Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 71
* * * Nýr og betri Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON * * Kr. 500 www.regnboginn.is VINCE VAUGHNBEN STILLER Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 3.40 og 5.45.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 3.40. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 10.15 B.i. 12 ára. Jólaklúður Kranks Jólaklúður Kranks Óttist endurkomuna því hann er mættur aftur vígalegri enn nokkru sinni fyrr!! i í í l i i i !! ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ Hverfisgötu ☎ 551 9000 Sjáumst í bíó Sýnd Kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... Sýnd kl. 3.40, 5.45 og 8. Kapteinn skögultönntei s lt  DV ÓÖH... EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON Sýnd kl. 8 og 10. Ein besta spennu- og grínmynd ársins Kr. 500 EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA Sýnd Kl. 8 og 10. Stranglega B.i. 16 ára. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. www.laugarasbio.is Alls ekki fyrir viðkvæma Alls ekki fyrir viðkvæma ekki SVAKALEGA ÖFLUG BARDAGAMYND Í ANDA BRUCE-LEE „Balli Popptíví“  „Balli Popptíví“  MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 71 JÓLA- og fjölskyldumyndin Pól- arhraðlestin markar ákveðin tíma- mót í hraðfleygri þróun í stafrænni kvikmyndavinnslu, en um er að ræða fyrstu myndina í fullri lengd sem nýtir sér alfarið það sem kalla mætti hreyfilíkingartækni. Þar er tölvutækni nýtt til að fanga hreyf- ingar leikara og sá grunnur nýttur til að skapa tölvuunnar eftirlíkingar af fólki og verum á hreyfingu. Mynd- in er byggð á samnefndri barnabók Chris Van Allsburgs sem fjallar um undan pilt sem er stórlega farinn að efast um tilvist jólasveinsins, en stekkur upp í dularfulla „pólarhrað- lest“ á jólanótt og lærir að trúa á ný. Þó að þessi tækni ljái myndinni einstakt yfirbragð og glæsilega sjón- ræna eiginleika er hún ákveðnum takmörkunum háð, því í eftirlíking- unni á raunverulegum hreyfingum og svipbrigðum vantar alltaf herslu- muninn, blikið í augunum, áþreif- anleika efnisins, fínhreyfingar og stöðugleika þyngdaraflsins. Í stað þess að sjá hversu líkar myndirnar eru raunverulegu fólki sér maður bara það litla sem upp á vantar og virka þær því mun líflausari en venjulegar teiknifígúrur myndu gera. Þá er mismikið púður sett í hvern ramma, og mismikið í aðal- og aukapersónur, þannig að eitt and- artakið eru aðalpersónurnar hér um bil eins og lifandi leikarar en það næsta þunglamalegar leikbrúður. Fyrir vikið er erfitt að gangast við lögmálum eftirlíkingarinnar og hríf- ast inn í söguheiminn. Megininntak sögunnar missir líka marks af þess- um sökum, en hún snýst einmitt um það að trúa á töfra og ævintýri en láta ekki veruleikalögmálin segja sér hvort jólasveinninn sé til eða ekki. Annar stór vandi liggur í handrit- inu og framvindu sögunnar, en nokkurrar hugmyndaþurrðar gætir í tilraun handritshöfundar til að þétta, lengja og hleypa lífi í sögu- þráðinn og myndskreytingarnar úr bók Van Allsburgs, sem eru kveikj- an að sjónrænum heimi kvikmynd- arinnar. Útúrdúrarnir eru ýmsir, margir hverjir til þess fallnir að nýta og útfæra möguleika tölvutækninn- ar, og er árangurinn tilkomumikill í atriðum þar sem þeyst er yfir vetr- arríkið í nokkurs konar spennu- atriðum sem sum ættu reyndar bet- ur heima í hasarmynd en jólaævintýri. Tölvuleikfimi nægir ekki til að búa til góða jólasögu og margbrotinn bakgrunnurinn bætir ekki upp fyrir þunglamalegu per- sónurnar sem silast um myndram- mann með sín dauflegu svipbrigði. Þá fýkur eiginlega í síðasta skjólið þegar komið er á sjálfan norðurpól- inn og þar blasir við eyðileg byggð, þar sem lífið virðist ganga út á verk- smiðjuvinnu og staðlaða framleiðslu „jólapakka“. Það vantar alla töfra í jólasveinabæinn og sjálfan jólasvein- inn sem öll eftirvæntingin hefur ver- ið byggð upp í kringum. Jóla- stemmningin víkur fyrir einhverri undarlegri stjörnudýrkun álfanna á sjálfum jólasveininum er hann stíg- ur í fyrsta sinn út á aðaltorg norð- urpólsbyggðarinnar og er hylltur af undirsátum sínum við hvert fótspor. Að öllum þessum ágöllum upp- töldum er þó rétt að minna á að Pól- arhraðlestin er sérstaklega vel unn- in tölvuteiknimynd og einkar metnaðarfull sem slík. Í aðferðinni sem beitt er í myndinni virðist hreyfilíkingarstefnan hins vegar hafa takmarkað sköpunarrýmið og getið af sér teiknimynd sem ein- kennist af togstreitu milli eftirlík- ingar og ímyndunarafls. Togstreita eftirlíkingar og ímyndunarafls Jólasveinninn á Norðurpólnum nýtur mikillar hylli verkafólks síns, álf- anna, í tækniundrinu Pólarhraðlestinni. KVIKMYNDIR Háskólabíó og Sambíóin Leikstjórn: Robert Zemeckis. Handrit: Robert Zemeckis og William Broyes Jr, byggt á bók Chris Van Allsburg. Aðal- leikrödd í upprl. útg: Tom Hanks. Banda- ríkin, 99 mín. The Polar Express / Pólarhraðlestin  Heiða Jóhannsdóttir ÓLÁTABELGURINN írski Colin Farrell hefur tekið að sér hlutverk í bandaríska spítalagrínþættinum Scrubs sem sýndur er í Sjónvarpinu. Kvikmyndastjarnan, sem nú síð- ast lék Alexander í stórmynd um þessa frægu sögupersónu, mun leika írskan ólátabelg í einum þætti – nokkuð sem ætti að vera afar fram- andi og krefjandi fyrir hann, eða hitt þó heldur. Ástæðan fyrir því að hann féllst á að leika í þessum léttruglaða þætti er sögð hafa eitthvað með vinskap hans við aðalleikarann Zach Braff að gera. Þannig er nefnilega að Braff er sjálfur orðinn sjóðheitur í Holly- wood eftir að hafa fengið glimrandi góða dóma fyrir fyrstu mynd sína Garden State, sem hann bæði leik- stýrði og lék aðalhlutverkið í. Farrell lék síðast í sjónvarpsþætti árið 1999 er hann fór með hlutverk í írska BBC þættinum Ballykiss- angel. Síðan þá hefur Farrell orðið ein skærasta stjarnan í Hollywood og leikið í myndum á borð við Minor- ity Report, Phone Booth og Dare- devil. Farrell í fótspor Don Johnsons Segir sagan að Farrell hafi einnig fallist á að leika Crockett í kvik- myndagerð á lögguþáttunum Miami Vice sem nutu mikilla vinsælda á 9. áratug síðustu aldar. Þar fór Don Johnson með hlutverk Crocketts og vakti útlit hans sérstaka athygli; þriggja daga en vel snyrt skeggið, kremuðu jakkafötin og mokk- asíurnar sem Johnson klæddist ætíð berfættur. Engum sögum fer þó af því hvort Farrell muni tileinka sér þann ódauðlega stíl, en væri reyndar ekki úr vegi nú þegar hin svokallaða „eitís-tíska“ er í algleymingi. Snyrtipinnarnir Tubbs, sem leikinn var af Philip Michael Thomas, og Crockett. Írski ólátabelgurinn, eitt- hvað að ybba gogg. Fólk í fréttum| Colin Farrell leikur í Scrubs og Miami Vice Krefjandi hlutverk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.