24 stundir - 22.01.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Nú er verið að steypa veggi og
gólfplötur á götuhæð hússins, og í
þessum mánuði er húsið byrjað að
rísa vel af grunninum sem er tíu
metra djúpur,“ segir Þórhallur um
framvinduna.
43 metrar á hæð
Þórhallur segir tónlistar- og
ráðstefnuhús, sem er skamm-
stafað TRH, verða um 28.000 fer-
metrar að stærð. Það verður 43
metrar á hæð frá götu (Hall-
grímskirkjuturn er 76 metrar). Í
TRH verður stór tónlistarsalur
sem rúmar 1800 gesti, æfingasal-
ur með 450 sætum og ráð-
stefnusalur er rúmar um 750
gesti. Þá verður fjöldi annarra
fundarsala í húsinu fyrir tón-
leikahald og fundi. Þar á meðal
arsalir og verslanir. Nýsir hf. er eig-
andi viðskiptamiðstöðvarinnar og
hafa umboð frá og samvinnu við
World Trade Center International.
Útibú þessi má finna víðsvegar um
heim. Þá byggir Landsbanki Ís-
lands höfuðstöðvar sínar syðst á
byggingarlóðinni.
Hverjir byggja?
Á byggingarlóðunum eru viða-
miklar framkvæmdir og á sömu
lóð verða þýðingarmiklar við-
skiptamiðstöðvar og menningar-
mannvirki. Bygging og rekstur
TRH er einkaframkvæmd sam-
kvæmt samningi milli Portusar og
Austurhafnar. Í einkaframkvæmd
felst að hið opinbera gerir samning
einkaaðila um að veita tiltekna
þjónustu. Eigandi TRH og rekstr-
araðili er Portus en ríki og borg
greiða árlega ákveðna upphæð
samkvæmt samningi í 35 ár.
Eignarhaldsfélagið Portus hf. er
að jöfnu í eigu Landsbanka Íslands
og Nýsis hf., en Nýsir hf. stendur
að byggingu World Trade Center
Reykjavík.
30.000 rúmmetrar af steypu í tónlistarhús við höfnina
Menningarmannvirki
rís af grunni
➤ Meðan á framkvæmdum stóðvar dælt upp úr grunninum
sex milljónum tonna af sjó.
➤ Í bygginguna fara um 30.000rúmmetrar af steypu.
➤ Utan um grunn hússins erualls 500 metra löng stálþil.
FRAMKVÆMDIRFramkvæmdir við tónlist-
ar- og ráðstefnuhús
ganga vel, að sögn Þór-
halls Markússonar, mark-
aðsstjóra Portus hf., er
stendur að framkvæmd-
unum. Kostnaðurinn við
bygginguna verður 14
milljarðar og húsið verð-
ur opnað í desem-
bermánuði árið 2009. Á
sama stað rís 16.000 fer-
metra viðskiptamiðstöð,
World Trade Center
Reykjavík og höfuðstöðv-
ar Landsbankans.
Glæsilegt menningar-
mannvirki Á þessarri tölvu-
mynd sést fyrirhugaður gler-
hjúpur hannaður af Ólafi
Elíassyni.
200 manna smærri salur.
Húsið verður fyrsta sérhann-
aða tónlistar- og ráðstefnuhúsið
af þessari stærð hér á landi.
Ólafur Elíasson og Reykjatorg
Hinn þekkti listamaður og
hönnuður Ólafur Elíasson hannar
glerhjúp sem umlykur húsið ásamt
því að koma að tengingu hússins
við nánasta umhverfi sitt svo sem
með fyrirhuguðu vatnstorgi
„Reykjatorgi“ sem mun standa
sem stórfenglegt listaverk eitt og
sér. Þá er húsið hannað af Henning
Larsen arkitektum í Kaupmanna-
höfn. Undirverktaki þeirra á Ís-
landi er Batteríið í Hafnarfirði.
Teiknistofan hannaði meðal ann-
ars Óperuna í Kaupmannahöfn
sem var vígð í janúar 2005.
World Trade Center Reykjavík
Byggingarlóðin er alls 60.000
fermetrar að stærð og á henni
verður einnig byggt glæsilegt hótel,
einnig hannað af Henning Larsen
arkitektum. Þá verður bílastæða-
hús undir öllu svæðinu með 1600
stæðum og arkitektarnir láta einn-
ig til sín taka við hönnun við-
skiptamiðstöðvarinnar World
Trade Center Reykjavík sem verður
stór bygging. 16.000 fermetrar að
stærð. Þar verða skrifstofur, fund-
SAN Cable Kit
Rafmagns gólfhitakerfi
Einföld uppsetning. Lagt í flísalím eða flotað
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir