24 stundir - 30.04.2008, Qupperneq 4
NEYTENDAVAKTIN
Litun á augabrúnum, augnhárum og plokkun
Snyrtistofa Verð Verðmunur
Snyrtistofa Rósu Hafnarfirði 2.600
Zone Reykjanesbæ 2.800 7,7 %
Snyrtistofan Alda Egilsstöðum 3.300 26,9 %
Dekurstofan Reykjavík 3.300 26,9 %
Snyrtistofan Lind Akureyri 3.400 30,8 %
Snyrtistofan Gyðjan Reykjavík 3.500 34,6 %
Snyrtist. Grafarvogs Reykjavík 3.500 34,6 %
FRUMDRÖG AÐ TEIKNINGUM
Gögn: P ARK teiknistofa/Ólöf Pálsdóttir og Páll V. Bjarnason.
Nýja húsið verður fimm hæða bygging sem stallast aftur í
lóðina. Bílageymslur verða á þremur hæðum undir húsinu.
Heilsuverndarstöðin
Hæð: 39,7 m
Nýbygging
Hæð: 41,8 m
Domus Medica
Hæð: 42,0 m
Glergöng munu tengja nýja húsið Heilsuverndarstöðinni og Domus
Medica og jafnvel hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum.
Nýbygging skv.
núgildandi skipulagi
Glergöng yfir
í Sundhöllina
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Nýtt hús undir læknastarfsemi
verður reist á milli Heilsuverndar-
stöðvarinnar við Barónsstíg og Do-
mus Medica við Egilsgötu. Tengja á
nýja húsið þeim sem fyrir eru, og
jafnvel Droplaugarstöðum við
Snorrabraut, með glergöngum.
Hugsanlegt er að allar byggingarn-
ar verði síðan tengdar Sundhöll-
inni.
Rýmið sem skapast í tengibygg-
ingunum hefur ekki verið skipulagt
í þaula, að sögn Þorsteins Stein-
grímssonar, eiganda Heilsuvernd-
arstöðvarinnar. „Fyrst og fremst
var gert ráð fyrir göngum sem hægt
væri að flytja sjúklinga eftir, í rúm-
um og hjólastólum, þegar þeir
sækja þjónustu hjá sérfræðingum.
En auðvitað gætu verið þarna
bjartar setustofur fyrir sjúklinga og
jafnvel verslanir. Möguleikarnir eru
margir,“ segir Þorsteinn.
Hann bendir á að í Heilsuvernd-
arstöðinni sjálfri séu stórir gangar
og hol. „Þar væri hægt að hafa alls
konar listsýningar þótt um sjúkra-
hús sé að ræða. Gangarnir í tengi-
byggingunum gætu einnig nýst vel
til sýningarhalds.“
Hugsanlegt er að glergöng tengi Heilsuverndarstöðina, Domus
Medica og Droplaugarstaði við Sundhöll Reykjavíkur
ÞJÓNUSTAN
➤ Í Domus Medica sinna 90 sér-fræðingar lækningum á ýms-
um sviðum.
➤ Í Heilsuverndarstöðinni erheilbrigðisþjónusta og þjón-
usta á sviði vinnuverndar.
➤ Droplaugarstaðir eru hjúkr-unarheimili.
4 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
flugfelag.is
Skráðu þig í
Netklúbbinn
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Félagar í Netklúbbnum
fá fyrstir upplýsingar
um tilboð og nýjungar
í tölvupósti.
Alltaf ódýrast á netinu
www.flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
U
4
16
84
0
4.
20
08
„Á allra vörum“ er heitið á nýju
átaki sem hófst í gær en markmiðið
er að safna fyrir nýjum tækjum til
greiningar á brjóstakrabbameini.
Fjáröflunin felst í því að varalita-
gljái frá Yves Saint Laurent verður
seldur um borð í flugvélum Ice-
landair og í fríhöfnum Flugfélags
Íslands í Reykjavík og á Akureyri.
