24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir
Hillary Clinton, sem sækist eftir
útnefningu Demókrataflokksins
sem forsetaframbjóðandi, hafði
nauman sigur á Barack Obama í
Nevadafylki á sunnudag. Næsta
viðureign Obama og Clinton
verður 26. janúar, þegar Demó-
kratar ganga að kjörborðinu í
Suður-Karólínufylki.
Obama hefur sakað eiginmann
Clinton, Bandaríkjaforsetann
fyrrverandi, um að taka hlutverk
sitt of alvarlega. „Þið vitið að for-
setinn fyrrverandi, sem ég held
að við berum öll mikla virðingu
fyrir, hefur farið með stuðning
sinn við eiginkonu sína upp á stig
sem angrar mig,“ sagði Obama.
Þykir honum Bill Clinton fara
frjálslega með staðreyndir þegar
hann er að gagnrýna hann.
Bill Clinton hefur svarað því til
að ásakanir Obama séu úr lausu
lofti gripnar. „Clinton forseti er
gífurlegur styrkur fyrir baráttu
okkar og mun halda áfram að
ræða við bandarísku þjóðina og
tala máli Clinton öldungardeild-
arþingmanns,“ sagði Phil Singer,
talsmaður Hillary Clinton.
Niðurstöður kjörsins í Suður-
Karólínu, þar sem stór hluti kjós-
enda er þeldökkur, á laugardag
gætu ráðið miklu um framhald
kosningabaráttunnar. aij
Obama tekst
á við Clin-
ton-hjónin
Þýskur reykbíll Veitingamenn á ítölskum veitingastað í Berlín hafa brugðið á það ráð
að leggja bíl fyrir utan veitingastaðinn, til að viðskiptamenn geti reykt á milli rétta
Barack Obama Gantast við fimm mánaða barnið Daryn að loknum ræðuhöldum í
Suður-Karólínu. Forval demókrata í fylkinu fer fram 26. janúar.
Apagolf Bavíani lætur sér fátt um finnast
á golfmóti í Suður-Afríku.
Mávatennis Manneskjur eru ekki einar
um að fylgjast með tennis í Ástralíu.
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Hann heldur sífellt einhverju fram sem styðst ekki við stað-
reyndir. Hvort sem það tengist andstöðu minni við Íraks-
stríðið eða skipulagningu míns fólks í Las Vegas.
Barack Obama um Bill Clinton
Eins dags verkfall Búðum Palestínumanna í Austur-Jerúsalem var lokað í mótmæla-
skyni við ákvörðun Ísraelsstjórnar um að loka landamærum Gasastrandarinnar.
Myndaköttur Fritz ráfar oft um Hartenstein í austurhluta Þýskalands með myndavél
sem smellir af á 15 sekúndna fresti. Afraksturinn má sjá á heimasíðunni katz23.de.