24 stundir


24 stundir - 27.11.2007, Qupperneq 36

24 stundir - 27.11.2007, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Ég hef verið í þessum bransa í mörg ár og á undanförnum áratug hafa átt sér stað verulegar breyt- ingar á íslenskri barnalöggjöf,“ segir Dögg og nefnir sem dæmi að við skilnað eða sambúðarslit sé sameiginleg forsjá meginreglan. „Hins vegar eru miklar brotalamir í kerfinu og barnanna og allra vegna þarf að jafna hlut foreldra og koma á raunverulegu foreldrajafn- rétti.“ Auðvelt að tálma umgengni „Samkvæmt lögunum nú getur barn eingöngu haft eitt lögheimili og það foreldri sem hefur barn skráð hjá sér hefur sterkari stöðu en hitt. Það foreldri getur auðveld- lega torveldað umgengni hins for- eldrisins við barnið. Þá er mik- ilvægt að bæta úr því að í dag er ekki heimild fyrir dómara til að dæma sameiginlega forsjá en slíka heimild er að finna í löggjöf allra nágrannaríkja okkar. Með þessari breytingu, sem ég tel gríðarmik- ilvæga, er strax hægt að skapa já- kvæðari aðstæður fyrir barnið sem deilt er um, að því gefnu að báðir foreldrar séu hæfir.“ Harðar refsingar í Frakklandi „Þá er mikilvægt að breyta gam- aldags viðhorfum er ríkja um börn og uppeldi í samfélaginu. Traust tengsl við báða foreldra eru mik- ilvæg og það sterka mæðraveldi sem ríkir á Íslandi er ekki endilega börnunum fyrir bestu. Feður sem vilja og geta tekið þátt í uppeldi barna sinna eiga að fá að gera það án þess að vera hindraðir af mæðr- um barna sem leggja eign sína á þau. Í Frakklandi liggur hörð refsing við því að tálma umgengni við barn að ástæðulausu. Foreldri með forræði, sem hindrar eðlileg tengsl milli barns síns og hins foreldr- isins, er hreinlega stungið í fangelsi brjóti það umgengnisúrskurði. Stundum held ég að það þurfi hörð viðurlög, eins og þessi í Frakklandi, til að sporna við brot- um sem þessum.“ Álag á sifjadeild um hátíðir Eyrún Magnúsdóttir, deild- arstjóri í sifjadeild hjá Sýslumann- inum í Reykjavík, segir vinnuálag á deildinni aukast mikið í desember. „Foreldrar sem fá ekki samvistir við barn sitt yfir jólin geta leitað til okkar og fengið úrskurð sem hitt foreldrið skal hlíta.“ Aðspurð segir Eyrún starfið vissulega erfitt. „Annars væri ekki jafnmikils virði að sinna því,“ bæt- ir hún við. „Gífurlega margir for- eldrar deila um börn sín og þau finna fyrir því. Sættir eru mik- ilvægar til að báðir foreldrar nái sem fyrst áttum eftir skilnað. Það er börnunum fyrir bestu að báðir foreldrar séu í góðu jafnvægi. Vel heppnuð sáttagjörð er því mik- ilvæg börnunum.“ Dagsektir og innsetning „Þegar öll sund eru lokuð leita foreldrar til okkar um úrræði,“ segir Eyrún. Fyrst er hægt að leggja fram beiðni um að úrskurðað verði um umgengni og dæmi eru um að fólk leggi fram slíkar beiðnir ein- göngu vegna hátíðanna. Ef úr- skurðinum er ekki hlítt er fyrsta úrræði að biðja um að dagsektum sé beitt. Ef það úrræði dugar ekki og jafnvel er búið að gera fjárnám vegna dagsektanna má biðja dóm- ara um að beita innsetningu. Það er bein aðfarargerð. Sýslumaður afhendir barnið með beinni aðfar- argerð því foreldri sem á að fá um- gengni við það.“ Verðum að jafna hlut foreldra í uppeldi barna sinna Illdeilur yfir hátíðarnar Jól og hátíðir eru sá tími þegar foreldrar deila hvað mest um samveru með börnum sínum. „Við þurfum að jafna hlut foreldra,“ segir Dögg Pálsdóttir lögmaður, sem nýlega lagði til breyt- ingar á barnalögum sem eru í takt við þróun á Norðurlöndum. Börnin eiga að fá frið Til að njóta jólanna með báðum foreldrum í ró og sátt. Um hátíðarnar upphefjast oft mikil og hörð átök milli skilinna foreldra um hvar barnið skuli vera um hátíðarnar og gleymast oft hagsmunir barnsins í barningnum. Dr. Urður Njarðvík hjá Barna- sálfræðistofunni leggur áherslu á að foreldrar leggi til hliðar deilur og ágreining um jólin og einbeiti sér að því að skapa barninu tæki- færi til að njóta hátíðanna í friði og ró. Óvissa veldur kvíða Það er ákaflega mikilvægt að skipuleggja jólahaldið og um- gengni foreldra með góðum fyr- irvara svo barnið upplifi ekki óvissu um hvar það eigi að vera hverju sinni. Mörg börn sýna al- varleg kvíðaeinkenni vegna deilna foreldranna um uppeldi þeirra og búsetu. Börn hafa þörf fyrir stöð- ugleika. Þetta má koma í veg fyrir með því að skipuleggja umgengni foreldranna vel og tímanlega og virða þann sjálfsagða rétt barnsins að standa fyrir utan deilur foreldra sinna. Foreldrar eru fjölskylda Samtöl foreldra um þessi mál ættu ekki að fara fram í viðurvist barnsins og barnið á ekki að þurfa að bera skilaboð milli foreldra eða finna sig knúið til að standa með öðru foreldrinu í deilum. Þótt for- eldrar ákveði að skilja halda þeir áfram að vera fjölskylda barnsins og barnið á rétt á að elska báða foreldra sína eins og áður. Barn á rétt á því að elska báða foreldra sína Leggið ágreininginn til hliðar! kryddið. Rúllan er hituð í ofni við 180-200°C þangað til osturinn er bráðinn. Passið að setja álpappír undir rúlluna áður en hún fer í ofninn. Camembert-réttur ½ matarbrauð 1 stk camembertostur ¼ rjómi 1-2 paprikur, t.d. græn og gul 1 skinkubréf Takið skorpuna af brauðinu, ríf- ið það niður og raðið í eldfast mót. Bræðið ostinn og rjómann saman og hellið yfir brauðið. Saxið skinku og papriku niður og látið ofan á. Bakið réttinn við 200°C í um það bil 30 mínútur. Gott er að bjóða upp á rifsberjahlaup með. Á jólunum þegar allt flæðir í sykri getur verið gott að fá sér eitt- hvað ósætt. Heitt rúllubrauð 1 rúllutertubrauð (fæst frosið) 1 skinkubréf 1 dós grænn aspas (geymið vökvann) 1 box sveppasmurostur 2-3 msk. súrmjólk 2 msk. majónes paprikuduft rifinn ostur Hitið smurostinn og u.þ.b. 1 dl af aspassoði saman í potti. Skerið aspasinn og skinkuna í bita og setj- ið út í. Smyrjið á brauðið og rúllið því upp. Hrærið súrmjólkinni og majónesinu saman og smyrjið á rúlluna. Setjið rifinn ost yfir og Fyrir þá sem vilja hvíla sig á sykrinum Brauðréttir, alltaf klassískir Brauðréttir Gott er að brjóta upp kökuátið um jólin með ljúf- fengum brauðréttum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.