Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 63 DAGBÓK .. Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin Mesta úrval landsins af veiðivörum Simms vöðlur Gore-tex og öndunarvöðlur frá Simms í úrvali. Aðeins frá kr. 19.900 Sage fluguveiðisett Grafit 2 flugustöng með diska- bremsuhjóli og uppsettri flugu- línu. Aðeins kr. 29.900 Dr. Slick hnýtingaverkfæri Vönduð amerísk flugu- hnýtingaverkfæri í hand- hægu boxi. Frábært verð. Aðeins kr. 3.995 Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni Ron Thompson kastveiðisett Ron Thompson grafit kast- stöng og Okuma Aliax hjól með 8 legum og aukaspólu. Aðeins kr. 12.500 Norconia sjónaukar Gott úrval af sjónaukum í mörgum stærðum og gerðum. Aðeins frá kr. 3.995 Leirdúfukastari Leirdúfukastari fyrir 1 eða 2 leirdúfur. Frábært verð. Aðeins kr. 5.990 Scierra veiðijakki Scierra jakki, vatnsheldur með öndun. Frábært verð. Aðeins frá kr. 16.900 Ron Thompson vöðlur Ron Thompson neoprenvöðlur í úrvali Aðeins frá kr. 10.995 Ron Thompson nestistaska Nestistöskur í útileguna, fellihýsið eða veiðitúrinn. Aðeins kr. 4.995 af öllum flíspeysum til jóla. 20%afsláttur J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s Þakkir til Björgúlfs og Landsbanka ÉG vil koma á framfæri þakklæti mínu til Björgúlfs Guðmunds- sonar, stjórnarformanns Lands- banka Íslands, fyrir hvað hann gerir fyrir okkur eldri borgara. Sunnudaginn 5. desember var eldri borgurum boðið annað árið í röð í sannkallaða menningarveislu og kaffihlaðborð með jólaívafi í að- alútibúinu við Austurstræti 17. Var ég sótt í leigubíl í boði bank- ans. Þvílíkur lúxus. Þegar komið var í bankann stóð Björgúlfur stjórnarformaður í anddyrinu og tók á móti gestum sínum og heilsaði öllum með handabandi og bauð alla vel- komna. Björgúlfur er hlýr maður sem kann sig vel, hann er gull af manni. Halldór J. Kristjánsson banka- stjóri bauð gesti velkomna og Að- alsteinn Ingólfsson listfræðingur sýndi og sagði frá málverkum sem eru í eign bankans. Ragnheiður Gröndal söng nokkur jólalög með píanóundirleik og rithöfundar lásu upp úr nýútkomnum bókum sín- um. Svo var þetta fína kaffihlað- borð, tertur smákökur og flatkök- ur með hangikjöti, sem er mitt uppáhald og með því kaffi og gos. Á eftir var okkur boðið upp á loft að sjá málverk í eigu bankans eftir Kjarval, okkar mikla meist- ara. Ég vil þakka Björgúlfi fyrir að halda minningu Kjarvals á lofti. Mér þykir svo vænt um það því Kjarval var mikill vinur minn. Að endingu voru okkur færðar gjafir, flott dagbók úr leðri með gyllingu, fínn penni, spil og end- urskinsmerki. Björgúlfur á heiður skilið fyrir þetta allt og gæfa og náð fylgi honum alla hans ævidaga. Guð blessi hann og hans fjölskyldu. Halldóri J. Kristjánssyni og starfsfólki bankans færi ég mínar bestu þakkir fyrir góðar móttökur. Með vinsemd og virðingu. Reykjavíkurstúlkan Stella. Vegna endurgreiðslu TR ÖRYRKI skrifar í Velvakanda miðvikudaginn 8. desember og spyr hvert fólk, sem fengið hafi kröfu um endurgreiðslu frá Tryggingastofnun ríkisins, geti leitað sér aðstoðar. Vil ég benda þessum öryrkja á að leita til Öryrkjabandalagsins. Starfsmenn þar sinna fólki sem þarfnast aðstoðar, hvort sem það er í félaginu eða ekki, og eru með lögfræðing á sínum snærum sem er með viðtalstíma einu sinni í viku og hef ég góða reynslu af honum. Annar öryrki. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarf Félag eldri borgara Reykjavík | Dans- leikur sunnudagskvöld kl. 20, Caprí–tríó leikur fyrir dansi. Síðasti dansleikur fyrir jól. Félagsstarf aldraðra Garðabæ | Jólagleði félagsstarfs aldraðra og FEBG í safn- aðarheimilinu kl. 15. Ekta gamaldags jóla- kaffi. Gönguhópur fer frá Kirkjuhvolskjall- aranum kl. 10.30. Gerðuberg | Miðvikudaginn 15. desember kl. 12 jólahlaðborð, síðan verður fjölbreytt dagskrá í tali og tónum, nánar kynnt síðar. Hraunbær 105 | Miðvikud. 15. des. kl. 11 verður farið í Þorlákshöfn. Kirkjan skoðuð undir leiðsögn heimamanns, farið í Hafið bláa og snæddur hrísgrjónagrautur og kaffi. Ekið til Reykjavíkur og ljólaljósin skoðuð. Kaffi og aðventukaka í Afla- granda. Jólasveinn með harmónikku verð- ur í ferðinni. Hæðargarður 31 | Fjölskylduganga Háaleit- ishverfis frá Hæðargarði 31 kl. 10 alla laug- ardagsmorgna. Boðið upp á vatn og teygju- æfingar að göngu lokinni. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 | Þriðjudaginn 14. desember verður farið á Hellu og jólamarkaður skoð- aður, farið að Hestheimum til Ástu Beggu og Gísla þar sem verður jólahlaðborð, lagt af stað kl. 12.30 frá Norðurbrú og síðan teknir farþegar í Furugerði skráning í síma 568 6960. Kirkjustarf Selfosskirkja | Í dag kl. 15 verða haldnir að- ventutónleikar í Selfosskirkju. Fjölmargir kórar og aðrir flytjendur koma fram. Kven- félag Selfosskirkju selur laufabrauð eftir tónleikana. Sr. Gunnar Björnsson. Staður og stund http://www.mbl.is/sos HINIR árlegu aðventu- og jóla- tónleikar í Skálholti verða haldnir í dag kl. 14 og aftur kl. 16.30. Á dag- skrá eru lög sem eru sérstaklega út- sett fyrir tónleikana og frumflutt verður „Jólalag Skálholts 2004“. Lag- ið samdi Örlygur Benediktsson við miðaldajólatexta. Örlygur er nýkom- inn frá Rússlandi þar sem hann stundaði nám við Tónlistarakadem- íuna í Pétursborg. Þá verður end- urflutt Jólalagið 2003 eftir Ragnar Kristin Kristjánsson frá Flúðum og flutt Maríubæn sem Hreiðar Ingi Þorsteinsson úr Laugarási samdi fyr- ir Diddú. Yfir 100 listamenn koma fram á tónleikunum, þ.á m. Skálholtskórinn, Barna- og Kammerkór Biskups- tungna, 12 manna strengja- og blás- arasveit, Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir auk Hjörleifs Vals- sonar, Kára Þormarssonar og fleiri. „Ég var spurður hvort ég ætti eitt- hvert efni fyrir Skálholtskórinn og það þurfti ekki að kynda mikið undir mér með það, því ég var mjög hrifinn af því verkefni,“ segir Örlygur Bene- diktsson tónskáld. „Við vissum hins vegar ekki alveg strax hvaða texta við ættum að taka, svo við ákváðum að skoða gömul miðaldakvæði og fengum nokkur slík send frá hand- ritadeild Landsbókasafns. Textinn sem varð fyrir valinu var lofsöngur til Maríu guðsmóður, upphaflega í sex- tán erindum, en hér eru valin úr þau sem skírskota beinast til fæðingar frelsarans og jólaguðspjallsins þann- ig að eftir stendur dálítið lag.“ Örlygur segir jóla- og aðventu- tónleikana í Skálholti hafa þróast og vaxið mjög undanfarin ár. „Bæði hvað varðar metnað, umfang og stærð verka. Mikill metnaður ein- kennir þessa tónlist og mikill áhugi hjá öllum listamönnum og aðstand- endum. Það eru dæmi um það að fólk komi hingað í sérstakar ferðir, ætt- ingjar og vinir sveitunga, bæði til að baða sig í þessari tónlistardagskrá og einnig til að taka þátt í þeim fjöl- mörgu viðburðum sem eru í gangi í héraðinu.“ Tónlist | Aðventutónleikar í Skálholti Morgunblaðið/Kári Jónsson Mikill metnaður og áhugi KÓRTÓNLIST verður í aðal- hlutverki á aðventutónleikum Frí- kirkjunnar í dag kl. 17, en þar munu fimm kórar koma saman, sem allir eiga það sameiginlegt að vera stjórn- að af Gróu Hreinsdóttur. Þar er um að ræða Álkórinn, Kór starfsmanna Vífilfells, Kór hestamanna á Reykja- víkursvæðinu, Kyrjukórinn frá Þor- lákshöfn og eldri kór Snælandsskóla. Einsöngvari á tónleikunum verður Anna Sigríður Helgadóttir og píanó- leikari verður Óskar Einarsson. Gróa Hreinsdóttir kórstjóri segir gesti eiga von á léttri og skemmti- legri tónlist fyrir alla fjölskylduna. „Þetta eru fyrst og fremst léttu skemmtilegu lögin, þetta eru ekki sálmar. Ef þarna eru einhverjir sálmar, þá eru þeir í Gospel- útsetningum,“ segir Gróa. „Við end- um tónleikana á því að syngja saman Frá ljósanna hásal. Það eru þá í kringum sjötíu söngvarar sem syngja saman í Fríkirkjunni, sem er ágætis kór. Ef ég hefði þau alltaf saman, þá væri þetta öflug radda- flóra.“ Aðventutónleikar í Fríkirkjunni Morgunblaðið/Ómar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.