24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir Eftir Hildu H. Cortez hilda@24stundir.is „Við spáum 9 prósenta lækkun á fasteignaverði á árinu,“ segir Edda Rós Karlsdóttir hjá greiningardeild Landsbankans. „Við áttum ekki von á því að það færi að hægjast um á fasteignamarkaðnum fyrr en um mitt þetta ár, en krafturinn í hækkunum síðastliðið haust kom á óvart.“ Það dró úr veltu á fast- eignamarkaði í lok síðasta árs en í annarri viku desembermánaðar var skrifað undir færri kaupsamn- inga en gert hafði verið frá því í janúar 2007. Á vefsíðu Fast- eignamats ríkisins kemur fram að kaupsamningum fækkaði um 29,7% á milli desember og nóv- ember 2007 og velta minnkaði um 25,8%. Í byrjun þessa árs var fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höf- uðborgarsvæðinu 71 talsins frá 4. janúar til og með 10. janúar. Metframboð á nýjum íbúðum Í hagspá Landsbankans frá því í september er gert ráð fyrir auknu framboði nýrra fasteigna á árinu þrátt fyrir skerta kaupgetu, en í könnun fyrirtækjasviðs bankans á líklegu framboði íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að 3.000 nýjar íbúðir verði tilbúnar í byrjun þessa árs og um 1.100 á svæðinu í kring. Þessi aukning á íbúðarhúsnæði bendir til þess að metframboð verði á nýjum fast- eignum á árinu og útlit er fyrir að framboð nýrra íbúða aukist enn á næsta ári. Verði svo þarf að minnsta kosti 20.000 nýja íbúa á svæðið til að fylla þessar íbúðir. „Við teljum að það séu heldur fleiri íbúðir að koma á markaðinn en þörf er á og að þó nokkur hætta skapist á offramboði fasteigna. Menn munu líklega klára þau verkefni sem eru í gangi á árinu en síðan hægist verulega á.“ Framboð meira en eftirspurn? Greiningardeild Landsbankans telur að draga muni úr þenslu á fasteignamarkaðnum á þessu ári með tilliti til verðþróunar og ný- bygginga. Það hefur neikvæð áhrif á hagnaðarvon byggingarfyrirtækja og þar með framboð nýbygginga. „Háir vextir draga meðal annars úr þenslu vegna þess að það þýðir aukna greiðslubyrði, þannig að það er dýrara fyrir fólk að kaupa. En þetta stafar líka af því að framboð er meira en eftirspurn,“ segir Edda. „Þó að þessi lækkun verði á mark- aðnum þá verður fasteignaverðið bara svipað því og það var um mitt ár í fyrra þannig að þetta er engin heimsendaspá hjá okkur.“ Árvakur/Gísli Sigurðsson Veruleg hætta á offramboði á íbúðamarkaði Fasteignaverð lækkar á árinu ➤ Fjöldi íbúða í nýbyggðumíbúðarhúsum á árunum 2000 til 2005 var alls 13.412 á landinu öllu, þar af voru 9.015 á höfuðborgarsvæð- inu samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. ➤ Samkvæmt spá orkuspár-nefndar um fjölda íbúða á landinu má búast við því að þær verði 122.132 árið 2010 en þær voru rúmlega 104.000 árið 2004. NÝBYGGINGARGreiningardeild Lands- bankans segir að draga muni úr þenslu á fast- eignamarkaði á árinu. Skert kaupgeta og of- framboð nýrra fasteigna hefur þar áhrif. Lækkandi fasteignaverð dregur úr hagnaðarvon bygging- arfyrirtækja. Nýbyggingar Hætta hefur myndast á offramboði nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Íslendingar þurfa ávallt að fara vel undirbúnir inn í veturinn en hann hefur verið sérstaklega kald- ur síðustu vikur. Sem betur fer er þó mestallt húsnæði vel varið fyrir kuldanum með ofni í hverju her- bergi. Minniháttar pípulagnir Góð ráð geta verið ansi dýr þegar í ljós kemur að ofninn er ískaldur þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir til að stilla rétt hitastig. Við vitum flest að píparar koma ekki í heimsókn nema þú sért tilbúinn með þykkt seðlaveski og biðin er líka oft óþarflega löng. Það er því gott að athuga fyrst hvort þú getir ekki lagað ofninn áður en þú borgar fúlgu fyrir létt verk. Algengt er að erfitt sé að fá ofna aftur í gang eftir að lokað hefur verið fyrir þá lengi. Ástæð- an fyrir þessu getur verið sú að bakrennslislokinn sé fastur. Þetta hljómar mjög ógnvekjandi fyrir flesta en það er þó engin ástæða til að hringja strax í píparann. Til þess að laga þetta þarf að fjarlægja hitastillinn en hann er festur með skrúfu að neðanverðu. Þegar still- irinn er farinn af kemur í ljós pinninn sjálfur en hann þarf að losa til þess að ofninn fari aftur í gang. Þetta er gert með því að banka létt á pinnann og toga hann svo aftur út með töng. Ef pinninn dettur úr sullast vatn á gólfið og því er gott að vera með skál undir honum. Að lokum er gott að hreyfa pinnann vel í gat- inu til þess að öruggt sé að hann sé vel laus. iris@24stundir.is Pípulagnir fyrir byrjendur Einföld lausn við köldum ofnum Sjóðheitur Það er lítið mál að hita upp ofninn. Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Gler-rennibrautir Hawa Junior 80 eru glæsilegar rennibrautir fyrir 8-10-12 mm hert gler eða timburhurðir. Eigum einnig rennibrautir frá fyrir skápa og tréhurðir. Útvegum hert gler eftir máli.. Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700 Upplýsingar á www.atlantskaup.is STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI ÚTI SEM INNI

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.