24 stundir - 27.11.2007, Síða 49
Þráinn Bertelsson. „Ef við breyttum eiturlyfjavand-
anum í eiturlyfjadjöful sem kæmi einu sinni á ári til Ís-
lands og heimtaði af okkur hundrað ungmenni þá yrði
okkur brugðið.“
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
„Ég vildi leggja mikið upp úr
skemmtanagildinu til þess að
geta sjálfur komist í gegnum
bókina. Það hafa ekki allir gam-
an af sömu hlutunum en ég hef
svo almennan smekk fyrir því
hvað er skemmtilegt að það sem
skemmtir mér skemmtir mjög
mörgum öðrum. Ég get ekki
skrifað bók án þess að setja inn í
hana eitthvað sem skemmtir
mér,“ segir Þráinn Bertelsson um
hina viðburðaríku og spennandi
sakamálasögu sína Engla dauð-
ans. „Mér fannst erfitt að skrifa
þessa bók. Hún er ákveðið upp-
gjör því ég hef kynnst fíkn frá
mörgum hliðum, verandi fíkill
sjálfur og fólk í kringum mig
hefur lent illa í fíkn. Mér fannst
ég verða að skrifa um þetta
vandamál. En það má heldur
ekki gleymast að jafnvel þótt
maður sé sorgmæddur og sé að
upplifa erfiða hluti þá gerist eitt-
hvað skemmtilegt á hverjum
degi. Maður heyrir skemmtilega
setningu og sér eitthvað fallegt.
Þannig að lífið er aldrei bara
svart mjög lengi. Það finnast allt-
af litbrigði.“
Breytingar á leifturhraða
Einhverjir myndu kannski segja
að þetta væri of reyfarakennd bók
fyrir Íslendinga.
„Ábyggilega. Þegar eitthvað
gerist loksins á Íslandi þá gerist
það mjög hratt og á reyfara-
kenndan hátt. Á öldinni sem leið
reyndi ég að skrifa reyfara. Ég
skrifaði hann undir dulnefni.
Hann heitir Tungumál fuglanna
og fjallar um blaðamenn og póli-
tík og pólitíska glæpi. En þá var
ekki jarðvegur fyrir reyfara því
glæpirnir í þjóðfélaginu voru svo
saklausir. Það voru barsmíðar í
fylliríi, innbrot í fylliríi - minni-
háttar fyllirísógæfa. Svo breyttist
allt leifturhratt. Á þessu nýbyrj-
aða árþúsundi stöndum við uppi
með glæpastarfsemi sem er full-
komlega sambærileg við það sem
gerist hjá öðrum þjóðum.
Fólki kann að finnast bókin
reyfarakennd en svona er þetta.“
Enginn gerir neitt
Viltu breyta einhverju með
þessari bók?
„Ég vil deila mínum upplif-
unum og vangaveltum með öðr-
um og fá fólk til að hugsa um
eiturlyfjavandann. Við erum á
móti eiturlyfjum en enginn gerir
neitt. Þetta kostar mannfórnir. Ef
við breyttum eiturlyfjavandanum
í eiturlyfjadjöful sem kæmi einu
sinni á ári til Íslands og heimtaði
af okkur hundrað ungmenni þá
yrði okkur brugðið þegar við
ættum að smala þessum ung-
mennum saman og velja þau. En
af því við veljum ekki ungmenn-
in heldur gerir djöfullinn það
sjálfur, og velur þau ekki í einum
hóp á einu augnabliki heldur hér
og þar í myrkri þegar við sofum,
þá látum við honum haldast
þetta uppi.“
Umfjöllunin um þessa bók hef-
ur verið á þá leið að hún sé
hrottaleg, en það er húmor í
henni.
„Íslendingar hafa lengi ruglað
saman alvörugefni og gáfum. En
auðvitað er það þannig að það
eru gáfur og kímnigáfa sem fara
saman. Hér á landi þykir ekki
við hæfi að fjalla um alvarleg
efni nema með gífurlega
þungbúinni og í raun kjánalegri
alvöru.
