Morgunblaðið - 11.12.2004, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 11
FRÉTTIR
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Sláið saman í gjöf
handa ungu stúlkunni,
mömmunni, ömmunni
og langömmunni
Ullarkasmírkápur
Pelskápur
Dúnúlpur
Rúskinnsjakkar
Leðurjakkar
Hattar og húfur
Kanínuskinn
Opið virka daga frá kl. 10-18
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Opið sunnudaga frá kl. 12-17
31 2
Verslunin KAFFIBOÐ ● á horni Grettisgötu og Barónsstígs ● sími 562 1029 ● www.kaffibod.is
Cappuccino-vélar í úrvali! Kaffikvarnir og kaffiþjöppur.
1. kr. 23.900
2. kr. 53.900
3. kr. 54.900
Silvia frá Rancilio Diva frá Bugatti
Koala frá Vice Versa Kynningarverð á
Koala og Silvia
ARI Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir samtökin vera alveg sammála Sigurði Ein-
arssyni, stjórnarformanni KB-banka, að núverandi
gengi íslensku krónunnar fái ekki staðist og sam-
ræmist ekki raunstærðum í hagkerfinu. Sigurður
sagði á ráðstefnu um gengi krónunnar í fyrradag að
hefja þurfi veikingu krónunnar hið fyrsta.
„Menn hafa búist við því að krónan yrði sterk núna
um skeið, og jafnvel næstu misserin, en við teljum að
það gengi sem við sjáum núna sé klárt yfirskot og að
það fái ekki samrýmst jafnvægi í efnahagslífinu,“
segir Ari, „enda sjáum við það bæði af gríðarlegum
viðskiptahalla og stöðu samkeppnisatvinnuveganna að
það sverfur að samkeppnisatvinnuvegunum og það er
mikið ójafnvægi í utanríkisviðskiptunum.“
Væntingar ráða miklu
„Þetta hlýtur að leiðréttast,“ segir Ari ennfremur.
„Þó menn séu að spá því að vegna þeirra fram-
kvæmda sem framundan eru verði
gengið áfram sterkt, þá lítur mað-
ur líka til þess að væntingar ráða
miklu um gengið.
Þegar krónan styrktist þá gerði
hún það fyrr en menn töldu vera
bein rök fyrir. Auðvitað getur vel
verið að það verði á sama veg,
þegar hún fer niður þá gerist það
hraðar og í meira mæli en menn
hafa reiknað með.
Mér finnst það vera mjög áhættusamt að jafnvel
einstaklingar velji þann kostinn í dag vegna húsa-
kaupa að fjármagna sig með erlendu láni.
Með því hlýtur að vera tekin mjög mikil áhætta,
a.m.k. til skamms tíma litið, á að krónan falli gagn-
vart erlendum gjaldmiðlum, að maður tali nú ekki
um gagnvart gjaldmiðili eins og dollaranum,“ segir
Ari.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Gengi sem ekki fær staðist
Ari Edwald
PÁLL Pétursson fyrrverandi fé-
lagsmálaráðherra hlaut á 80 ára
afmæli Rauða kross Íslands æðstu
viðurkenningu Rauða kross Ís-
lands, heiðursmerki úr gulli. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson forseti Ís-
lands veitti Páli viðurkenninguna.
Í rökstuðningi fyrir veitingunni
segir að Páll hafi sem félagsmála-
ráðherra ákveðið að bjóða árlega,
að undanskildu einu ári, hópum
flóttamanna frá gömlu Júgóslavíu
til Íslands, alls 218 manns. Einnig
hafi Páll á ráðherraferli sínum
beitt sér fyrir stofnun Fjölsmiðj-
unar, sem er verkþjálfunarsetur
fyrir ungt fólk, og látið málefni
geðfatlaðra til sín taka.
Afhendingin fór fram í tilefni
af 80 ára afmæli RKÍ, en við það
sama tækifæri afhenti Einar
Sveinsson, formaður menning-
arsjóðs Íslandsbanka og Sjóvár-
Almennra, RKÍ tvær milljónir
króna til ungmennahúsa, sem
deildir félagsins hafa haft for-
göngu um víða á landsbyggðinni.
Þá afhentu Ellen Kristjáns-
dóttir og bróðir hennar KK
Rauða krossinum gjafabréf um
afnotarétt félagsins á laginu
„When I think of angels“, en
myndband með laginu hefur verið
notað á vegum Rauða krossins
hér á landi og víða um heim und-
anfarið.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Páli Péturssyni, fyrrver-
andi félagsmálaráðherra, æðstu viðurkenningu Rauða kross Íslands í gær.
Veitt æðsta viður-
kenning RKÍ