24 stundir - 22.01.2008, Page 21

24 stundir - 22.01.2008, Page 21
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 21 KYNNING Þegar Þróunarfélag Keflavík- urflugvallar var stofnað á haust- mánuðum 2006 höfðu um 900 störf verið lögð niður og gamla varn- arsvæðið breyst í sannkallaðan draugabæ. Hvert sem litið var mátti berja augum ljóslausa glugga og tóm bílastæði. Þessi sjón kallaði beinlínis á aðgerðir til að koma í veg fyrir að þessi mannvirki yrðu tóm- leikanum að bráð. Farið var í ít- arlega þarfagreiningu sem síðan var fylgt eftir með markaðsherferð til að kynna svæðið og möguleika þess. Viðbrögðin létu ekki á sér standa þrátt fyrir skiptar skoðanir um möguleika svæðisins til að ganga í endurnýjun lífdaga. Tækifærin voru fjölmörg og þau þurfti að grípa og þróa áfram. Margar þeirra hugmynda sem fram komu um nýtingu voru góðra gjalda verðar og jafnvel auðfram- kvæmanlegar, en að sama skapi ekki til þess fallnar að mæta markmiðum um lágmörkun neikvæðra áhrifa fyrir nágrannasveitarfélögin, eða há- mörkun möguleika gamla varn- arsvæðisins. Með stofnun Keilis, miðstöðvar vís- inda, fræða og atvinnulífs, var því stigið stórt skref í þá átt að byggja upp þekkingarstarfsemi á svæðinu. Í framhaldinu var boðið upp á stúd- entaíbúðir til leigu fyrir háskóla- nemendur af höfuðborgarsvæðinu og í samstarfi við Reykjanesbæ var komið á strætóferðum til höf- uðborgarsvæðisins fyrir leigjendur þessara íbúða. Framundan eru jafnframt spenn- andi tímar. Mikil þróunarvinna liggur að baki fyrsta kvikmyndaveri á Íslandi „Atlantic Film Studios“ sem mun hefja starfsemi á næstu vikum. Fyrirtækið Verne hyggst byggja upp stórt netþjónabú og hef- ur viljayfirlýsing verið undirrituð um þróun á svæði og kaupum á byggingum undir fyrsta græna „data center“ á Íslandi. Það hefur orðið mikil breyting frá því að tómleikinn réði ríkjum fyrir um ári. Í dag búa um 1100 manns á svæðinu og um 300 einstaklingar hafa annaðhvort hafið eða hefja störf á næstu mán- uðum. Áhugasamir aðilar, uppfullir af frumkvæði og framboði á fersk- um hugmyndum, eru hvattir til að kynna sér starfsemi Þróunarfélags- ins á vefsíðunni www.kadeco.is . Þróunarverkefni í Keflavík Að blása lífi í draugabæ Mannlíf Innan skamms munu alls 1400 manns starfa og búa á svæði Þró- unarfélagsins og þar eru starfrækt hátt á fjórða tug fyrirtækja. Til að aðlagast hröðum lífsstíl nú- tímamannsins í þéttbýlisumhverfi hefur hönnuðurinn Werner Aiss- linger hannað ferningshús, fyrir fólk á faraldsfæti. Werner hugsaði sér að húsin, sem kallast Loftcube, yrðu ofan á húsþökum og myndu þannig nýtast sem tímabundin heimili. Húsið myndi líka henta þeim sem flytja reglulega því auð- velt er að flytja það með sér með aðstoð lyftingakrana eða þyrlu. Helsti kostur hússins er vafalaust útsýnið sem yrði magnað af háum byggingum í fjölmennri borg. Hægt er að velja á milli um 40 fer- metra eða 55 fermetra húss þar sem hvert hús er með sitt eigið eld- hús, baðherbergi auk aðstöðu til svefns og leiks. Aðstöðuna innan- húss má auk þess laga að íbúanum. Frekari upplýsingar um þessi ein- stöku hús má finna á síðunni www.loftcube.net. Þakhús sem má flytja með sér Svo virðist sem nýjar íbúðarbygg- ingar rísi í hverjum mánuði á höf- uðborgarsvæðinu og eitt eiga þær flestar sameiginlegt. Það er ann- aðhvort engin geymsla eða bara örlítil kompa. Í eldri blokkum eru nánast undantekningarlaust geymslur í kjallaranum en nú er það svo að ef um kjallara er að ræða þá eru þar íbúðir og inni á heimilinu er kannski smá kompa en oftar en ekki hefur henni verið breytt í herbergi vegna þess að það er varla á færi nokkurs að kaupa stærra húsnæði. Þeir sem til þekkja vita að erfitt er að koma sér fyrir á heimili með engri geymslu og því ættu þeir sem eru að byggja sér heimili að gefa þessu máli sér- stakan gaum. Meðalstór geymsla er nauðsynleg á hverju heimili, ann- ars verður allt í drasli. Ekki gleyma geymslunni

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.