Mannleg heimska er mjög al-
varlegur hlutur en hún er líka
sprenghlægileg.“
Þráinn Bertelsson með nýja glæpasögu
Heimsókn eiturlyfjadjöfulsins
➤ Þráinn Bertelsson hefur gertfjölmargar kvikmyndir, þar á
meðal Jón Odd og Jón Bjarna
og Nýtt líf.
➤ Fyrsta skáldsaga hans,Sunnudagur, kom út árið
1970.
➤ Hann skrifar vinsæla pistlafyrir Fréttablaðið meðfram
öðrum ritstörfum sem eru
hans aðalstarf.
MAÐURINNEnglar dauðans er glæpa-
saga eftir Þráin Bertels-
son þar sem hann fjallar
um eiturlyfjavandann.
Hann segir bókin vera
ákveðið uppgjör.
24stundir/Ásdís
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 49
MENNINGARMOLINN
Storm lægir
Bókaforlagið Útkall hefur sent
frá sér bókina Útkall - þyrluna
strax eftir Óttar Sveinsson.
Langerfiðasta útkall sem þaul-
reynd áhöfn TF-LÍF hefur lent
í var rétt sunnan við Sand-
gerði fyrir síðustu jól, þegar
sjö aðframkomnum Dönum
af varðskipinu Triton var
bjargað með ævintýralegum
hætti úr allt að átta metra
háum öldum – á við þriggja
hæða hús. Í þessari bók lýsir
áhöfn TF-LÍF og Danirnir
sjálfir í fyrsta skipti opin-
berlega því sem gerðist.
Nýtt útkall
Útkall sendir
frá sér fjórar
Doddabækur
eftir Enid Bly-
ton: Hjól
handa Eyrna-
stórum,
Skoppihætta í
Leikfangalandi og Stormur í
Leikfangalandi.
Einnig er komin glæsileg
Dodda-púsluspilabók, Doddi
og hjólaskautarnir (ein saga
og sex púsl).
Þýðandi Doddabókanna er
Guðni Kolbeinsson.
Einnig er kominn út DVD-
diskur með átta Doddaþáttum
með íslensku tali.
Doddi
snýr aftur
AFMÆLI Í DAG
Jimi Hendrix poppgoð,
1941
Bruce Lee leikari, 1940
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Það skelfilega við að vera ríkur er
að þurfa að hafa samskipti við
annað ríkt fólk.
Logan Pearsall Smith
Á þessum degi árið 1703 lægði storm sem hafði
geisað á Englandi í um tvær vikur. Tölur um látna eru
á reiki en nefndar eru tölur á bilinu 10.000 - 30.000
manns. Lægri talan er þó sennilega nær lagi. Mesti
mannskaðinn varð þegar 300 herskip týndust á hafi
úti með 8000 skipsverjum. Á landi tókust dýr á loft,
tré rifnuðu frá rótum og áin Thames flæddi yfir bakka
sína. Rúmlega 5000 hús í nágrenni árinnar eyðilögð-
ust.
Rithöfundurinn Daniel Defoe varð vitni að hörm-
ungunum. Hann var gjaldþrota og hafði nýlega verið
sleppt úr fangelsi sem hann sat í vegna skrifa um kirkj-
unnar menn, sem yfirvöld kölluðu „æsingaskrif“.
Óveðrið varð Defoe uppspretta innblásturs og hann
skrifaði um það sína fyrstu bók, The Storm, sem kom
út árið eftir. Hann öðlaðist síðar mikla frægð fyrir
skáldsögu sína Robinson Crusoe. Sigurboginn - Laugaveg 80 - Sími 561 1330 - www.sigurboginn.is
M
IK
Ið
Ú
R
VA
L
AF
P
EY
SU
M
PR
JÓ
N
AK
JÓ
LA
R
N
IR
K
O
M
N
IR