24 stundir - 27.11.2007, Page 26

24 stundir - 27.11.2007, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Börnum ber aðstoð okkar fyrst og fremst,“ segir Lydía. „Við vinnum að því að frelsa vinnuþrælkuð börn úr skulda- ánauð á Indlandi, útvegum mun- aðarlausum börnum í Úganda öruggt húsaskjól með aðgangi að hreinu vatni, húsbúnað, húsdýr eins og geitur og hænur fyrir fjöl- skylduna, moskítónet og skóladót. Þetta geta Íslendingar nú keypt fyrir börn fyrir lítinn pening hjá Hjálp- arstarfi kirkjunnar. Og gjafirnar hafa afgerandi áhrif á líf þessara barna,“ leggur Lydía áherslu á. Lydía segir Hjálparstarfi kirkj- unnar hafa ákveðið að skipta gjöf- unum í nokkra flokka; börn, ung- menni, húsdýr og jarðrækt og vatn og heilsa. Aðspurð segir Lydía vissulega að ef keypt sé geit þá fái einhver geit. „Þó leyfum við okkur stundum að skipta út gjöfum innan hvers flokks ef mikið er keypt af einu en ekkert af öðru en annars er það meginreglan að gefir þú geit þá skilar hún sér og gleður gjöfin fjöl- skyldur ákaflega. Geitin er lang- vinsælasta gjöfin. Að eignast geit felur í sér ákveðna framtíð fyrir fá- tæka fjölskyldu. Geitur, kýr og hænur gefa mjólk, kjöt, skinn eða egg – og svo af- kvæmi. Það gerir afkomuna trygg- ari en með uppskerunni einni sam- an.“ Athygli vekur að meðal gjafanna leynist ein sem kostar 5000 krónur og ber heitið: Að frelsa barn úr skuldaánauð. „Þessar 5000 krónur sem það kostar að frelsa barn úr skulda- ánauð eru táknræn upphæð,“ segir Lydía og útskýrir nánar: „Við hjá Hjálparstarfi kirkjunnar vinnum með samtökum er kallast Social Action Movement. Samtökin hafa uppi á börnum sem vinna í verksmiðjum í þrælkunarvinnu upp í skuld sem foreldrar barnanna hafa unnið til hjá verksmiðju- eigendum sem sjá sér hag í að veita okurlán með háum vöxtum. Foreldrar barnanna hafa þá tekið lán, sem hefur farið í læknisaðstoð eða mat og vextirnir af þessum lán- um eru svo háir að þeir megna ekki að borga af þeim. Verksmiðju- eigendurnir taka þá vinnu barnanna upp í lánið. Börnin eiga að vinna af þessa skuld. Þau eru sumsé í skuldaánauð. Yfirleitt er skuldin í kringum 2000 íslenskar krónur. Málið er hins vegar ekki einfalt og auðleyst því það tekur um ár að frelsa hvert barn,“ nefnir Lydía. „Ekki er nóg að greiða skuldina upp því það þarf að tryggja að barnið lendi ekki aftur í skulda- ánauð eða þrælkun. Markmiðið er að endurhæfa barnið til náms. Því er eftirfylgnin mikil í þessu verk- efni. Þó er raunkostnaður við að frelsa eitt barn aðeins 5000 íslensk- ar krónur.“ Jólagjafirnar í ár eru til þeirra sem þurfa Saumavélar, skóladót og moskítónet ➤ Geit kostar 2.500 krónur. Geiter bústólpi og tryggir betur fæðuöryggi og fjölbreytni í mataræði. ➤ Saumavél kostar 8.000 krón-ur. Stoppað og stagað og peningarnir rúlla inn. Sauma- vél er atvinnutæki ungrar fá- tækrar stúlku. ➤ Brunnur kostar 150.000 krón-ur. Brunnur er sannkallaður heilsubrunnur og dugar í ára- tugi. GJÖF SEM GEFURHænur, brunnur, moskítónet, saumavél eða heilt hús fyrir mun- aðarlaus börn. Þetta eru jólagjafirnar í ár og þær geta allir keypt fyrir lítinn pening, segir Lydía Geirs- dóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Atvinnutækifæri fá- tækrar stúlku Saumavél kostar 8.000 krónur. Á jólunum er alveg nauðsynlegt að hafa eitthvað sætt til að gæða sér á við bókalestur. Hér eru þrjár gómsætar uppskriftir. Karamellutoppar  1 dl ljóst síróp  1 dl sykur  1 dl rjómi  4 dl kornflögur  1 dl kókosmjöl Síróp, sykur og rjómi eru sett í pott og allt soðið saman við vægan hita í 10 til 15 mínútur. Hærið stöðugt svo blandan verði eins og sósa. Kókosmjöli og kornflögum er svo blandað saman við. Búið til toppa með skeið og setjið á smjör- pappír eða á vel smurða plötu. Kókoskúlur  100 g smjör  1 dl sykur  3 dl haframjöl  2 msk. kakó  ½ tsk. vanilludropar  2 msk. kalt kaffi Setjið allt saman í skál, blandið saman og rúllið í litlar kúlur. Veltið síðan kúlunum upp úr perlusykri eða kókos. Setjið kúlurnar í ísskáp í stutta stund. Hnetusmjörssmákökur  1 1/3 bolli hveiti  1 tsk. natron  ½ tsk. salt  ½ bolli púðursykur  ½ bolli smjörlíki  ½ bolli hnetusmjör 1 egg  2 msk. mjólk  1 tsk. vanilludropar Hrærið saman öllu sem á að fara í deigið. Búið til kúlur úr því og veltið þeim upp úr sykri. Bakið kökurnar í 10 til 12 mínútur við 200°C. Um leið og þið takið kök- urnar úr ofninum stingið þá hálf- um súkkulaðibitum í þær. Dísætar jólauppskriftir Gott í gogginn á jólunum Plast- og trémódel í miklu úrvali ?? jólagjafir HLÝJAR Fyrsta flokks gæði og frábær verð Dúnsængur og koddar í miklu úrvali Bellora since 1883 Milano Laugavegi 87 • símar 551 8740 & 511 2004 LA TRAVIATA GIUSEPPE VERDI Frumsýning 8. febrúar 2008 GJAFAKORT á eina ástsælustu óperu allra tíma www.opera.is – Miðasala 511 4200 Jólagjöf sem jafn gaman er að gefa og þiggja:

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.