24 stundir - 27.11.2007, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Forysta HSÍ hefur af þessu nokkrar áhyggjurog
menn þar íhugað þá stöðu sem upp gæti komið fyrr
en síðar að efstu deildir karla og kvenna verði eingöngu
skipaðar félögum af stór-Reykjavíkursvæðinu.
Staðan er ekkert sérstaklega
björt fyrir landsbyggðarlið í hand-
boltanum í dag hvort sem litið er
til karla- eða kvennadeildar. Sigur-
laus botnliðin í hvorum flokki fyrir
sig í dag, ÍBV og Akureyri, eiga það
sameiginlegt að vera utan af landi.
Forysta Handknattleikssam-
bands Íslands hefur af þessu
nokkrar áhyggjur og menn þar
íhugað þá stöðu sem gæti komið
upp fyrr en síðar að efstu deildir
karla og kvenna verði eingöngu
skipaðar liðum frá Stór-Reykjavík-
ursvæðinu.
Einar Þorvarðarson fram-
kvæmdastjóri segir þessa þróun af-
ar dapra en vonast til að úr rætist.
„Þarna er um að ræða ÍBV og Ak-
ureyri. Hjá Vestmannaeyingunum
er allt íþróttastarf erfitt, sam-
göngur daprar og þeir missa marga
leikmenn upp á land hvert ár. Fyrir
norðan hefur sameining KA og
Þórs ekki tekist alveg sem skyldi
hverju sem um er að kenna en ég
vona að um tímabundin vand-
kvæði sé að ræða og það lið skipi
sér aftur á bekk með bestu liðum
fljótlega.“ albert@24stundir.is
Landsbyggðarfélög eiga undir högg að sækja
Einsleit flóra í handbolta
Enski miðillinn News ofthe World sem fer seint ímetabækur fyrir hundr-
að prósent
áreiðanlegt efni
telur sig hafa
heimildir fyrir
því að Jose
Mourinho
muni leysa
Rafa Benítez af sem þjálfari
Liverpool í sumar. Eini flugu-
fóturinn fyrir sögunni er að
Rafa er súr og svekktur og
bandarískir eigendur liðsins
fúlir með lætin í Spánverjanum
eftir að þeir drógu í land með
peningaupphæðirnar sem karl-
inn átti að fá til leikmanna-
kaupa.
Eggert Magnússyni varðekkert ágengt fyrir höndWest
Ham United en
forseti Leyton
Orient rúllaði
upp samn-
ingum með
annarri hendi.
Leyton Orient
mun fá enska Ólympíu-
leikvanginn afhentan undir
starfsemi sína eftir að leikunum
2012 í London lýkur en stað-
urinn var eftirsóttur mjög af
stærri félögum enda fasteigna-
og lóðaverð í höfuðborginni
með eindæmum hátt og því
mikið vatn á myllu þriðju
deildar liðsins.
David Beckham ætlaráfram að leika listirsínar
fyrir enska
landsliðið í
framtíðinni að
eigin sögn. Tel-
ur hann sig hafa
ýmislegt fram
að færa þó leikir
hans með LA Galaxy í vetur gefi
lítið tilefni til að ætla slíkt.
Fabio Capello verður næstistjóri Englands ef markamá fregnir frá Ítalíu.
Hefur enska knattspyrnu-
sambandið þegar boðið honum
fjögurra ára samning.
Hinn 36 ára gamli Pete Sam-
pras, sem telst til elstu manna
í tennisheimum, gerði sér lítið
fyrir og sigraði hinn ósigrandi
Roger Federer í sýningarleik í
Asíu um helgina.
Sampras hefur ekki spilað sem
atvinnumaður í fjögur ár en
hefur í sig og á og vel það með
sýningarleikjum á borð við
þennan sem færa honum tvö
hundruð milljónir í aðra hönd
og Guð má vita hvað í hina.
Aldnir hafa
orðið
Fernando Alonso hefur fundið
sannan drykkjufélaga í Kól-
umbíumanninum Juan Pablo
Montoya en báðir hafa
hrökklast frá McLaren Merce-
des-liðinu í Formúlu 1 eftir
einelti og leiðindi að sögn
Montoya. Sendir hann Spán-
verjanum skilningsfullar sam-
úðaróskir en Montoya reynir
sem kunnugt er fyrir sér í
bandaríska Nascar-kappakstr-
inum.
Niður með
McLaren
Gamalt bros tók sig upp um
helgina hjá hinum fráskilda
og þrautleiðinlega Colin
Montgomerie sem jafnan situr
einn á jólahlaðborðum at-
vinnukylfinga. Vann hann
heimsbikarinn í golfi ásamt
Marc Warren félaga sínum
fyrir hönd Skotlands eftir
bráðabana við Bandaríkja-
menn sem leitt höfðu mestallt
mótið.
Über alles
Íþróttabandalag Reykjanes-
bæjar kom, sá og sigraði á Ís-
landsmótinu í 25 metra laug
sem haldið var um helgina.
Tók lið þeirra alls 47 verðlaun
á mótinu, þar af 20 gull, og
skildi önnur lið eftir í kjalsog-
inu. Sundfélagið Ægir kom
næst þeim með „aðeins“ 23
verðlaun.
Bakkafullt
SKEYTIN INN
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Það er líklega engin tilviljun að best
sóttu blakmót landsins eru öld-
ungamót sem haldin eru nokkuð
reglulega en tvö mót standa þar
upp úr hvað þátttakendafjölda
varðar; árlegt Öldungamót Blak-
sambandsins og Haustmót KA á
Akureyri en það mót fór fram um
helgina.
Fjöldinn helgast að líkindum af
því að blakíþróttin var vinsælli hér
áður en nú virðist raunin en einnig
af þeirri staðreynd að blak er með
góðu móti hægt að stunda vel fram
eftir aldri.
Sem fyrr var kvenfólkið fjöl-
mennara á mótinu og komu ellefu
kvennalið alls staðar að af landinu
auk átta karlaliða. Tæplega 200
manns komu nálægt mótinu með
einum eða öðrum hætti.
Ekki var neinn sigurvegari
krýndur á mótinu enda er það ekki
hefðin heldur er gamanið í fyrir-
rúmi og mótið kórónað með
veisluhöldum á laugardagskvöldið.
Öldungamótin í blakinu jafnan vinsælustu mót vetrarins
Blakað með bros á vör
Aldur afstæður Fólk á ýmsum
aldri tók þátt og fórnaði sér
hikstalítið fyrir lið sín
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Opið sunnudaga til fimmtudaga
11.00 -24.00
Opið föstudagaoglaugardaga
11.00 - 02.00