24 stundir - 27.11.2007, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Kandís? Mandarínur, rauð jóla-
epli, piparkökur eða lestur góðra
bóka? Hvað blæs landanum jóla-
andanum í brjóst?
„Ég fer í jólaskap þegar mamma
gefur mér hafragraut með súkku-
laðidufti stráðu yfir,“ segir rithöf-
undurinn Óttar Martin Norð-
fjörð. „Þetta myndi hún gera á
aðfangadag um eittleytið. Jólaand-
inn kemur yfir mig meðan ég
borða hafragrautinn og horfi á
fréttasamantektir í sjónvarpinu
svolítið illa leikinn eftir gær-
kvöldið.“
Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar-
prestur í Garðaprestakalli, segir
fyrsta sunnudag í aðventu heilaga
stund hjá sér og dýrmæta. „Það er
svo gaman að sjá andlit barnanna
ljóma þegar kveikt er á fyrsta að-
ventukertinu í kirkjunni. Þá vita
þau að jólin nálgast.
Og svo er gott að koma heim og
safnast saman með sinni eigin fjöl-
skyldu við aðventukransinn.
Ekkert er hátíðlegra í mínum
huga en þegar jólin eru sungin inn
með hátíðartóni séra Bjarna Þor-
steinssonar frá Siglufirði á að-
fangadegi. Tónið er að vísu samið
fyrir hetjutenóra og getur vafist
fyrir konu eins og mér með alt-
rödd.
Ég geri mikið til að æfa mig á
aðventunni svo að ég geti sungið á
móti kórnum á aðfangadags-
kvöld.“
Óskar Árni Óskarsson rithöf-
undur segir einfaldleikann marg-
slunginn. „Kyrrðin kallar fram
jólaandann. Ekki er verra að hafa
ábreiðuna, snjóinn yfir öllu.
Stormur úti. Kalt úti og hlýtt inni.
Bók á borði og í höndum.“
Viðmælendur voru sammála
um að annars væri það margt
fleira sem blési þeim jólaandanum
í brjóst. Þetta höfðu aðrir viðmæl-
endur helst að segja:
Jólaandinn fundinn:
1. Verslaðu snemma í jólatíð-
inni. Ekkert kæfir jólaandann
meira en barningur um bílastæði
og þolinmæðislistin sú að þröngva
sér í gegnum manntorfur í stór-
mörkuðum.
2. Óskaðu þeim er þú hittir á
förnum vegi gleðilegra jóla.
3. Losaðu þig við klinkið í
bauka góðgerðasamtaka.
4. Gerðu eitthvað af stakri góð-
mennsku. Passaðu fyrir hárreyttu,
útspýttu hundsskinnin, vin-
ahjónin þín, sem eiga 4 óþekk
börn og komast aldrei út saman.
5. Bjóddu þig fram í sjálfboða-
starf. Gefðu sparifötin síðan í fyrra
til Hjálpræðishersins.
6. Spilaðu falleg jólalög.
7. Horfðu á uppáhalds-
jólamyndina þína með börnunum.
8. Fylltu skál af mandarínum og
kveiktu á reykelsi.
9. Ekki eyða um efni fram.
10. Skrifaðu jólakort til allra
sem þú þekkir.
Hafragrautur móður
Óttars Færir honum
jólaanda kærleiks og
friðar.
Mandarínur, skraut eða kandísmolar?
Rétti jólaandinn
Jólin eiga að vera tími
friðar og kærleika. Rétti
jólaandinn týnist hins
vegar oftar en ekki í öll-
um hamaganginum í des-
ember og þá má finna
ótal skrögga, kaupóða,
ölóða og neikvæða Ís-
lendinga sem hafa villst
frá tilfinningum einlægni
og einfaldrar gleði.
Hvernig er rétti jólaand-
inn fundinn?
24stundir/Sverrir
Hátíðartón séra Bjarna Fyllir brjóstið
af kærleika og gleði.
24stundir/Einar Falur
Jólaandinn er í kyrrðinni Óskar vill
taka sér bók í hönd.
24stundir/Sverrir
„Fjöldi jólapakka innanlands í
fyrra var um 100 þúsund talsins og
við búumst við svipaðri tölu í ár,“
segir Ágústa Hrund Steinarsdóttir,
forstöðumaður hjá Íslandspósti.
„Fjöldi jólapakka út í heim var
um 12 þúsund talsins og voru þeir
að meðalþyngd um 3 kg. Um 70%
af magninu hefur verið til Norður-
landanna og annarra landa innan
Evrópu.
Á þessum tíma er mikil stemn-
ing hjá Póstinum en við bætum
um þriðjungi við starfsmanna-
fjöldann fyrir jólin. Mjög
skemmtilegur annatími fram-
undan og uppáhaldstími ársins hjá
mörgum starfsmönnum.“
Ágústa segir einnig töluvert af
bréfum berast jólasveininum sem
sumir trúa að búi hér á landi frekar
en á norðurpólnum. „Bréf sem
koma alls staðar úr heiminum og
eru stíluð á jólasveininn eru áfram-
send norður í Dimmuborgir í Mý-
vatnssveit þar sem jólasveinninn
situr við skriftir og svarar öllum
bréfum og sendir til baka.“
Síðustu öruggu skiladagarnir
4. des. Jólapakkar til landa utan
Evrópu
7. des. Jólakort til landa utan
Evrópu
12. des. Jólapakkar til Evrópu
14. des. Jólakort til Evrópu
18. des. TNT til landa utan Evr-
ópu
19. des. TNT til Evrópu
19. des. jólapakkar innanlands
20. des. jólakort innanlands
Jólasveinninn svarar bréfum í Dimmuborgum
100.000 pakkar í póstinum
Íslenskt handverk
Tákn heilagrar þrenningar
til styrktar blindum
eymundsson.is
Allskonar
jólagjafi r
Útvarpsönd
Gerir baðferðina
skemmtilegri.
Töskur
Gerðar til að
ferðast. Margar
stærðir og gerðir.
Pennar
Vandaðir
og glæsilegir.
Yndisleg saga um
sannan anda jólanna
Júlíus Júlíusson (www.julli.is)
eftir Júlíus Júlíusson