24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 41
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 41
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Caoz hf. hefur farið fram á það
við aðstandendur deilisíðurnar
Thevikingbay.org að þeir greiði
Caoz 608.940 krónur fyrir ólög-
legt niðurhal á myndinni Anna og
skapsveiflurnar sem er birt á deil-
isíðunni.
Samkvæmt bréfi Caoz hefur
myndinni verið hlaðið niður 306
sinnum en bréfið er hægt að sjá í
heild sinni, sem og svar tals-
manns thevikingbay, á deilisíð-
unni. Aðstandendur Viking Bay
hafa 30 daga til að greiða upp-
hæðina ella fer málið í innheimtu.
Munu ekki borga krónu
Unnar Geir Ægisson, tals-
maður Viking Bay, segir að ekki
komi til greina að borga um-
rædda upphæð eða þá að fjar-
lægja myndina af síðunni. „Við
lítum á þetta mál í svolítið öðru
ljósi en svona fólk. Þetta er fram-
tíðin,“ segir Unnar og vísar þá til
skráaskiptaforrita sem leyfa not-
endum að skiptast á höfund-
arréttarvörðu efni.
Hann segir að það hafi einu
sinni gerst að efni hafi verið fjar-
lægt af Viking Bay en þá hafi það
verið vegna mistaka stjórnanda.
Hafa fengið líflátshótanir
Unnar segir að síðunni berist
hótunarbréf mjög reglulega og oft
sé hótað fleiru heldur en bara
málsóknum og skaðabótum.
„Fólk hefur hótað að berja okkur
og drepa okkur og hvaðeina.“
Hann segir að það hafi alveg
komið fyrir að þeir sem hafi haft í
þessum hótunum hafi verið lista-
menn sem eiga efni inni á síð-
unni. Unnar vill þó ekki nafn-
greina þessa aðila. „Við verðum
að virða alla og viljum ekki
skemma mannorð listamanna.“
Caoz vill fá greitt fyrir Önnu og skapsveiflurnar
Rukka 600.000 fyrir
ólöglegt niðurhal
➤ Síðan varð til eftir að hinfræga istorrent lagði upp
laupana.
➤ Á meðal íslensks efnis á síð-unni er sjónvarpsþáttaröðin
Pressa, Næturvaktin og nýj-
asti diskur Páls Óskars, Allt
fyrir ástina.
THEVIKINGBAY.ORG
Íslensku tölvuteikni-
myndinni Anna og skap-
sveiflurnar hefur verið
hlaðið niður rúmlega 300
sinnum á íslenskri deili-
síðu. Framleiðandi mynd-
arinnar fer fram á bætur
fyrir niðurhalið.
Anna og skapsveiflurnar
Var sýnd í sjónvarpi 1. jan-
úar og var nær samstundis
komin inn á Viking Bay.
Þeir sem eru á höttunum eftir
gæludýri, en langar í eitthvað
frumlegra en hund eða kött, ættu
að beina sjónum sínum að 80
sentimetra löngum fersk-
vatnshákarli sem nú er verið að
bjóða til sölu. Fiskurinn hefur ver-
ið í sýningarbúri í gullfiskaversl-
uninni Fiskabúr.is frá því hann var
fluttur hingað til lands fyrir sjö ár-
um, þá aðeins örfáir sentimetrar
að stærð. Nú er verslunin hins veg-
ar að hætta rekstri og erfitt að
koma fisknum fyrir.
„Við erum að leita að ein-
hverjum sem getur gefið honum
gott pláss. Aðalatriðið er að hann
fái búr sem hentar honum, en það
er ekki hægt að fá hér á landi,“ seg-
ir Hlynur Ingi Grétarsson, annar
eigandi skepnunnar. „Verðið er
ekki aðalatriði, heldur að fiskurinn
fái sómasamlegt heimili,“ bætir
hann við, en Hlynur kveðst ekki
geta búið honum heimili sjálfur
þar sem fyrir eru 13 fiskabúr á
heimili hans.
Upplýsingar um hákarlinn má
nálgast á Fiskaspjall.is, en í auglýs-
ingunni segir að um sé að ræða
„tilvalið tækifæri fyrir fyrirtæki
með metnað til að koma upp veru-
lega sérstökum hlut til að lyfta upp
húsakynnum sínum og fanga at-
hygli viðskiptamanna sinna.“
Hljóta það að vera orð að sönnu.
bjornbragi@24stundir.is
Hákarl til sölu
Flottur Hákarlinn myndi
sóma sér vel á hverju heimili.
Árvakur/Ómar
Söngvari Led Zeppelin, Robert
Plant, kallaði hljómsveitina Ra-
diohead rusl þar sem hann sat við
drykkju í Norður-Lundúnum um
helgina. Það er breska blaðið The
Sun sem greinir frá. Samkvæmt
heimildum The Sun sátu Plant og
vinkona hans að sumbli, og
heimtaði söngvarinn að slökkt
yrði á tónlist Radiohead sem var í
gangi á barnum. Hann sagði Ra-
diohead vera rusl og kallaði tón-
listina leikskólalög. re
Plant segir Radiohead rusl