24 stundir - 27.11.2007, Page 29
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 29
KYNNING
Verslunin Spilavinir er stór-
skemmtileg verslun sem var
opnuð í október á Langholtsvegi.
Spilavinir er sérverslun með spil,
þrautir og púsluspil. Að sögn
Svanhildar Evu Stefánsdóttur
verslunarstjóra hafa viðtökurnar
verið mjög góðar og margir við-
skiptavinir litið inn. „Fólk er
mjög ánægt með að það sé kom-
in sérverslun með spil sem legg-
ur líka mikla áherslu á fjöl-
skylduspil, fyrir börn og
fullorðna. Fólk kemur því og
þakkar okkur sérstaklega fyrir að
opna búðina. Við erum með spil
frá fyrsta spilaaldri og upp úr,
spil sem eingöngu eru fyrir full-
orðna og spil sem passa mjög vel
fyrir börn. Eins erum við með
spil sem börn hafa gaman af að
spila við hvort annað og spil
sem fullorðnir hafa gaman af að
spila við börnin. Auk þess erum
við með mikið úrval af púslu-
spilum og þrautum,“ segir Svan-
hildur sem býður upp á mjög
góða þjónustu. „Ég kann flest
spilin og kenni því fólki að spila
á spilið sem það fjárfestir í. Oft
tekur langan tíma að lesa sig í
gegnum leiðbeiningar og þá get-
ur verið gott að einhver kenni
manni helstu atriðin og maður
fái tilfinningu fyrir spilinu á 5-
10 mínútum og þá er auðveldara
að lesa sig í gegnum leiðbeining-
arnar. Það er einmitt það sem
krakkar gera dálítið af, koma
hingað eftir skólann og prufa ný
spil. Þannig kynnast börnin líka
nýjum spilum en auk þess hef ég
líka verið að kenna fullorðnum á
stór borðspil og spilastokkaspil,
á borð við rommý og veiði-
mann.“
Spilavinir er ný sérverslun með spil og púsluspil
Kennir fólki að spila
Spilavinir „Fólk er mjög ánægt með að það sé komin sérverslun með spil sem leggur
líka mikla áherslu á fjölskylduspil, fyrir börn og fullorðna.“
Það er alltaf gaman að hafa fal-
legt í kringum sig og framundan
er sá mánuður sem heimili eru
sérstaklega mikið skreytt. Það
tíðkast líka að hafa fallega skreyt-
ingu á jólaborðinu og jafnvel á
hverjum einasta diski. Hér má sjá
einstaklega skemmtilega hug-
mynd þar sem lítið jólatré er sett
á hvern einasta disk. Jólatréð er
mjög einfalt að gerð og það eina
sem þarf í raun er að verða sér úti
um efniviðinn. Til að byrja með
þarf nokkra góða viðarbúta, sem
eru hvorki of þykkir né of þunnir.
Svo má verða sér úti um greni í
flestum blómabúðum og skera
það niður. Þá er borað lítið gat í
viðinn og grenigrein sett þar ofan
í. Vitanlega má ekki gleyma
stjörnunni fallegu svo jólatréð sé
fullkomnað. Þetta jólatré má líka
nota til að geyma sætaskipan og
setja lítinn miða með nafni fyrir
framan hvert tré.
Auðveld borð-
skreyting
Þótt margir Íslendingar virðist
kvarta yfir því að verslanir skreyti
of snemma fyrir jól virðist það
vera sífellt algengara að þeir geri
það sama sjálfir. Á þessu ári mátti
til að mynda sjá skreytingar við
heimili í byrjun nóvember. Þótt
sumum finnist það fásinna þá er
það staðreynd að ljós þessi létta
skapið í skammdeginu og kæta
hjartað. Það á ekki síst við um
börnin sem bíða eftir jólunum
allt árið um kring, þótt biðin
virðist heldur lengjast en hitt þeg-
ar nær dregur jólum. Jólaskreyt-
ingar snúast nefnilega ekki bara
um að telja niður dagana fram að
jólum heldur líka um að létta bið-
ina, gera umhverfi okkar fallegt
og gleðjast hvert með öðru. Þar
sem fyrsti í aðventu nálgast er
ekki langt í að skreytingar verði
komnar við hvert einasta hús og í
hvern einasta glugga og þá er ekki
langt að bíða jólanna.
Skreytt of
snemma?
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646