24 stundir - 27.11.2007, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Hildi Hermóðsdóttur, fram-
kvæmdastjóra bókaútgáfunnar
Sölku, finnst ómissandi að skera
laufabrauð fyrir jólin enda ólst
hún upp við það. „Reyndar
svindla ég aðeins og kaupi kök-
urnar tilbúnar enda hef ég hrein-
lega ekki tíma til að baka þótt ég
hafi gert það áður fyrr. Satt að
segja finn ég engan mun á keypt-
um laufabrauðum og heimabök-
uðum, sérstaklega ekki ef þær
eru keyptar frá góðu bakarí,“
segir Hildur sem er þegar búin
að skera út laufabrauðin í ár.
„Þetta er alveg ómissandi hefð.
Ég reyni alltaf að gera þetta frek-
ar snemma og til dæmis skárum
við út laufabrauðin fyrir tæplega
tveimur vikum. Það kemur tölu-
verð fitubræla þegar laufabrauðið
er steikt en það er ágætt að vera
laus við hana snemma því maður
vill þrífa vel fyrir jólin og losna
við steikingarfýluna.“
Það er ekki bara Hildur sem
sker út laufabrauðin heldur hitt-
ist öll fjölskyldan og gerir það
saman. „Það vanda allir sig heil-
mikið og leggja töluvert í það.
Það er verið að búa til jólastjörn-
ur, rendur, jólatré og þessi hefð-
bundnu laufabrauðsmynstur. Við
skerum reyndar allt út með hníf
og notum ekki járn eins og sum-
ir gera en það tekur lengri tíma
að skera með hníf. Auk þess þarf
maður að passa upp á að laufin
séu hæfilega breið og hæfilega
mikið á ská svo það sé auðvelt að
bretta upp á. Við búum alltaf til
mikið laufabrauð og núna skár-
um við 150 kökur sem skiptust á
þrjá staði. Þetta er mjög hátíðleg
stemning, við erum huggulega
klædd, kveikjum á kertum og
hlustum á jólatónlist. Skurðurinn
byrjar um hádegið og við erum
búin að öllu vel fyrir kvöldmat
og þá er alltaf hangikjöt og laufa-
brauð í boði, svona smá forskot
á jólasæluna.“
Aðspurð segir Hildur að henni
finnist laufabrauðið mjög bragð-
gott. „Svo hef ég og mín fjöl-
skylda þann einkennilega sið að
setja síróp á laufabrauðið,“ segir
Hildur og hlær þegar blaðamað-
ur hváir. „Það eru margir sem
hafa aldrei heyrt um þetta en
það er mjög gott. Ég borða
reyndar ekki síróp með laufa-
brauði þegar ég borða hangikjöt-
ið. Ég tek alltaf laufabrauðið
fram á jólunum og læt það
standa á borðstofuborðinu með
sírópskrúsinni. Þá er voða gott
gott að fá sér bita af laufabrauði
með sírópi, bara svona eins og
snakk.“
Hildur Hermóðsdóttir sker alltaf út laufabrauð fyrir jólin
Laufabrauðið best
með sírópi
➤ Laufabrauð var upphaflegabúið til svo allir fengju að
smakka brauð á jólunum.
➤ Til að brauðið væri sem hátíð-legast var skorið í það fallegt
mynstur.
➤ Víðast hvar á landinu varhætt að búa til laufabrauð á
19. öld en eftir miðja 20. öld
komst það aftur í tísku.
LAUFABRAUÐHildur Hermóðsdóttir er
afkastamikil þegar kemur
að því að skera út laufa-
brauð en hún skar út 150
kökur í ár ásamt fjöl-
skyldu sinni. Laufa-
brauðið borðar hún eins
og snakk en þó með
skvettu af sírópi.
Hildur Hermóðsdóttir: „Þetta er
mjög hátíðleg stemning, við erum
huggulega klædd, kveikjum á kert-
um og hlustum á jólatónlist.“
24stundir/Frikki
Jólahátíðin er svo miklu meira
en bara þessir þrír helstu hátíðis-
dagar því undirbúningur fyrir jólin
er ekki síður skemmtilegur.
Það er svo notalegt að setjast
niður í skammdeginu með fjöl-
skylduna sér við hlið, heitt kakó í
bolla og nostra við alls kyns föndur
og skemmtilegheit. Föndrið er þá í
raun ekki aðalskemmtunin heldur
samveran sjálf. Það er ýmislegt sem
má föndra í sameiningu og það
þarf ekki að vera flókið en er mjög
skemmtilegt.
Einfalt föndur
Útsölustaðir:
Lyfja, Heilsuhúsin,
Fræið Fjarðarkaupum,
Heilsuhornið Akureyri
Blómaval, Árbæjarapótek,
Laugarnesapótek,
Rimaapótek, Lyfjaval,
Maður lifandi,
Hraunbæjarapótek, Fífa og
Sólarsport Ólafsvík.
Cítrushúðolían og sturtugelið
hefur frískandi áhrif á
líkama og sál
Verð frá: kr 2260
Hafþyrnishúðmjólkin og
sturtusápan jafna rakastig
húðarinnar
ávaxtailmur sem kætir
Verð frá kr. 2115
Í fullkomnu jafnvægi með bað
og húðvörum frá Weleda
Gjöf sem gleður
Verð frá kr. 1330
NOTALEGAR VÖRUR
FRÁBÆRAR
JÓLAGJAFIR
GLÆSIBÆ S: 553 7060
MJÓDDINNI S: 557 1291
www.xena.is
Stærðir yfir kálfa: S-M-L-XL-XXL
F
rá
b
æ
rt
ú
rv
a
l
a
f
s
k
ó
m
&
t
ö
s
k
u
m
Mjóddinni & Glæsibæ
Sérverslun með
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Blandarinn sem allir eru
að tala um!
Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Hraðastillir
Lífstíðareign!
Verð kr. 53.974
Uppskriftarbók og DVD
diskur fylgir
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir