24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir
Einnig er lagt til að yfirdýralæknir
fái heimild til að flytja sæði á milli
hjarða á ólíkum sauðfjárveikivarn-
arsvæðum í meira mæli en nú er
gert.
Að sögn Halldórs Runólfssonar
yfirdýralæknis eru strangar reglu-
gerðir um sæðistökuna sjálfa en
engar hömlur á flutning sæðisins.
Sömu reglur gilda um sauðfé og
geitur og má hvorugt flytja lifandi á
milli sauðfjárveikivarnarsvæða,
nema við sérstakar aðstæður. Hall-
dór segir mögulegt að búa til fóst-
urvísa og flytja á milli varnarsvæða
en það kosti mikið og þyrfti að
styðja með opinberu fé.
„Ef það á að fjölga geitum í
„Alþingi ályktar að fela landbún-
aðarráðherra að beita sér fyrir efl-
ingu íslenska geitafjárstofnsins,“
segir í þingsályktunartillögu Jóns
Björns Hákonarsonar og sjö ann-
arra þingmanna sem flutt var á
þingi í gær. Íslenski geitafjárstofn-
inn er um 400 geitur að stærð og
var fluttur til landsins af landnáms-
mönnum. Stofninn hefur verið
einangraður hér síðan og er því
„einstakur í sinni röð fyrir hrein-
leika sakir“ eins og segir í tillög-
unni. Þar er m.a. lagt til að bændur
fái tímabundna hækkun á greiðslu
fyrir hverja geit sem færð er til
skýrslu og að hafnar verði rann-
sóknir á erfðamengi geitarinnar.
stofninum þarf að skoða reglur um
sæðistöku og auka stuðning við
geitabændur,“ segir Jóhanna Þor-
valdsdóttir geitabóndi á Háafelli,
sem er með 117 geitur á sínu búi.
„Ég tel að það sé skynsamlegt að
fara yfir þessi mál, fyrst og fremst
vegna þess að stofninn er orðinn
mjög lítill í landinu og við viljum
ekki missa hann niður. Það skiptir
miklu að örva atvinnustarfsemina,
svo viðkomandi bú geti haft af
henni tekjur. Einnig væri hægt að
tengja hana við ferðaþjónustu,“
segir Einar K. Guðfinnsson land-
búnaðarráðherra.
thorakristin@24stundir.is
Gæðaskepna Alþingis-
menn vilja efla íslenska
geitafjárstofninn
Það þarf að örva atvinnustarfsemina, segir landbúnaðarráðherra.
Vilja bjarga íslensku geitinni
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
„Við erum alveg stórkostlega
ánægð með þennan árangur og
stolt af íslensku þjóðinni að taka
svona vel þátt í þessu,“ segir Lydía
Geirsdóttir, verkefnastjóri hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar, eftir vel
heppnaða jólagjafabréfavertíð.
Hátt í 2000 gjafabréf rötuðu í
jólapakka landsmanna þessi jólin.
Langvinsælastar voru geiturnar, en
meðal annars mun hreint vatn
renna úr 20 brunnum sem grafnir
verða fyrir íslenskt fé.
Geiturnar slógu í gegn
Mest sala var á geitagjafabréfun-
um, en 640 geitur munu bætast í
bústofna í Afríku.
Þótt mest hafi selst af ódýrari
gjafabréfunum, t.d. fyrir geiturnar,
urðu þau dýrari ekki útundan.
„Það var til dæmis eitt tilfelli þar
sem hjón keyptu sér einn brunn
saman í jólagjöf, en níu slíkir seld-
ust í heildina,“ segir Lydía.
Auk heilu brunnanna, sem kost-
uðu 150.000 krónur hver, keypti
fjöldi fólks hlutdeild í brunni.
Þannig mun Hjálparstarf kirkjunn-
ar geta grafið eftir vatni á 20 stöð-
um þökk sé gjafmildi Íslendinga.
Stóraukning milli ára
Mikil aukning var á sölu gjafa-
bréfa á milli ára. Segir Lydía gjafa-
bréf fyrir um 3 milljónir hafa selst
fyrir jólin 2006, en nú hafi veltan
nálgast 8 milljónir. Þakkar hún það
meðal annars nýrri heimasíðu.