„Við ætlum að reyna að selja
10.000 gloss næstu þrjá mánuði
sem er vel í lagt því við seljum
svona 250 á mánuði alla jafna en
við vonum að fólk verði spennt fyr-
ir þessu,“ segir Elísabet Sveinsdótt-
ir forstöðumaður á markaðs- og
sölusviði Icelandair.
Áður en átakið hófst var þegar
búið að selja um 2000 stykki því
ýmis áhugasöm fyrirtæki höfðu
keypt gjafir fyrir starfsfólk sitt.
Flugfélög styrkja Krabbameinsfélagið
Varagljái gegn
brjóstakrabbameini
Skrifað var undir samning við
verktakafyrirtækið Ístak í gær um
lengingu Akureyrarflugvallar. Ístak
átti lægsta tilboð, 475 milljónir
króna, en sjö tilboð bárust. Lengja
á brautina um fjögur hundruð og
sextíu metra.
Kristján Möller samgönguráðherra
segist binda miklar vonir við leng-
ingu flugvallarins, enda um mikið
hagsmunamál að ræða. Með lengri
flugbraut ættu að skapast for-
sendur fyrir beinu flugi milli Ak-
ureyrar og Evrópulanda.
Hálfur milljarður í völlinn
Umboðsmaður jafnréttismála í
Svíþjóð segir launagreiðslur hjá
Kaupþingi í Svíþjóð uppfylla að
mestu leyti kröfur jafnréttislaga.
Þó þarf að hækka laun konu í
röðum yfirmanna bankans um 3
þúsund sænskar krónur á mán-
uði. Fréttavefur Dagens Industri
hefur eftir starfsmanni umboðs-
manns að stofnunin þurfi að fara
yfir laun um milljón starfsmanna
sænskra fyrirtækja. Þess vegna
séu málin skoðuð hjá stærstu fyr-
irtækjunum svo sem Kaupþingi.
mbl.is
Kaupþing fer að
lögum í Svíþjóð
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Kannað var verð á litun á augabrúnum, augnahárum
og plokkun. Verðmunur er nokkur, 34,7% á hæsta og
lægsta verði eða 900 krónur.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
35% verðmunur á
litun og plokkun
Kristín
Einarsdóttir
Höskuldur Geir Erlingsson lenti
í því að fá senda heim til sín ítrek-
un frá lögfræðistofu vegna stöðu-
mælasektar á bíl sem hann hafði
hent og afskráð fjórum árum áður.
„Ég henti bílnum í maí 2004 og
fékk kvittun upp á það. Svo lagði ég
bílnúmerið inn hjá Frumherja og
fékk kvittun fyrir afskráningar-
beiðni. Í byrjun apríl á þessu ári fæ
ég svo sent bréf frá lögfræðistofu
vegna stöðmælasektar. Þar stendur
að bíll með númerinu sem ég hafði
afskráð í maí 2004 hafi verið sekt-
aður 28. nóvember 2005,“ segir
Höskuldur Geir.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
umræddar kvittanir og ítrekunina.
Höskuldur fór á lögfræðistofuna
til að spyrja hvernig á þessu stæði.
Þar var flett upp í ökutækjaskrá og
sást að bifreiðin og bílnúmerið
voru afskráð.
„Ég er einnig með annað blað
sem sýnir að bíllinn var boðaður í
skoðun í febrúar 2007 og þar er
fenginn vikufrestur á mínu nafni.“
Höskuldur talaði því næst við
Bílastæðasjóð og fékk þær upplýs-
ingar að annar maður, sem hann
kannast ekki við, hafi verið skráður
fyrir bílnum og fært hann aftur yfir
á Höskuld. „Þetta er mjög undar-
legt og virðist vera stórfenglegt
svindl hér á ferð,“ segir Höskuldur.
hlynur@24stundir.is
Henti bílnum og afskráði en fékk sekt
Draugabíll gengur aftur