24 stundir - 27.11.2007, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
Gleði og hátíðleg eftivænting
fylgir því að virða fyrir sér fagra og
listilega skreytta konfektmola sem
bornir eru fram með sterkum og
sterkilmandi kaffisopa eftir vel-
heppnaða sælkeramáltíð. Molana
skal borða sparlega og bera fram
eins og um gull sé að ræða.
Hér á eftir kemur einföld upp-
skrift úr smiðju Hafliða Ragn-
arssonar, bakara- og konfektmeist-
ara í Mosfellsbakaríi í Mosfellsbæ.
Fylltar súkkulaðiskálar
2,5 desilítrar rjómi
15 stjörnuanísar
330 grömm súkkulaði
60 grömm smjör
súkkulaðiskálar
ljóst súkkulaði í spónum
Rjóminn er látinn sjóða í potti
og anísinn hafður með í suðunni.
Súkkulaðið er sett í skál og
rjómanum hellt í gegnum sigtið til
þess að sigta anísinn frá. Síðan er
því sem eftir er af rjómanum hellt í
gegnum sigtið í skálina en hrært
þar til blandan er orðin að fullu
jöfn. Smjörinu er bætt í. Það á að
vera við stofuhita og er því hrært
saman við annað í skálinni jafnótt
og það bráðnar.
Súkkulaðiskálarnar er til dæmis
hægt að kaupa í betri bakaríum.
Þeim er raðað upp á smjörpappír.
Súkkulaðimassinn er settur í
sprautupoka með sléttri túðu.
Massinn má ekki vera of heitur því
þá getur verkið endað illa og hann
brætt skálarnar. Massanum er
sprautað sem fyllingu í hverja skál
þannig að hann fylli þær.
Ljóst súkkulaði er skorið í spæni
og þeim sáldrað ofan á fyllinguna í
súkkulaðiskálunum til skrauts og
líka til þess að gefa bragð.
Fagurlega skreyttir Konfektmolar sem
skal borða sparlega í skál á jólatíð
24 stundir/Arnaldur
Úr smiðju Hafliða Ragnarssonar
Ljúfmetismolar sem
bráðna í munni
Íslendingar hafa löngum sótt
mataruppskriftir til Danmerkur
enda er matarsmekkur þjóðanna
líkur. Þá fóru margar íslenskar
húsmæður á húsmæðraskóla í
Danaveldi á árum áður og komu
þaðan með ýmsar kræsingar sem
fengið hafa sess í íslenskri matar-
gerð. Meðal þess eru svínaham-
borgarhryggur og rifjasteik með
puru, ýmsir eftirréttir og tertur.
Danir elda góðan mat og danska
rifjasteikin þeirra er mjög vinsæl á
aðventunni og um jólin. Til að
rifjasteikin heppnist þarf að gæta
að eldamennskunni. En hér kemur
góð uppskrift frá frændum okkar,
Dönum.
Uppskriftin er miðuð við sex.
Dönsk rifjasteik
1 ½ kg svínahryggur
3 tsk. gróft salt
5 dl vatn
2 msk. ferskt rósmarín eða 1-2
tsk. þurrkað
1. Skerið rendur þvers í puruna
með beittum hnífi. Skerið niður að
kjöti með um það bil ½ cm milli-
bili.
2. Stráið grófu salti í sárið.
3. Leggið svínahrygginn á grind
á bökunarplötu. Hellið sjóðandi
vatni yfir og setjið rósmarín í vatn-
ið til að fá gott bragð af sósunni.
Það má nota fleiri kryddjurtir, t.d.
steinselju, timjan, basil eða eitt-
hvert annað gott krydd.
Stingið svínahryggnum inn í
200°C heitan ofn og látið hann
steikjast í um það bil 1 ½ klukku-
stund eða eftir stærð hans. Gott er
að nota kjöthitamæli og þegar
hann sýnir 70°C er kjötið tilbúið.
Ef puran er ekki nægilega stökk má
auka hitann upp í 250°C eða setja
undir grillið í smástund.
4. Látið kjötið hvíla í 15-20 mín-
útur áður en það er skorið. Þá
eykst hitinn í kjötinu upp í 75°C
og það verður safaríkt og gott.
5. Berið kjötið fram með soðn-
um eða sykurbrúnuðum kart-
öflum, sveppum, steiktum eplabát-
um, rauðkáli og soðsósu.
ATH! Oft er hægt að biðja kjöt-
kaupmanninn að skera út puruna
og gera hrygginn tilbúinn til eld-
unar og það er um að gera að nýta
sér það.
Dönsk rifjasteik er uppáhald margra
Ljúffengt á jólaborðið
Dönsk rifjasteik Margar
húsmæður elda slíka
steik á aðventunni.