„Gjofsemgefur.is hefur opnað
þann möguleika að fólk getur
gengið frá öllu heima hjá sér og
þarf ekki að koma til okkar, heldur
getur fengið gjafabréfið sent í
tölvupósti. Mér fannst svolítið
gaman að sjá að bara á aðfangadag
voru 120 gjafabréfspantanir, sem
fólk prentaði út heima hjá sér.
Þarna gat fólk gengið frá jólainn-
kaupunum fram á síðustu stundu.
Svo var líka áhugavert að sjá að það
var þétt traffík allan daginn til
klukkan sex og ekki ein einasta
pöntun eftir klukkan sex,“ segir
Lydía.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Gjafageitur Geitin er
góð búbót og gleður
smalann
Geitur og vatn
í jólapakkana
Stóraukning var á sölu gjafabréfa Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir
jólin 640 geitur komu upp úr jólapökkum landsmanna
➤ Langvinsælastar voru geit-urnar, en Hjálparstarfið seldi
640 slíkar.
➤ Næstflestir keyptu hlutdeild íbrunni, eða 323.
➤ 262 leystu barn úr skulda-ánauð þessi jólin.
➤ Fjórar hænur saman í pakkarötuðu undir 243 tré.
➤ 100 börn munu setjast áskólabekk með skóladót frá
Íslendingum.
SÖLUHÆSTU GJAFABRÉFIN
Rúmlega 10 þúsund börn, eða
53 prósent af aldurshópnum 6 til
18 ára sem á lögheimili í Reykjavík,
nýttu svokallað frístundakort í
fyrra. Upphæð styrksins tvöfaldast
í ár og verður 25 þúsund krónur á
barn. Áætlanir Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur, ÍTR, gera
ráð fyrir að fleiri börn nýti styrkinn
í ár eða um 70 prósent þeirra sem
eru á aldrinum 6 til 18 ára.
ibs
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
Helmingur nýtti
frístundakortið
Samfylkingarfélagið í Reykjavík heldur fund um úrskurð
mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem kann
að hafa áhrif á skipulag fiskveiða. Fundurinn verður
miðvikudaginn 23. janúar kl. 20:30-22:00 á
Hallveigarstíg 1. Húsið verður opnað kl. 20:00.
Gestur fundarins er:
Helgi Hjörvar alþingismaður.
Fundarstjóri:
Anna Pála Sverrisdóttir formaður
Félags ungra jafnaðarmanna.
ÞARF AÐ BREYTA
KVÓTAKERFINU?
Skráning á
www.si.is
MENNTADAGUR IÐNAÐARINS 2008
Ráðstefna um námsefnisgerð fyrir iðn- og starfsnám
Miðvikudaginn 23. janúar frá kl. 9.00 til 12.00
í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni Laugardal
Þekking og mannauður eru vaxandi drifkraftar í starfsemi fyrirtækja. Skólar byggja
upp mannauð fyrir atvinnulífið. Þörf er fyrir nútímalegt og aðgengilegt námsefni í
iðn- og starfsgreinum. Hvernig er unnt að tryggja stöðugt framboð á því?
Veiti sálfræðilega meðferð og ráðgjöf fyrir:
• einstaklinga m.a. við kvíða, fælni, óöryggi, sorg, áföllum, kulnun, streitu.
• fjölskyldur m.a. við samskiptaerfiðleikum, gildin í fjölskyldunni, framtíðarsýn.
• fyrirtæki m.a. fyrirtækja- og starfsviðmót, stjórnun breytinga.
Handleiðsla fyrir stjórnendur og fagfólk.
Held námskeið og veiti handleiðslu í Life-Navigation um hvernig
• takast má við það óvænta í lífinu
• vaxa sem einstaklingur og njóta lífsins
Sálfræðiþjónusta mín er flutt í Bolholt 4
Ágústína Ingvarsdóttir sálfræðingur
í fyrirtækja-, vinnu- og klíniskri sálfræði cand psych
Tímapantanir í síma 663 8927 eða í
netpósti agustina@life-navigation.com