Morgunblaðið - 11.12.2004, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MILLJARÐA SKATTSVIK
Ætla má að ríki og sveitarfélög
hafi tapað samtals 25,5–34,5 millj-
örðum króna á árinu 2003 vegna
skattsvika, að því er fram kemur í
skýrslu nefndar sem rannsakaði um-
fang skattsvika á Íslandi. Þessi upp-
hæð er um 8,5–11,5% af heildar-
tekjum þessara opinberu aðila.
Hert á eftirliti
Fjármálaeftirlitið boðar hert eft-
irlit með starfsemi lánastofnana
vegna aukinna fasteignalána og út-
lána sem tryggð eru með veði í verð-
bréfum og fela í sér markaðsáhættu.
Í umræðuskjali sem birt var í gær
segir að einstök lánafyrirtæki megi
vænta þess að Fjármálaeftirlitið
geri til þeirra auknar eiginfjár-
kröfur, í þeim tilvikum sem þróun
síðustu mánaða á lánamarkaði leiðir
til aukinnar áhættu.
Sýknaður og sök fyrnd
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, var í gær sýknaður af
ákæru um að hafa mútað dómara
fyrir tuttugu árum. Dómstóllinn
komst hins vegar að þeirri nið-
urstöðu að sök væri fyrnd í öðru
mútumáli.
Dæmdur fyrir morð í Írak
Bandarískur hermaður, sem
skaut óvopnaðan og særðan Íraka,
var í gær fundinn sekur um morð.
Peres fagnar boði Sharons
Shimon Peres, leiðtogi Verka-
mannaflokksins í Ísrael, fagnaði í
gær tilboði Ariels Sharons forsætis-
ráðherra um að mynda stjórn með
Likud-flokknum til að koma í fram-
kvæmd áætlun um að leggja niður
byggðir gyðinga á Gaza-svæðinu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 42
Viðskipti 16 Umræðan 41/46
Úr verinu 20 Bréf 64/65
Erlent 20/25 Messur 48/49
Minn staður 26 Minningar 42/47
Höfuðborgin 28/29 Dagbók 62/64
Akureyri 28/29 Myndasögur 62
Suðurnes 30 Víkverji 62
Árborg 30 Staður og stund 64
Landið 30 Leikhús 66
Listir 32/33, 65/67 Fólk 68/73
Daglegt líf 34/35 Bíó 70/73
Ferðalög 36 Ljósvakamiðlar 74
Úr Vesturheimi 37 Veður 75
Forystugrein 38 Staksteinar 75
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
AÐSTANDENDUR 16 daga átaks
gegn kynbundnu ofbeldi afhentu í
gær forseta Hæstaréttar, forseta
Alþingis og forsætisráðherra
áskorun til þess að vekja athygli á
alvarleika vandamálsins og knúðu á
um að leitað yrði leiða til að koma í
veg fyrir kynbundið ofbeldi á Ís-
landi.
Í áskoruninni segir að þau sam-
tök sem staðið hafa að 16 daga
átaki gegn kynbundnu ofbeldi
„skora á stjórnvöld að grípa til að-
gerða til að uppræta þann smán-
arblett sem kynbundið ofbeldi er á
íslensku samfélagi og lýsa sig nú,
sem fyrr, reiðubúin til samstarfs.“
Meðal stofnana og samtaka sem
skrifa undir áskorunina er Amn-
esty International, Femínistafélag
Íslands, Kvenréttindafélag Íslands,
Rauði kross Íslands, Stígamót,
Þjóðkirkjan, Samtök um kvenna-
athvarf o.fl.
Átakið hefur staðið frá 25. nóv-
ember og lauk í gær með afhend-
ingu áskorunarinnar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Skora á stjórnvöld að grípa til
aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi
„ÉG tek undir með Sigurði Einars-
syni [stjórnarformanni KB banka]
um að gengisbundin útlán bankanna
til heimilanna eru mikið áhyggju-
efni,“ segir Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra. „Ég hef alltaf verið
þeirrar skoðunar að heimilin eigi
ekki að taka gengisbundin lán. Ég
tel það ábyrgðarhluta fyrir alla; fyr-
ir bankana og þá sem taka þessi lán,
að gera það. Tekjur heimilanna eru í
íslenskum krónum og það er lang-
öruggast og eðlilegast að heimilin
taki lán í þeirri mynt miðað við það
hvernig tekjurnar koma inn. Ég tel
að bankarnir hafi farið óvarlega í
þessum efnum og hafi verið að taka
hér inn erlent fjármagn til að fjár-
magna margvísleg lán sem ég vara
við.“
Halldór bendir á að Fjármálaeft-
irlitið hafi í gær gefið út eins konar
viðvörun til bankanna. Vísar hann
þar til svokallaðs umræðuskjals eft-
irlitsins. „Ég er þeirrar skoðunar að
sú viðvörun geti m.a. verið undan-
fari þess að beita heimildum um
breytt eiginfjárhlutfall ef bankarnir
gá ekki að sér. Vonandi þarf ekki að
koma til þess en það er alveg ljóst
að Fjármálaeftirlitið er með þessari
viðvörun að taka á málinu og ég
fagna því.“
Aðspurður segir hann að ríkis-
stjórnin telji að það hafi verið skyn-
samlegt af Seðlabankanum að
hækka vexti í einu skrefi um eitt
prósent. Það hafi haft heilmikil
áhrif. „Ég tel að sú aðgerð sé líkleg
til að koma í veg fyrir að vextir
hækki mikið umfram það sem orðið
er, eins og Seðlabankinn hafði ætlað
sér. Ég vænti þess að við sjáum því
fram á meiri stöðugleika á næst-
unni.“ Halldór bendir sömuleiðis á
að olíuverð fari lækkandi, en hátt
verð þess hafi verið ein helsta orsök
verðbólgunnar. Margt bendi jafn-
framt til þess að íbúðaverð hafi náð
hámarki, en það hafi einnig átt þátt í
verðbólgunni.
Heimilin eiga ekki að
taka gengisbundin lán
TVEIR vörubílar ultu á hliðina á
Austurlandi í gær, báðir þegar
þeir voru að sturta steypumöl.
Ökumaður annars bílsins var
fluttur með sjúkraflugi til Akur-
eyrar til rannsóknar, en læknir
þar sagði hann ekki mikið slas-
aðan. Hinn ökumaðurinn var
ekki talinn mikið slasaður og ætl-
aði að leita sjálfur til læknis.
Gekk illa að sturta
Fyrra óhappið varð við
Steypustöð Egilsstaða fyrir há-
degi í gær og það síðara við Að-
göng tvö við Kárahnjúka.
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum voru aðstæður svipaðar í
báðum tilvikum, ökumenn
bílanna voru að sturta möl af
palli, en vegna frosts rann ekki
vel af pöllunum þegar þeim var
hallað og þunginn af mölinni
færðist ofar, með þeim afleiðing-
um að bílarnir lögðust á hliðina.
Engir aðrir en ökumenn voru í
hættu vegna óhappanna.
Kastaðist
á steinvegg
Þá slasaðist ungur ökumaður
nokkuð í gær þegar hann missti
stjórn á fólksbíl sínum við mis-
læg gatnamót Reykjanesbrautar
og Nýbýlavegar um klukkan 20 í
gærkvöld. Bíllinn kastaðist á
ljósastaur og á steyptan vegg og
er gjörónýtur, að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík. Ökumaður-
innn, sem er fæddur árið 1987,
skarst á höfði við áreksturinn og
missti meðvitund. Hann var
fluttur á slysadeild Landspítal-
ans.
Tveir vörubílar ultu á
hliðina á Austurlandi
KOKKUR á veitingastaðnum Broad-
way brenndist illa í gærkvöldi þegar
hann var að bæta spritti á eld sem
notaður var til að steikja lamb á
teini. Kokkurinn stóð uppi á sviði
veitingastaðarins og urðu því marg-
ir gestir vitni að atvikinu.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
fékk hann yfir sig logandi vökva og
hlaut við það 2. stigs bruna á hendi
og 1. og 2. stig bruna á síðu og einn-
ig á sköflungi. Maðurinn var fluttur
á brunadeild Landspítalans við
Hringbraut. Líðan hans er eftir at-
vikum góð en brunasárin munu ekki
vera ýkja stór. Vinnueftirlitið var
auk þess kallað á staðinn enda um
vinnuslys að ræða.
Kokkur brennd-
ist talsvert
KB banki og Íslandsbanki hafa
ákveðið að hækka vexti óverð-
tryggðra inn- og útlána í kjölfar
hækkunar stýrivaxta Seðlabankans
7. desember síðastliðinn. Vaxta-
hækkunin tekur gildi í dag. Íslands-
banki hækkar vexti um 0,75–1% en
KB banki hækkar vexti innlána um
allt að 0,8% á meðan vextir útlána
hækka um 0,75–1%. Vextir verð-
tryggðra inn- og útlána hækka
ekki.
Landsbankinn tilkynnti í síðustu
viku um vaxtahækkun sem tekur
gildi í dag.
Vextir hækka
EFNISTAKA úr landi jarðarinnar
Kjarrs uppi á Ingólfsfjalli er til-
kynningarskyld til Skipulagsstofn-
unar. Sigríður Anna Þórðardóttir
umhverfisráðherra staðfesti í gær
ákvörðun Skipulagsstofnunar þess
efnis frá 10. september sl. Kær-
endur voru eigendur jarðarinnar
Kjarrs og Fossvélar ehf.
Ráðherra áréttar að í úrskurð-
inum er ekki tekin afstaða til þess
hvort efnistaka uppi á Ingólfsfjalli
sé háð mati á umhverfisáhrifum,
enda sé það hlutverk Skipulags-
stofnunar að taka þá ákvörðun eftir
að framkvæmdin hefur verið til-
kynnt til stofnunarinnar.
Efnistaka til-
kynningarskyld
GENGI íslensku krónunnar hækk-
aði um 0,17% í gær og nemur styrk-
ing hennar nú 2,85% frá því að
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti 2.
desember sl. Gengið hefur sveiflast
mikið á þessum tíma og er það bæði
rakið til vaxtahækkunar og mik-
illar umræðu um viðskiptahalla og
hátt gengi krónunnar.
Gengi krónunnar
hækkaði um 0,17%