarstjóra. Hann hóaði sam-
an tónlistarmönnum og úr varð þetta
ágæta skemmtiefni.“
Jónas er vanur að fá til sín gesti
enda stjórnað Kvöldgestum í 24 ár,
án þess að missa úr þátt. Gestir Jón-
asar að þessu sinni ljá útvarpsmann-
inum rödd sína í formi söngs og má
þar nefna Helenu Eyjólfsdóttur,
Ragnar Bjarnason og Ólaf Þórð-
arson. Þó nokkrir flytjendur á geisla-
disknum eru farnir yfir móðuna
miklu og má þar nefna Magnús Ingi-
marsson, Hauk Morthens, Magnús
Pétursson, Kristínu Önnu Þórarins-
dóttur, Ævar R. Kvaran og Guðmund
Ingólfsson.
Án tæknilegrar
dauðhreinsunar
Það sem vekur athygli við geisla-
diskinn er að tónlistin er borin á borð
eins og hún varð til, án allrar tækni-
legrar dauðhreinsunar eins og laga-
höfundurinn orðar það sjálfur. Jónas
leggur áherslu á að tæknimenn Rík-
isútvarpsins hafi löngum verið þekkt-
ir fyrir gott handbragð og gæði þess-
arar hljóðritunar undirstriki næmi og
smekk þeirra.
Jónas eignar Kristni Friðfinns-
syni, sóknarpresti í Hraungerðis-
prestakalli, heiðurinn af útkomu
Góðra hlustenda. ,,Kristinn var
kvöldgestur minn og eins og gengur
þá myndast stundum vinskapur á
milli mín og gestanna í þættinum.
Kristinn er mikill áhugamaður um líf-
ið; hann er góður hlustandi og hlustar
m.a. á gömlu gufuna,“ segir Jónas og
heldur áfram. ,,Eitt leiddi af öðru, við
fórum að ræða tónlist og úr verður að
ég segi honum frá geisladiski sem
strákarnir í tæknideildinni höfðu gef-
ið mér með lögunum mínum. Hann
vildi ólmur hlusta á diskinn og fékk
þá gölnu hugmynd að gefa þyrfti efn-
ið út.“
Meira fyrir að hlusta
Þrátt fyrir að Jónas hafði engan
sérstakan áhuga á að lögin hans yrðu
gefin út á geisladisk sagði hann hug-
myndina áhugaverða. ,,Að tengja for-
tíð nútímanum kveikti áhuga minn.
Þarna kom tækifæri fyrir mig að láta
ákveðinn draum rætast; að gera
hlustendum ljóst hvað Ríkisútvarpið
hefur verið að gera í gegnum árin. Ég
finn sárt til þess að hugsa að útvarpið
sé fallið í skugga æðibunugangsins í
sjónvarpinu, þar sem skyndigleði rík-
ir sem lítið eftir skilur. Útvarpið hef-
ur gegnt stóru hlutverki í lífi fólks allt
frá stofnun þess árið 1930 og hefur
fylgt okkur í gegnum margar stórar
stundir,“ segir Jónas og bendir á að
lögin á Góðum hlustendum séu börn
síns tíma og endurspegli tíðarandann
í lok sjötta áratugarins til loka þess
sjöunda. ,,Ég vil ekki hljóma eins og
ég sé á móti þróuninni en ég er svolít-
ið hræddur um að við séum að fjar-
lægjast okkar eigin sögu. Ég á
reyndar bágt með að þola nútíma-
tónlist á borð við rapp og hart rokk.
Ég fæ hellu fyrir eyrun og sting fyrir
hjartað. En hvert tímaskeið á sitt lag
og þannig má það vera; en við þurfum
ekki sífellt að gleyma. Með disknum
gefst tækifæri til að muna.“
Jónas Jónasson söng erlenda lagið
Spánarljóð við texta Sigurðar Þór-
arinssonar og gerði það vinsælt á sín-
um tíma. Hann er því ekki á
ókunnum slóðum í byrjun Góðra
hlustenda, þar sem hann gefur tóninn
og syngur sjálfur lag sitt Góða kvöld-
ið. En hefur Jónas gaman af því að
syngja sjálfur?
,,Nei, það get ég nú ekki sagt.“
Aðspurður hvort hann sé meira
fyrir að tala svarar hann snöggur upp
á lagið: ,,Nei, ég er meira fyrir að
hlusta.“
Djúpslökun segulbandssafnsins
Kristinn Friðfinnsson sókn-
arprestur segir það ómetanlegt að
enn sé Jónas Jónasson að safna
minningum Íslendinga og veita okk-
ur hinum leyfi til að hlusta í friði og
næði síðkvölda. Þannig hafi hann
veitt fólki um land allt hlutdeild í al-
þjóðlegri menningu. ,,Allan sinn
starfstíma hefur Jónas ferðast um
landið og opnað glugga á milli afdala
og bæja og gefið hlustendum í kaup-
bæti aðgang að ljúfri tónlist. Hús-
freyja nokkur komst þannig að orði,
árið 1930, að heldur vildi hún missa
snemmbæruna úr fjósinu en viðtækið
úr hillunni. Við erum mörg sem get-
um á sama hátt sagt að frekar vildum
við missa af síbylju hinnar óskáldlegu
og skegglausu samtíðar, en að sjá á
eftir lögunum hans Jónasar í áfram-
haldandi djúpslökun segulbands-
safnsins,“ segir Kristinn.
Góðir hlustendur er gefinn út af
Stöðinni og sér Skífan um dreifingu
geisladisksins.
Tónlist | Geisladiskur með tónlist Jónasar Jónassonar úr þáttum hans á Ríkisútvarpinu
Góðir hlustendur
tengja fortíð
nútímanum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
,,Að tengja fortíð nútímanum kveikti áhuga minn. Þarna kom tækifæri fyr-
ir mig að láta ákveðinn draum rætast; að gera hlustendum ljóst hvað Rík-
isútvarpið hefur verið að gera í gegnum árin,“ segir Jónas Jónasson.