24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 48
24stundir
Plötusnúðurinn Illugi
Magnússon, betur
þekktur sem DJ Platurn,
prýðir forsíðu banda-
ríska tímaritsins DJ
Times. Tímaritið er það
virtasta í plötusnúða-
bransanum vestanhafs
og þó víðar væri leitað.
Illugi segir viðtalið í
blaðinu stærsta tækifæri
sem hann hef-
ur fengið.
Á forsíðu Times
«40
Caoz hf., sem framleiðir teiknimyndina Anna
og skapsveiflurnar, hefur farið fram á að að-
standendur torrent-síðunnar Vikingbay.org
greiði fyrir ólöglegt niðurhal á myndinni.
Vikingbay rukkað
«41
KR-ingar eru ósáttir við KR-inga á Reyð-
arfirði og segja þá hafa stolið nafni sínu.
Reyðfirðingar eru kokhraustir og fagna um-
ræðunni um málið. Stjórnarformaður KR lít-
ur á nafnastuldinn sem stuðning.
KR-ingar ósáttir
«46
Mikilvægt er að þú sért þú
sjálf þegar þú giftir þig. Ekki
breyta um stíl heldur skaltu
draga fram það fallega hjá þér.
Mild förðun, náttúruleg og
klassísk,“ svarar Margrét R.
Jónasar, eigandi Make Up
Store í Smáralind, aðspurð um
brúðarförðun. „Wonder pow-
der“ er náttúrulegt og gott fyrir
húðina. Þá nærðu perluáferð
eins og hún sé rök og heilbrigð.
Milt og fallegt fyrir brúðarförð-
unina. Bleikir tónar og appel-
sínugulir.“
Vertu þú sjálf
Stemningin er fín. Það fór
slatti af Íslendingum heim í gær
og meirihlutinn kemur heim í
kvöld. Ég er búinn að hitta
landsliðið og þeir eru vel
stemmdir og vita hvað þetta
gengur út á og ætla að gera sitt
allra besta. Liðið er í fínu formi,“
svarar Ingvar Guðmundsson,
kokkur og eigandi Salatbarsins,
en hann hefur eldað fyrir lands-
liðið okkar í hvorki meira né
minna en átta ár. Er mataræðið
í lagi hjá strákunum? „Þeir
lenda svolítið í einhæfu fæði en
þeir eru mjög sáttir og ekkert
svangir. Mórallinn er mjög fínn
og við eigum ágætis möguleika
þótt við förum í milliriðilinn með
núll stig. Næsta lið fyrir ofan
okkur, Þýskaland, er með tvö
stig. Við keppum við þá í dag.“
Mórallinn góður
Það gengur æðislega vel hjá
okkur. Maður er ekki búinn að
lenda í miklum ævintýrum svo
sem. Við vinnum og sofum og
erum mjög rólegir. Förum ekk-
ert út á lífið,“ segir Adolf Ingi
Erlingsson íþróttafréttamaður.
„Það hefur verið rosalega fín
stemning hjá stuðningsmönn-
unum. Það var svolítið dauf
stemning eftir tapið gegn
Frökkum en það var létt yfir
mönnum á æfingu í gær því
Ólafur æfði með þeim og það
eru góðar vonir um að hann
verði með í dag gegn heims-
meisturunum. Það léttir nátt-
úrlega lundina hjá strákunum
okkar að fá leið-
togann til baka.“
Ólafur vonandi með
Umsjón: Ellý Ármanns
elly@svidsljos.is
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við