24 stundir - 30.04.2008, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
VÍÐA UM HEIM
Algarve 22
Amsterdam 12
Alicante 22
Barcelona 17
Berlín 22
Las Palmas 29
Dublin 11
Frankfurt 15
Glasgow 11
Brussel 12
Hamborg 17
Helsinki 14
Kaupmannahöfn 17
London 15
Madrid 21
Mílanó 16
Montreal 12
Lúxemborg 12
New York 10
Nuuk 3
Orlando 21
Osló 16
Genf 11
París 16
Mallorca 19
Stokkhólmur 15
Þórshöfn 7
Norðlæg átt, víða 10-15 m/s. Snjókoma eða
slydda norðanlands, slydda eða rigning aust-
an til, en skýjað með köflum eða bjartviðri s-
og v-lands. Hiti um frostmark norðan til, en 3
til 10 stig sunnan til að deginum.
VEÐRIÐ Í DAG
5
6
5
1 3
Norðlæg átt
Norðan og norðaustan 5-10 m/s og dálítil
slydda eða rigning norðan- og austanlands,
en annars bjartviðri.
Hiti 1 til 10 stig, hlýjast sunnan til.
VEÐRIÐ Á MORGUN
8
8
4
3 4
Bjartviðri
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar stöðvaði í gær
frekari móttöku á hjólbörðum hjá fyrirtækinu Hring-
rás. Eins og sagt var frá í 24 stundum í gær er magn
gúmmís á athafnasvæði Hringrásar orðið meira en
leyfilegt er samkvæmt starfsleyfisskilyrðum fyrirtæk-
isins. Heilbrigðiseftirlitið fór fram á að magn gúmmís
yrði minnkað en samkvæmt skoðun í fyrradag hafði
ekki verið orðið við þeim tilmælum. „Þetta eru þving-
unaraðgerðir af okkar hálfu því við erum að hluta til
að stöðva starfsemi þeirra“ segir Árný Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins.
Mjög ámælisvert að reglur séu brotnar
Bjarni Kjartansson sviðsstjóri forvarnasviðs
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir það stóralvar-
legt mál að Hringrás brjóti gegn starfsleyfisskilyrð-
unum. „Það er alls ekki forsvaranlegt að Hringrás skuli
ekki virða skilmálana. Starfsleyfið er gefið út með tilliti
til aðstæðna og þær breytast auðvitað ef það er ekki
virt. Það segir sig sjálft að geymsla á svona úrgangi í
nálægð íbúðabyggðar er engin óskastaða með tilliti til
brunavarna og þess vegna er sérstaklega ámælisvert ef
reglum er ekki fylgt.“ freyr@24stundir.is
Heilbrigðiseftirlitið stöðvar móttöku dekkja hjá Hringrás
Beita þvingunaraðgerðum
Dekkjakös Dekkjahaugurinn hjá Hringrás er umtalsvert
stærri en leyfilegt er.
Opinber heimsókn Friðriks krón-
prins af Danmörku og eiginkonu
hans, Mary Elizabeth krónprins-
essu, til Íslands hefst mánudag-
inn 5. maí næstkomandi. Heim-
sókninni lýkur fimmtudaginn 8.
maí, að því er greint er frá á vef-
síðunni www.kronprinsparret.dk.
Þar má lesa ýmsar upplýsingar
um krónprinsparið og börn þess.
ibs
Friðrik og Mary koma 5. maí
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
Knattspyrnufélagið Fram og
Reykjavíkurborg skrifa undir
samning um uppbyggingu á fram-
tíðaraðstöðu félagsins í Grafarholti
og Úlfarsárdal á 100 ára afmæli fé-
lagsins á morgun.
Samkvæmt samningnum mun
Fram flytja starfsemi sína frá nú-
verandi höfuðstöðvum í Safamýri í
nýja íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal.
Félagið tekur að sér skipulagningu
og starfrækslu íþróttastarfs í Graf-
arholti og Úlfarsárdal og þar mun í
framtíðinni verða keppnisaðstaða
félagsins í knattspyrnu, handknatt-
leik og fleiri íþróttagreinum.
Margar aldir fram í tímann
„Mér líst frábærlega á þetta. Við
erum búnir að vinna að þessu hátt í
fimm mánuði nánast upp á hvern
einasta dag og erum mjög sátt við
þá niðurstöðu sem hefur náðst,“
segir Steinar Þór Guðgeirsson, for-
maður Fram.
„Það verður ekki hægt að líkja
því saman, þessu svæði og því sem
við höfum í dag. Til samanburðar
má nefna að svæðið hjá okkur í dag
er rétt rúmir 4 hektarar en þarna
upp frá er það um 11 hektarar. Við
höfum verið með það þannig að
við höfum þurft að keppa okkar
heimaleiki á Laugardalsvelli en
þarna upp frá verður okkar eigin
heimavöllur með stúku og öllu
saman. Þetta er eins og að fara
margar aldir fram í tímann hvað
aðstöðu varðar,“ segir hann. „Við
vorum að skipuleggja þetta svæði
til framtíðar, við verðum þarna í
allavega 100 ef ekki 200 ár til við-
bótar.“
Ekki farin úr Safamýri
Steinar Þór segir 6000 manns nú
þegar búa á svæðinu og því sé
nauðsynlegt að byggja upp góða
íþróttaaðstöðu. Hann segir Fram
þó ekki yfirgefa Safamýrina strax.
