24 stundir - 27.11.2007, Side 37
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 37
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
„Við finnum fyrir mikilli aðsókn
þegar nær dregur jólum og okk-
ur finnst nú þegar vera aukning
frá því sem var í fyrra,“ segir
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir,
formaður Mæðrastyrksnefndar.
„Okkur finnst komum öryrkja
hafa fjölgað en eins koma að-
allega til okkar einstæðir for-
eldrar, eldri borgarar og ein-
stæðir karlmenn. Þetta er
þverskurðurinn af þjóðinni má
segja. Hingað kemur fólk einna
helst til þess að fá mataraðstoð
en svo er einnig heilmikið af föt-
um hérna sem fólk hefur tæki-
færi til að máta og fá án endur-
gjalds þannig að það er ýmislegt
að gerast.“
Þarf meira af vörum
„Undirbúningurinn byrjar hjá
okkur í september. Það þarf að
huga að svo mörgu þegar svona
stóru verkefni er sinnt, þannig
að við byrjum snemma. Það þarf
meira af vörum og meiri mat en
venjulega og því þarf að horfa til
fleiri aðila eftir styrkjum.“
Að sögn Ragnhildar eru marg-
ir tilbúnir að rétta hjálparhönd
um jólin. „Margt fólk sýnir vel-
vild og er gjöfult fyrir jól. Fólk
er greinilega að hugsa um að
láta gott af sér leiða á þessum
tíma.“
Aðstæður margra bágar
„Það þarf að benda stjórn-
völdum á að standa við stóru
orðin, það er full þörf á því að
skoða aðstæður þessa fólks sem
hingað kemur. Þær eru sums
staðar mjög bágar og oft er erfitt
að horfa upp á þetta.“
Hjá Mæðrastyrksnefnd er opið
alla miðvikudaga og er matur af-
greiddur frá 14 til 17. „Hér eru
líka ýmsar smávörur sem fólk og
fyrirtæki hafa sent til okkar.
Hin eiginlega jólaúthlutun
hefst svo þann 18. desember og
stendur til 20. desember, en út-
hlutunin fer fram í Sætúni 8.
Þar verðum við með úthlutun á
matvælum fyrir jólin ásamt
Hjálparstarfi kirkjunnar en ann-
ars erum við venjulega með út-
hlutun á miðvikudögum.“
Úthlutun matvæla Fjöldi
leitar til Mæðrastyrks-
nefndar fyrir hver jól.
Stjórnvöld þurfa að standa við stóru orðin
Aukin aðsókn
um jólin
Það eru margir sem eiga
um sárt að binda um jólin
og ekki geta allir gert vel
við sig í mat og drykk.
Mæðrastyrksnefnd reynir
að aðstoða þá sem helst
þurfa á hjálp að halda.
➤ Úthlutun Mæðrastyrks-nefndar á mat, fatnaði og
öðrum vörum fer fram á mið-
vikudögum í Hátúni 12 á milli
14 og 17.
➤ Jólaúthlutun hefst þann 18.desember og stendur til 20.
desember í Sætúni 8.
MÆÐRASTYRKSNEFND
24stundir/Eyþór
Íslendingar halda fast í jólahefð-
irnar. Á sumum heimilum getur
komið upp ákveðin togstreita þeg-
ar jólin eru haldin saman í fyrsta
skiptið. Fólk sem hefur sambúð
hefur jafnvel alist upp við ólíkar
hefðir og hvorugur vill undan láta.
Gefið eftir
Til þess að jólahátíðin leysist
ekki upp í leiðindi vegna þess að
fólk getur ekki komið sér saman
um hvaða hefðir skulu hafðar í
hávegum er langbesta ráðið að
skapa sér sínar eigin. Borðið eitt-
hvað á aðfangadag sem hvorugur
er vanur að snæða eða þá að ann-
ar gefi eftir og fái að ráða forrétti
og eftirrétti. Sumir hafa vanist því
að skreyta tréð á Þorláksmessu á
meðan aðrir vilja vera tímanlega
og gera það fyrr í desember. Þá er
um að gera að fara milliveginn og
komast að samkomulagi um ann-
an dag. Með tímanum skapast
nýjar jólahefðir sem báðir aðilar
koma til með að móta. Eins má
taka upp þær hefðir sem eru báð-
um sérstaklega kærar og er um að
gera að gefa eftir og kynnast sið-
um og venjum annarra.
Togstreita í jólaundirbúningnum
Að halda of fast í hefðir
KRINGLUNNI 8-12, 103 REYKJAVÍK - SÍMI 553 2002
LAUGAVEGI 4, 101 REYKJAVÍK - SÍMI 552 2030
www.lush.is
fyrir alla