24 stundir - 27.11.2007, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
HÁSKERPA
HEIM Í STOFU
WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
MIRAI 32” LCD háskerpusjónvarp
79.900-
TILBOÐ
„HRYÐJUVERKASTRÍÐIГ
HVAÐ ER AÐ GERAST Í ÍRAK OG AFGANISTAN?
Munu tilraunir Vesturlanda til
uppbyggingar í Afganistan skila
árangri og tryggja að landið
verði aldrei aftur gróðrarstía
alþjóðlegra hryðjuverka?
Hafa Bandaríkjamenn gert
ægileg mistök með framgöngu
sinni í Írak?
Hvaða áhrif hefur rekstur
fangabúðanna í Guantanamo
á orðspor Bandaríkjanna?
Hvað verður um þau hundruð
blóðbaðið í heimalandi sínu?
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Ekkert eftirlit er lengur með ferð-
um kafbáta við Ísland, eftir að P-3
Orion eftirlitsflugvélar Bandaríkj-
anna fóru frá Keflavík í febrúar
2004. Norska blaðið Aftenposten
greindi frá því í gær að rússneskir
kafbátar hefðu á ný sést við Nor-
egsstrendur eftir langt hlé.
„Rússar hafa fyrst og fremst ver-
ið með sína kafbáta í Norður-Ís-
hafinu nálægt sinni heimahöfn og
æfingum þar. Nú eru þeir komnir
út í Norður-Atlantshafið og það
sætir tíðindum,“ segir Þórir Ibsen,
skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins.
Aftenposten sagði frá því í gær
að við eftirlitsflug norska flughers-
ins hefði sést til rússneskra kafbáta
innan í norskrar lögsögu í Norður-
Atlantshafi. Norska blaðið segir
norska herinn eingöngu geta sinnt
kafbátaeftirliti úr lofti með P-3
Orion kafbátaleitarvélum sínum. Í
smíðum eru nýjar freigátur sem
geta sinnt kafbátaeftirliti og verða
þær tilbúnar eftir rúm þrjú ár.
Íslensk stjórnvöld fylgjast með
Þórir segir að íslensk stjórnvöld
fylgist vel með málinu þó þau sinni
ekki beinu eftirliti. „Bandaríski
herinn er auðvitað farinn frá Ís-
landi. Við fylgjumst vel með,
vinnum með það sem við höfum
og erum í góðu sambandi við
Norðmenn,“ segir hann og bætir
við: „Þeir hafa ekki verið inni í ís-
lenskri lögsögu mér vitanlega. Við
höfum ekki fengið upplýsingar um
það.“
Rætt hefur verið um að P-3
Orion eftirlitsflugvélar Norð-
manna taki þátt í eftirlitsflugi við
Ísland. Það er ekki komið til fram-
kvæmda og mun að líkindum tak-
markast við eftirlit með yfirborðs-
umferð, samkvæmt upplýsingum
24 stunda.
Ekkert eftirlit
með kafbátum
Rússneskir kafbátar sýna sig aftur við Noreg Ekkert kafbáta-
eftirlitsflug hefur verið við Ísland síðan í febrúar 2004
➤ Undir lok kalda stríðsins varhvergi líklegra að rekast á sov-
éskan kafbát en við Ísland.
➤ 6-7 P-3 Orion kafbátaeftirlits-vélar voru lengi vel á Keflavík-
urflugvelli. Undir lokin voru
þær fjórar.
➤ Veru Orion-vélanna hér lauk 5.febrúar 2004.
KAFBÁTAEFTIRLIT
RÚSSARNIR KOMA
Svalbarði
Noregur
Svíþjóð
Finnland
Rússland
Ísland
Grænland
N o r ð u r - A t l a n t s h a f
N o r ð u r - Í s h a f
Andøy
Keflavíkurflugvöllur
Severomorsk
Flugstöð norska
flughersins
Flotastöð rússneska
hersins
2900 konur hafa dvalið í
Kvennaathvarfinu frá upphafi en
athvarfið fagnar 25 ára afmæli
þann 6. desember næstkomandi.
Af því tilefni stendur athvarfið fyrir
ljósmyndasýningunni Kraftakonur
og óskar eftir myndum af konum á
öllum aldri. „Sýningin verður til-
einkuð þeim 2900 konum sem hafa
dvalið í athvarfinu frá upphafi,
þeim til heiðurs og til að sýna styrk
þeirra og krafti virðingu. Við vilj-
um líka benda þeim konum sem
enn búa við ofbeldi á að til er leið
út úr því,“ segir Sigþrúður Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastýra
Kvennaathvarfsins. Töluvert hefur
safnast af myndum og er öllum
konum sem vilja taka þátt bent á að
senda mynd af sér á netfangið sigt-
hrudur@kvennaathvarf.is eða í
pósthólf 1486, 121 Reykjavík. aak
Sigþrúður Guðmunds-
dóttir Framkvæmda-
stýra Kvennaathvarfsins.
Kvennaathvarfið óskar eftir myndum
Kraftakonur
Kvennaathvarfs
Hylki sem sögð eru innihalda
rautt kóreskt ginseng og eru
merkt Royal Korean Ginseng,
Premium Quality innihalda
hvítt ginsengduft. Þetta hefur
þýsk faggilt rannsóknarstofa
staðfest með þremur rann-
sóknaraðferðum, að því er
greint er frá á vef Neytenda-
samtakanna. Þau hafa óskað
eftir því við Neytendastofu að
dreifingaraðila verði bannað
að markaðssetja eða merkja
vöruna sem rautt ginseng.
Meint vörusvik kærð
Hvítt ginseng
en ekki rautt
Einn þeirra sérfræðinga sem
Matís auglýsti eftir í vor undir
þeim formerkjum að um sér-
fræðistörf til eflingar atvinnu-
lífs á Vestfjörðum væri að
ræða verður staðsettur í
Reykjavík. Í viðtali við bb.is
segir sérfræðingurinn, Jón
Atli Magnússon, það alltaf
hafa verið á hreinu.
Starfar fyrir Vestfirðinga
Staðsettur í
Reykjavík
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Að þessu sinni könnuðu Neytendasamtökin verð á
Létt & laggott í 400 g umbúðum. Munur á lægsta og
hæsta verði er verulegur og er hæsta verð 54,3%
hærra en lægsta verð eða 70 kr.
Verulegur verðmunur
á Létt & laggott
Jóhannes
Gunnarsson
NEYTENDAVAKTIN
Verð á Létt & laggott 400 gr.
Verslun Verð Verðmunur
Kaskó 129
Nettó 131 1,6%
Spar Bæjarlind 175 35,7%
Samkaup-Strax 186 44,2%
11-11 189 46,5%
Mini Market Drafnarfelli 199 54,3%