Morgunblaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 12
„Við vorum svolítið eins og lítil
hjón, Hansa sótti mig alltaf og
kom mér út á flugvöll… “
„…og hann leyfði mér alltaf að
sitja við ganginn.“
Jóhanna
Vigdís og
Felix
12 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á sunnudaginn
ÚTHLUTUN styrkja úr Kristnihá-
tíðarsjóði fór fram við athöfn í
Þjóðmenningarhúsinu í gær. Sam-
tals var úthlutað styrkjum að fjár-
hæð 93 milljónum króna til 59 verk-
efna sem tengjast menningar- og
trúararfi þjóðarinnar og fornleifa-
rannsóknum. Alls hlutu níu verk-
efni styrk á sviði fornleifafræði og
50 verkefni hlutu styrk á sviði
menningar- og trúararfs.
Kristnihátíðarsjóður var stofn-
aður til að minnast þess að 1000 ár
voru liðin frá því kristinn siður var
lögtekinn á Íslandi, og er hlutverk
sjóðsins tvíþætt. Í fyrsta lagi að efla
fræðslu og rannsóknir á menning-
ar- og trúararfi þjóðarinnar og
stuðla að umræðum um lífsgildi
hennar, siðferði og framtíðarsýn.
Í öðru lagi að kosta fornleifa-
rannsóknir á helstu sögustöðum
þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í
Skálholti og á Hólum.
Starfstími sjóðsins er fimm ár
eða til ársloka 2005. Ríkissjóður
leggur sjóðnum til 100 milljónir
króna fyrir hvert starfsár skv. sér-
stökum lið í fjárlögum. Stjórn
sjóðsins, kjörna af Alþingi, skipa
Anna Soffía Hauksdóttir, sem jafn-
framt er formaður, Anna Agnars-
dóttir og Þorsteinn Gunnarsson
rektor. Varamenn stjórnar eru
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt,
Jón Páll Halldórsson og Þóra Guð-
mundsdóttir.
Hægt er að sjá hvaða verkefni
hlutu styrk með því að fara á vef-
slóðina http://forsaetisradu-
neyti.is/ og smella svo á „Úthlutun
á Kristnihátíðarsjóði 2004“.
Morgunblaðið/Sverrir
93 milljónum úthlutað
úr Kristnihátíðarsjóði
Forstjóri OR um samninginn við Og Vodafone
Styrkir framtíð beggja
ORKUVEITA Reykjavíkur (OR)
selur sinn hlut í Línu.net á 270 millj-
ónir en það þýðir að heildarverð-
mætið er um 400 milljónir. OR
kaupir síðan af Og Vodafone ljós-
leiðara, annars vegar tvö pör sem
þeir hafa rekið sitt símkerfi á sem
þeir munu halda áfram að gera en
leigja ljósleiðarana af OR. Þá kaupir
OR einnig önnur tvö ljósleiðarapör
sem Og Vodafone mun einnig leigja
af OR.
Þetta segir Guðmundur Þórodds-
son, forstjóri Orkuveitu Reykjavík-
ur (OR) vegna ummæla Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar í Morgunblaðinu í
gær og segir að með þessu sé verið
að skýra línurnar á milli fyrirtækj-
anna og þegar upp verði staðið muni
bæði fyrirtækin koma miklu sterk-
ara út og hafa meiri hag af þessu en
ef samningurinn hefði ekki verið
gerður.
Verið að skerpa skilin
milli fyrirtækjanna
„Staðreyndin er sú að Og Voda-
fone hefur verið stærsti einstaki
leigjandinn á ljósleiðurum hjá okkur
og munu halda áfram að vera það.
Þegar við lögðum af stað fyrir sex
árum gerðum við það með Íslands-
síma sem er fyrirrennari Og Voda-
fone og lögðum saman þennan ljós-
leiðara. Þannig að við höfum alltaf
starfað mjög náið saman en við
verðum þó að viðurkenna þau mis-
tök að við settum okkur dálítið á
sama markað, þ.e. það voru ekki
nógu hreinar línur á milli okkar. En
við erum núna að rétta það af með
því að við kaupum af þeim ljósleið-
ara og leigjum þeim þá aftur.“
Guðmundur tekur þó fram að
meginatriðið í samningnum milli OR
og Og Vodafone sé framhaldið. „Við
ætlum að fara í sókn í því að auka
bandbreidd til fyrirtækja og heim-
ila, það þarf að ljósleiðaratengja
meira og þetta er því fyrirtækjahluti
samningsins, sem gefur Og Voda-
fone mikil tækifæri og okkur líka.
