24 stundir - 27.11.2007, Side 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 24stundir
„Ég frétti að FL Group ætlaði
ekki að láta deigan síga, þrátt fyr-
ir umhleypinga á markaði vegna
óróa, hækkandi fjármagnskostn-
aðar og lausafjárþurrðar. Félagið
hefur víst fjárfest í gríðarstórum
turni í París, höfuðborg Frakk-
lands, og nefnt hann FL-
turninn.“
Ívar Páll Jónsson
nosejob.blog.is
„Eymundsson í Kringlunni selur
kvikmynd sem utan á hulstrinu
er sögð vera „ögrandi, skemmti-
leg og beinskeytt mynd“.
Kvikmyndin sem um ræðir var
sýnd á Bíódögum Græna ljóssins
síðla sumars og er bönnuð börn-
um yngri en 18 ára.“
Guðbjörg Hildur Kolbeinsdóttir
kolbeins.blog.is
„Það hringdi í mig maður, kurteis
en þó í skotþungu skapi. Hann
hafði verið að horfa á myndina
um Óbeislaða fegurð. Í einu at-
riði myndarinnar sést þegar ég er
að stela nokkrum trjágreinum í
húsgarði í Hnífsdal nálægt félags-
heimilinu. Þetta er auðvitað al-
rangt, húsið er í einkaeign.“
Matthildur Helgadóttir
matthildurh.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Eftir lokun vefsíðunnar torrent.is,
þar sem netverjar gátu nálgast af-
þreyingarefni til niðurhals, hafa
þrjár aðrar slíkar vefsíður sprottið
upp. Ómar Daði Sigurðsson er
skrifaður fyrir síðunni dci.is, en
hann segist ekki ætla að halda
rekstri hennar áfram.
Hræðist ekki SMÁÍS
„Það er ekki vegna þess að við
séum eitthvað hræddir við SMÁÍS
heldur vegna þess að vesenið er
bara svo mikið í kringum þetta. Við
ætlum að gefa lénið og þá munum
við ekki lengur stjórna síðunni.
Hvenær þetta gerist veit ég ekki
með vissu,“ sagði Ómar og bætti
við: „Mér finnst líka SMÁÍS ganga
of langt í þessu máli öllu. Þeir
hefðu betur gengið að samninga-
borðinu því þá horfði málið öðru-
vísi við. Ef notendur borguðu til
dæmis 1000 krónur á mánuði gegn
ótakmörkuðu niðurhali þá myndi
það skila sér í ágætis
tekjum. En við erum líka með
lögfræðinga og teljum okkur
standa réttum megin við lögin.“
Ómar segir að mistök torrent.is
hafi verið að rukka notendur sér-
staklega fyrir greiðari aðgang.
Þannig sé það ekki hjá honum.
Ómar kannast ekki við að með at-
hæfinu sé hann að hafa fé af lista-
mönnum. „Ég get ekki gengist við
því.“
SMÁÍS gefst ekki upp
Í gær voru rúmlega 12.000 not-
endur á dci.is og hafði fjöldinn
meira en tvöfaldast frá því fyrir
helgi.
Snæbjörn Steingrímsson hjá
SMÁÍS sagðist vita af vefsíðunum
og þær væru næstar í röðinni.
„Þessar síður verða líka teknar fyrir.
Það er einhver misskilningur í gangi
hjá þessum mönnum um að þetta
sé löglegt. Þeir bulla um að hér gildi
íslensk lög en ekki bandarísk og þá
er hálfur sigur unninn hjá okkur,
því ég tek undir þessi orð þeirra.
Hér gilda einmitt íslensk lög!“ segir
Snæbjörn.
Hann segir að aðgerðaleysi lög-
gæslumanna megi ekki túlka þannig
að ekki séu til nein lög um viðkom-
andi mál. „En sökum aðgerðaleysis
höfum við þurft að höfða einkamál
sem er mjög kostnaðarsamt fyrir
okkur. Og vinnum við málið þá er
ekki þar með sagt að vandamálið
hverfi á einni nóttu. Við þurfum og
munum fara á eftir einstaka not-
endum, sem hafa hlaðið upp efni en
ekki niður, því þeir bera ábyrgð á
öllu niðurhali annarra.“
Málið verður tekið fyrir þann 12.
desember.
Niðurhal á netinu nýtur mikilla vinsælda
Hart barist um
höfundarréttinn
Lokun torrent.is virðist
hafa lítið að segja í bar-
áttunni gegn ólöglegu
niðurhali því þrjár aðrar
slíkar síður hafa sprottið
upp í kjölfarið. SMÁÍS
ætlar að skoða málið.
24 Stundir/Kristinn Ingvarsson
Bannað? Ekki eru allir á
eitt sáttir um torrent-síður.
➤ Torrent þýðir: Stríðurstraumur eða flaumur.
➤ Torrent-síður eru vettvangurnetverja til að nálgast efni og
dreifa því til annarra.
➤ Síðurnar sjálfar eru almenntekki ólöglegar, heldur athæf-
ið sem þar fer fram, sem varð-
ar við höfundarréttarlög.
TORRENT-SÍÐUR
HEYRST HEFUR …
13 starfsmönnum sem störfuðu við innlenda dag-
skrárgerð hjá Skjá einum var sagt upp fyrir helgi.
Óttuðust þá einhverjr að spjallþáttur Þorsteins
Guðmundssonar, Svalbarði, yrði sleginn af í kjöl-
farið, en hann er væntanlegur á dagskrá á næsta ári.
Nú heyrist að dagskrárstefna Skjás eins sé ekki
breytt og Þorsteinn því ekki í teljandi hættu. Fram-
leiðslan verður færð yfir til annars fyrirtækis. afb
Rebekka Kolbeinsdóttir og félagar hennar í hljóm-
sveitinni The End héldu útgáfuteiti vegna breiðskífu
sinnar, Atingere, á Rex á föstudagskvöld. Babb kom
í bátinn áður en teitið hófst þegar prófa átti hljóð-
kerfið fyrir kvöldið. Veitingastaðurinn La Primavera
er á hæðinni fyrir ofan Rex og líkaði kokkinum illa
þegar drunur úr bassatrommu bárust upp. Stöðvaði
hann hljóðprufurnar og gestir borðuðu í næði. afb
Danska sjarmatröllið Kim Larsen kom fram ásamt
hljómsveit sinni Kjukken í Vodafonehöllinni á laug-
ardagskvöld. Larsen lék á als oddi og grínaðist með
reykingabannið á Íslandi. Hann furðaði sig á því að
það mætti dæla koltvísýringi í andrúmsloftið, en
ekki kveikja sér í sígarettu. Áhorfendur kunnu vel
að meta grínið, án þess þó að kveikja sér í rettu
málefninu til stuðnings. afb
„Ég hef það fyrir víst að Dan
Bornstein, sem greinin vísar í, hef-
ur aldrei komið til Íslands, hvað þá
til Dalvíkur,“ segir Finnur Breki
Þórarinsson í tölvupósti til 24
stunda. „Hvernig veit ég það? Ég
spurði hann beint; við vinnum
báðir hjá Google.“
Frétt 24 stunda um Dan Born-
stein vakti mikla athygli þegar hún
birtist á miðvikudaginn í síðustu
viku. Í fréttinni kom fram að
Bornstein, sem starfar sem hug-
búnaðarverkfræðingur hjá Google,
hefði tekið ástfóstri við Dalvík á
ferðalagi sínu um Ísland og nefnt
nýjan hugbúnað Google í höfuðið
á bænum. 24 stundir töldu sig hafa
heimildir fyrir því að Bornstein
hefði komið til Dalvíkur síðasta
sumar, en þær heimildir voru
rangar. Dan Bornstein hefur aldrei
komið til Dalvíkur.
Sá Dalvík á landakorti
Finnur Breki starfar við Wind-
ows-hugbúnaðargerð hjá Google.
Hann segir að þrátt fyrir að hafa
aldrei komið til Dalvíkur, þá líki
Dan vel við bæinn.
„Hann játaði að hafa valið nafn-
ið en ekki út af því að hann hafi
ferðast til Íslands, heldur kíkti
hann á landakort af Íslandi eftir að
hafa lesið tímaritið McSweeney’s
og rak þá augun í Dalvík,“ segir
hann. „Eftir að hafa lesið sér til um
Dalvík og líkað það sem hann las
ákvað hann að nefna verkefnið í
höfuðið á Dalvík.“
Ekki náðist í Dan Bornstein við
vinnslu fréttarinnar.
atli@24stundir.is
Sláandi upplýsingar um Dan Bornstein
Dan hefur aldrei
komið til Dalvíkur
Dan Bornstein Talið var að hann
hefði ferðast til Dalvíkur, en það
reyndist ekki vera rétt.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
5 4 2 3 8 7 1 6 9
3 9 6 4 5 1 2 7 8
8 1 7 6 9 2 5 3 4
6 2 4 9 3 8 7 5 1
7 8 9 5 1 6 3 4 2
1 3 5 7 2 4 9 8 6
4 5 1 8 7 9 6 2 3
9 7 8 2 6 3 4 1 5
2 6 3 1 4 5 8 9 7
Hann gaf mér vélsög í jólagjöf í fyrra,
ég gaf honum gulleyrnalokka.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Auðvitað. Ekki spurning.
Skák og mát!
Er Peðið að skáka stóru leikhópunum?
Lísa Pálsdóttir er meðlimur leikhópsins Peðsins,
sem frumsýnir sitt fyrsta verk, Tröllaperu, á Grand
Rokk þann fyrsta desember næstkomandi.
Leiðarvísir
User Manual
Um þig, manninn,
konuna eða börnin.
Loksins!
Stjörnuspekistöðin
Síðumúli 29
553 70 75
www.stjornuspeki.is