„Það er alveg klárt að við verðum
áfram með íþróttastarfsemi í Safa-
mýrinni, við munum að sjálfsögðu
sinna því hverfi áfram. Úlfarsárdal-
urinn er langtímaverkefni sem
verður búið kannski 2012-14 en
við erum ekkert að fara úr Safa-
mýrinni á næstu árum, það er alveg
klárt,“ segir hann.
Fram á dalinn
Flytur úr Safamýri í Úlfarsárdal Byggir til næstu 100 ára
Framtíðarlandið Steinar
Þór og Kjartan Magnússon,
formaður ÍTR, skoða framtíð-
arsvæði Fram.
➤ Félagið var stofnað 1. maí1908.
➤ Stofnendur félagsins voru 15drengir á aldrinum 12-15 ára.
➤ Höfðu þeir séð æfingar hjá KRog langaði sjálfa að spila.
➤ Var félagið nefnt Kári en varbreytt í Fram eftir 2 mánuði.
FRAM
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
STUTT
● Árétting Í frétt 24 stunda í gær
um veitingu vínveitingaleyfa til
staða sem uppfylla ekki gild-
andi byggingareglugerðir var
sagt frá því að maður hefði
dottið niður stiga á skemmti-
staðnum 22 fyrir nokkrum ár-
um og hálsbrotnað. Í húsnæð-
inu er nú skemmtistaðurinn
Barinn og vilja núverandi eig-
endur koma því á framfæri að
búið er að endurnýja stigann í
samræmi við reglugerðir.
● Leiðrétt Í umfjöllun 24
stunda í gær um skútusigl-
ingar aldraðs Spánverja mis-
ritaðist stærð skútu hans.
Skútan er 28 fet en ekki 8 fet
og leiðréttist það hér með.
Ekki verður lækn-
islaust á Heilbrigð-
isstofnuninni á
Blönduósi eftir 1.
maí eins og íbúar
óttuðust. Uppsagn-
arfrestur læknanna
þriggja sem sögðu
upp í desember
rann út um síðustu mánaðamót en
læknarnir féllust á að vinna til 1.
maí. Nú hefur náðst samkomulag
milli læknanna og heilbrigðisráðu-
neytisins um breytt vinnufyr-
irkomulag. Ómar Ragnarsson yf-
irlæknir ætlar samt að hætta
störfum 1. september. „Sam-
skiptavandamál milli fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar og
starfsmanna er óleyst.“
ibs
Ekki læknislaust
á Blönduósi
Veitinga- og skemmtistöðum
verður heimilt að hafa reyk-
herbergi að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum verði frum-
varp, sem þingmenn úr Frjáls-
lynda flokki, Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki lögðu fyrir
þing í gær, að lögum. Er m.a. lagt
til að reykherbergin verði að-
skilin veitingasvæðinu og þar
verði engin þjónusta veitt. þkþ
Reykherbergi
verði leyfð
„Nú finnst okkur tími til kom-
inn að yfirmenn stofnunarinnar
taki afleiðingum gerða sinna. Það
voru allir sammála um að engin
ástæða væri til að þrefa um þetta og
hafa þetta hangandi yfir okkur í allt
sumar.“ Þetta segir Erla Björk Birg-
isdóttir, trúnaðarmaður hjúkrun-
arfræðinga.
Skurð- og svæfingarhjúkrunar-
fræðingar á Landspítala greiddu í
gær atkvæði gegn því að verða við
beiðni stjórnenda spítalans um að
fresta uppsögnum, sem taka eiga
gildi á miðnætti í kvöld, fram á
haust. Alls hafa 96 af 104 skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræðingum
sagt upp vegna breytinga á vakta-
fyrirkomulagi.
,,Við komum ekki inn aftur
nema þetta verði tekið út af borð-
inu og það verði vinnufriður. Þetta
er gjörsamlega óþolandi. Það hefur
verið aðför að skurð- og svæfing-
arhjúkrunarfræðingum á 3 til 4 ára
fresti í tugi ára. Það er alltaf verið
að lækka launin en nú segja hjúkr-
unarfræðingarnir hingað og ekki
lengra,“ bætir Erla Björk við.
Í yfirlýsingu frá hjúkrunarfræð-
ingunum segir að ekkert hafi kom-
ið fram sem bendi til samningsvilja
yfirmanna. Hjúkrunarfræðingarnir
vísa ábyrgð á því ástandi, sem
kunni að skapast, á hendur yfir-
mönnum og heilbrigðisráðherra.
Um leið lýsa þeir vantrausti á yf-
irstjórn spítalans. Jafnframt telja
þeir að eingöngu sé verið að fresta
vandamálinu til 1. október.
Anna Stefánsdóttir, settur for-
stjóri Landspítala, segir forsvars-
menn spítalans standa frammi fyrir
því að þurfa að uppfylla kröfur í
tengslum við vinnutímatilskipun
Evrópusambandsins. Stjórnendur
hafi hins vegar viljað ræða ýmsar
leiðir við hjúkrunarfræðinga.
ingibjörg@24stundir.is
Hjúkrunarfræðingar fresta ekki uppsögnum
Hingað og ekki lengra