Þetta er meginatriðið og með þessu
erum við að byggja bæði fyrirtækin
upp til framtíðar og tryggja þeim
framtíðartekjur. Þegar upp er staðið
munu bæði fyrirtækin koma miklu
sterkar út og hafa meiri hag af
þessu en ef samningurinn hefði ekki
verið gerður,“ segir Guðmundur.
SMÁRALIND hefur í dag formlega
sölu á nýju gjafakorti sem er, að sögn
aðstandenda, hið fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi. „Gjafakortið er raf-
rænt og virkar nánast eins og debet-
kort nema það er handhafakort og því
ekki skráð á nafn og ekki með mynd
og undirskrift. Eftir því sem ég kemst
næst er Smáralind fyrsta verslunar-
miðstöðin í Evrópu sem tekur upp
þessa tækni, en kortið er þekkt versl-
unarmiðstöðvum í Bandaríkjunum og
hefur þar gefið afar góða raun,“ segir
Pálmi Kristinsson, framkvæmastjóri
Smáralindar. Að sögn Pálma er hægt
að versla fyrir hvaða upphæð sem er
svo framarlega sem innstæða er á
kortinu og gildistími þess virkur.
Gjafakortið má nota í öllum fyrirtækj-
um í Smáralind að Vínbúðinni undan-
skilinni. Innstæða kortanna er virk í
þrjú ár eftir að það er keypt, en að
þeim tíma liðnum fellur innstæðan
niður og kortið verður óvirkt. Gild-
istími kortsins kemur fram á bakhlið
þess. Gjafakortið fæst á þjónustu-
borði Smáralindar á 1. hæð fyrir
hvaða upphæð sem er frá 1.000 krón-
um.
Lengi í undirbúningi
Pálmi segir þróun kortsins hafa
verið í deiglunni allt frá byggingu
Smáralindarinnar. „Undirbúningur
að útgáfu kortsins fór síðan í gang
fyrir alvöru síðasta vor, en útgáfa
kortsins er kerfisbreyting sem kallaði
á samráð aðila úr bankakerfinu, frá
fjármálaeftirlitinu auk tæknimanna
og lögfræðinga,“ segir Pálmi, en kort-
ið er þróað og unnið í samstarfi við
Landsbankann og Ax hugbúnaðar-
hús. Að sögn Pálma felst með útgáfu
rafræna gjafakortsins gríðarleg hag-
ræðing fyrir fyrirtækin. „Fyrir við-
takanda kortsins felst einnig meira
öryggi í því að stinga kortinu í veskið í
stað þess að stinga pappírskortinu í
einhverja skúffuna þar sem það vill
oft gleymast, enda er þekkt að afföll í
pappírskortakerfinu um allan heim
eru á bilinu 5–10%. Með útgáfu raf-
ræna gjafakortsins gerum við hins
vegar ráð fyrir að nýtingin verði allt
að 100%.“
Að sögn Pálma hefur það oft reynst
vandamál við pappírskortið að hand-
hafar kortsins hafa neyðst til að
kaupa fyrir alla uppgefnu upphæðina
á kortinu þar sem eigendur verslana
hafa ekki viljað skipta. „Nú er það
vandamál hins vegar algjörlega úr
sögunni, því korthafi kaupir bara það
sem hann þarf í viðkomandi búð og
notar síðan eftirstöðvarnar í einhverri
annarri búð eftir því sem hentar.“
Aðspurður segist Pálmi sannfærð-
ur um að rafræna kortið muni leysa
pappírsgjafakortið algjörlega af
hólmi á næstu misserum og í raun að-
eins tímaspursmál hvenær aðrar
verslunarmiðstöðvar bæði hér og er-
lendis fylgi í kjölfarið. „Því nú er búið
að ryðja öllum hindrunum úr vegi og
því er eftirleikurinn auðveldur.“
Nýtt rafrænt gjafakort í Smáralind