24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 46

24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir „Það var engu líkara en lands- liðið hefði komið til leiks í dag með hnífasett Framsóknarflokks- ins í bakinu. … liðið er enn í vandræðum með að skora úr hefðbundnum sóknum. Frakk- arnir gerðu fá mistök, og þess vegna fengu Íslendingar ekki hraðaupphlaup.“ Einar Ben Þorsteinsson einar.eyjan.is „Hann (Björn Ingi) er alltaf grát- andi eða tekur eitthvað svakalega nærri sér! Alltaf einhver helvítis tilfinningasemi. Hann lítur alltaf út eins og meðvirk eiginkona. Jes- ús minn einasti, ég er búinn að gefast upp á honum ef eitthvað er. Kallið til kvensjúkdómalækni til að vinna á meðvirkninni …“ Lúkas Jarl Kolbjarnarson blogg.visir.is/eljaki „Fórnarlambavæluskjóða og kvenremburuddi … aka Kolbrún Hún Kolbrún Halldórsdóttir er tímaskekkja. Barátta „gömlu“ kvenréttindanna er stærsti þrösk- uldur jafnréttis og mér þykir kominn tími til að þessi kona finni sér nýja vinnu!“ Heiða B. Heiðarsdóttir skessa.blog.is/blog BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Við fögnum því að hafa stuðning um allt land, við erum ánægðir með það,“ segir Guðjón Guð- mundsson, formaður stjórnar Knattspyrnufélags Reykjavíkur, um það uppátæki Knattspyrnu- félags Reyðarfjarðar að nota skammstöfunina KR. Mikil ólga er meðal stuðnings- manna KR í Vesturbæ Reykjavíkur vegna Reyðfirðinganna. Fyrir helgi birtist á vefsíðunni krreykjavík.is pistill eftir Jón Bjarna Kristjánsson undir fyrirsögninni: Óþarfa leið- indi að austan! Þar segir Jón Bjarni að KR sé „sennilega eitt verðmæt- asta vörumerki íslenskrar knatt- spyrnu“ og sakar Reyðfirðingana um óvirðingu gagnvart starfinu sem unnið er í Vesturbænum. Eiga einkarétt á vörumerkinu Guðjón Guðmundsson segist eiga eftir að sjá hvort Knattspyrnu- félagi Reyðarfjarðar sé alvara. „Við viljum heyra áfram KR sem víð- ast,“ segir hann og bætir við: „En við eigum einkarétt á vörumerkinu KR. Nákvæmlega hvernig það virkar í þessu tilfelli þori ég ekki að tjá mig um.“ Kjartan Bragi Valgeirsson, tals- maður KR-inga á Reyðarfirði, segir umræðuna koma sér á óvart. „Ég bjóst aldrei við að þetta kæmist í fréttirnar,“ segir hann. „Mér finnst viðbrögðin stórskemmtileg og ég hef gaman af umræðunni. Öll um- fjöllun er góð fyrir okkur.“ Sækja um í 3. deild Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar hefur sent inn umsókn um að spila í 3. deild Íslandsmótsins í knatt- spyrnu næsta sumar. KSÍ hefur strax hafnað beiðni liðsins um að nota skammstöfunina KR í leik- skrá. Það stöðvar þó ekki Reyðfirðinga, sem kalla lið sitt KR í daglegu tali. „Við höldum því áfram þangað til annað kemur í ljós,“ segir Kjartan kokhraustur. Vesturbæingar hafa hingað til hvatt lið sitt til dáða með því að hrópa skammstöfun liðs síns á leikjum. Spurður hvort Reyðfirð- ingar ætli að gera slíkt hið sama verður Kjartan leyndardóms- fullur: „…Það er spurning. Það verður að koma í ljós.“ Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar kallar sig KR eins og Vesturbæingar KR fagnar stuðn- ingi frá Reyðarfirði KR-ingar eru ósáttir við KR-inga á Reyðarfirði og segja þá hafa stolið nafni sínu. Stjórnarformaður KR fagnar Reyðfirð- ingum, en þeim finnst umræðan skemmtileg. KR-ingar Ósáttir við nafna sína fyrir austan. HEYRST HEFUR … Yfir 40 hljómsveitir hafa þegar skráð sig á rokkhá- tíðina Aldrei fór ég suður sem haldin verður á Ísa- firði um páskana; nokkuð sem ætti að gleðja Mug- ison og aðra aðstandendur hátíðarinnar. Skipuð hefur verið þriggja manna uppstillingarnefnd sem ákveður hverjum verður boðið á hátíðina í ár. Síð- asti skiladagur umsókna er föstudagurinn 15. febr- úar. Skráning fer fram á síðunni www.aldrei.is. re Lestarslysinu Britney Spears barst stuðningur úr ekkert svo óvæntri átt þegar landslið íslenskra poppara tróð upp á styrktartónleikum fyrir krabba- meinssjúk börn í Háskólabíói. Stúlkurnar í Nylon stigu á svið í bolum merktum slagorðinu „Save Britney“ eða „Björgum Britney“ og vöktu mikla at- hygli viðstaddra fyrir fimlega líkamsburði og stima- mjúkar hreyfingar. afb Annars getur Selfoss-Mozartinn Einar Bárðarson verið ánægður með tónleikana, en þrjár milljónir króna söfnuðust sem renna óskiptar til Styrkt- arfélags krabbameinssjúkra barna. Birgitta Hauk- dal, Friðrik Ómar og X-Factor-afsprengin Jógvan og Hara-systur voru í miklu stuði á tónleikunum og léku við hvern sinn fingur eins og Sniglabandið, Garðar Cortes og Ragnheiður Gröndal. afb Listamaðurinn Erró áritaði bók sína, Erró í tímaröð, í bókabúð Máls og menningar á Laugaveg- inum á laugardaginn var. Elsa María Ólafsdóttir, verslunarstjóri Máls og menningar, segir að lista- maðurinn hafi unnið hug og hjörtu allra viðstaddra með fram- komu sinni og góðmennsku. „Fólk byrjaði að mæta klukkan átta um morguninn þrátt fyrir að það hafi verið ofsalega kalt, enda fátítt að listamaður á borð við hann gefi verk sín,“ segir Elsa. Erró hugðist gefa viðskiptavinum versl- unarinnar 100 myndir eftir sig, en þær voru fljótar að klárast. Elsa segir að þá hafi hann einfaldlega tekið fram fleiri myndir, þar sem hann vildi allt fyrir alla gera. „Það kom til mín viðskiptavinur og spurði hvort það væri mögulegt að fá mynd. „Auðvitað fær hann mynd,“ sagði Erró þá og fannst það ekkert tiltökumál.“ Laus við alla stæla Elsa segist hafa þurft að kíkja í ævisögu listamannsins til að sjá að hann væri virkilega orðinn 75 ára, hann hafi verið svo unglegur og skemmtilegur. „Erró er náttúrlega ekkert smá nafn og það var stórkostlegt að sjá hvað hann var laus við alla stæla. Hann hengdi bara jakkann sinn inni á lagernum eins og aðrir og vildi ekki láta hafa neitt fyrir sér. Maður fann hvað hann meinti þetta allt vel og það var bara svo gott í honum. Hann er alveg ótrú- lega heillandi maður,“ segir Elsa. bjornbragi@24stundir.is Erró sló í gegn í verslun Máls og menningar Alveg ótrúlega heillandi maður Áritað fyrir viðskiptavini Erró í Máli og menningu á laugardag. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 5 6 8 4 1 2 9 7 3 9 4 1 7 3 6 2 5 8 2 3 7 8 5 9 4 6 1 3 7 4 9 2 5 8 1 6 6 5 2 1 8 3 7 9 4 8 1 9 6 4 7 5 3 2 4 9 5 2 6 1 3 8 7 7 8 6 3 9 4 1 2 5 1 2 3 5 7 8 6 4 9 Ég er mjög tímabundinn! Hvar eru smásögurnar? 24FÓLK folk@24stundir.is a Við kveiktum strax á perunni þegar slokknaði á ljósaperunum. Kveiktuð þið ekki á perunni? Hrólfur Jónsson er sviðsstjóri framkvæmdasviðs Reykja- víkurborgar, en umferðarljósin á gatnamótum Kringlu- mýrarbrautar og Sæbrautar komust loksins í lag í gær eftir að hafa verið biluð í rúma viku. KR-ingur? Kjartan fyrir austan fagnar umræðunni.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.