24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Einn sænskur fimleikahópur tók
þátt í mótinu hérlendis nú en lík-
ur eru á að fimm til tíu erlend keppnis-
lið í fimleikum taki þátt á næsta ári.
Róður íslenska landsliðsins í
handknattleik verður með þyngsta
móti næstu þrjá dagana en í dag
mæta strákarnir heimsmeisturum
Þjóðverja, á morgun liði Ungverja
og á fimmtudag Spánverjum. Spán-
verjar eru auk Frakka það lið sem
veðbankar spá helst sigri á mótinu
en ekki eru líkurnar á að Þjóðverjar
sláist í þann hóp mikið minni.
Ólafur inn aftur
Það er því vægast sagt þungur
róðurinn og ljóst má vera að leik-
irnir gegn Svíum og Slóvökum
voru nánast hreinn barnaleikur
miðað við það sem koma skal
næstu þrjá dagana. Ísland er lang-
neðst í milliriðli sínum með 0 stig
og fjórtán mörk í mínus. Sem bet-
ur fer eru líkur á að Ólafur Stef-
ánsson verði með. Tæknilega séð
gæti Ísland komist áfram upp úr
riðli 2 með því að leggja tvo and-
stæðinga af þremur að velli en
jafnvel það er langsótt þó ekki væri
nema fyrir slaka markatölu liðsins
sem er tíu mörkum lakari en næsta
liðs á undan sem eru Þjóðverjar.
Sóknin vandamál á HM og vörnin nú á EM
Krísuvíkurleið íslenska
landsliðsins
ÞRI. 22. JAN. 15:20
Ísland - Þýskaland
MIÐ. 23. JAN. 19:15
Ísland - Ungverjaland
FIM. 24. JAN. 14:20
Ísland - Spánn
LEIKIR ÍSLANDS
Ónefndir spekingar eruóðar farnir að tala umað
Real Madrid
hafi aðra hönd
á stýri í
spænsku deild-
inni enda liðið
með sjö stiga
forskot á
Barcelona þegar 20 leikir hafa
verið leiknir. Satt er að hér áður
fyrr hefði verið óhætt að setja
samasemmerki þar á milli en
ekki lengur. Aðeins er ár síðan
Börsungar voru í nákvæmlega
sömu sporum og Real nú; með
gott forskot og fátt sem benti til
að þeir spiluðu titlinum frá sér.
Illa er talað um Alex Fergu-son á bloggsíðum Readingþessa dag-
ana. Halda
menn því fram
að Skotinn hafi
við lok leiks
Reading og
United sent
ósæmilega
kveðju í átt að stuðnings-
mönnum heimaliðsins en það
er langsótt. Nær lagi að hann
hafi verið að senda dómara
leiksins slíkt enda vel komið
fram yfir leiktíma á þeirri
stundu.
Bíða menn spenntir eftirhrókeringum KevinKeegan
hjá Newcastle.
Hefur hann að-
eins 11 daga til
stefnu ætli
hann að versla
en nefndur
hefur verið
Deco hjá Barcelona.
Stutt er síðan fjallað var umLukas Podolski hér á síð-um. Hef-
ur hann kynnst
varamanna-
bekk Bayern
mun betur en
leikkerfunum
úti á velli þar
og vill brott.
Nú vill Dietmar Hamann
meina að Sven-Göran Er-
iksson vilji kappann og það
ekki seinna en nú í janúar.
Kæmi Þjóðverjinn í stað Rol-
ando Bianchi sem ekki hefur
fundið sig með City í vetur og
vill sömuleiðis fara.
Þrátt fyrir ófærð og afleitt
veður á Fáskrúðsfirði um
helgina tóku svo margir
glímukappar þátt í bik-
arglímu- og grunnskólamóti
Glímusambands Íslands að
glímt var stanslaust í átta
klukkustundir. Soffía Björns-
dóttir sigraði í opnum flokki
kvenna meðan Pétur Eyþórs-
son tók karlaflokkinn að
venju.
Átta stundir
Sama var uppi á teningnum
hvað veðurfar varðaði í Kefla-
vík um helgina þegar stjörnu-
leikur Körfuknattleiks-
sambandsins var haldinn. Það
aftraði ekki fjölda fólks frá því
að koma og sjá besta körfu-
knattleiksfólk landsins etja
kappi við besta erlenda körfu-
knattleiksfólkið. Í kvenna-
flokki féll lítið fyrir stelpurnar
okkar. Þær steinlágu fyrir er-
lendu stúlkunum með 22.
stigamun 100-78 og sáu lítið
til sólar lungann úr leiknum.
Ísland undir
Sagan í karlaflokknum var
önnur og betri en þar vannst
íslenskur sigur eftir að loka-
flautan gall en þá voru ís-
lensku strákarnir undir. Var
brotið á Hlyni Bæringssyni á
lokasekúndunni og fékk hann
tvö vítaskot sem enduðu bæði
ofan í og tryggðu 137-136 sig-
ur íslenska landsliðsins. Var
um frábæra skemmtun að
ræða eins og stjörnuleikir eiga
að sjálfsögðu að vera. Til stóð
lengi vel að slá þriggja stiga
skotkeppnina og troðslu-
keppnina af en sökum ítrek-
aðra beiðna fór troðslukeppn-
in fram. Hana vann Ólafur
Ólafsson frá Grindavík.
Ísland yfir
Nokkur umræða fer fram
meðal mótorkrossfólks um
hvort grundvöllur sé fyrir 24
tíma keppni hérlendis. Eru
slíkar mótorkrosskeppnir
þekktar erlendis frá sem og Le
Mans-kappaksturinn marg-
frægi.
24 stundir
Ótrúlegt líf var í Laugardalnum
um helgina þegar nýtt alþjóðlegt
mót, Reykjavík International, var
þar haldið. Alls tóku 2000 kepp-
endur þátt og þrátt fyrir tiltölulega
lítinn fyrirvara voru allnokkrir er-
lendir keppendur þar á meðal.Att
var kappi í níu greinum alls en ráð-
gert er að mótið verði árlegur við-
burður.
Fimleikagreinarnar fóru fram í
Laugardalshöll og var nokkuð vel
skipað í áhorfendasætunum á
meðan. Var þar meðal annars
keppt í liðafimleikum, team gym,
og hafði sænskur fimleikahópur
þar sigur.
Í húsum TBR fór fram unglinga-
meistaramót í badminton. Komu
erlendir gestir þar einnig við sögu
og tókst það mót fullkomlega að
sögn mótshaldara.
Tígulegar Alls var keppt í níu
greinum á mótinu um helgina en
fimleikamótið var fjölmennast.
Velheppnuð
íþróttaveisla
Fyrsta alþjóðlega Reykjavík International tókst í alla staði vel
Fullt hús Hús TBR voru
iðandi af lífi alla helgina.
Allmargir erlendir
íþróttamenn sóttu Klak-
ann heim um helgina til
að taka þátt í hinu al-
þjóðlega íþróttamóti
Reykjavík International.
Var þetta í fyrsta sinn
sem það er haldið og
gekk allt vel upp.
Árvakur/Frikki
SKEYTIN INN
Team Gymnastics Sænskur fim-
leikahópur fór með sigur af hólmi þar.
Stuðningur af pöllunum Ekki vantaði
hann en 400 manns fylgdust með.