24 stundir - 30.04.2008, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
„Það þarf náttúrlega að loka
svæðið af því börnin eru í hættu,“
segir Edda Ýr Garðarsdóttir,
tveggja barna móðir í Hlíðunum,
um opið leiksvæði fyrir framan
leikskólann Stakkaborg.
„Það er ekkert sem afmarkar
boltavöllinn frá bílastæðunum
sem gerir það að verkum að
margir gera sér ekki grein fyrir að
þetta sé völlur en ekki bílastæði.
T.d. fékk sonur minn, sem var að
hjóla á vellinum um daginn, at-
hugasemd frá einhverju fólki sem
var að koma þarna á bíl.
Þarna er einnig sandkassi og er
bílum gjarnan lagt við hlið hans
sem skapar augljósa hættu,“ segir
hún og bætir við að bílum sé að-
allega lagt á svæðinu á morgnana
og í eftirmiðdaginn, þegar foreldr-
ar leikskólabarnanna eru á ferð.
Ólafía Davíðsdóttir, leikskóla-
stýra á Stakkaborg, segist ekki vita
til þess að slys hafi orðið á börn-
um á leiksvæðinu en er sammála
því að loka eigi það af. „Ég fór og
talaði við framkvæmdasvið borg-
arinnar í morgun. Ég veit ekki
hver viðbrögðin verða,“ segir hún.
thorakristin@24stundir.is
Hjólför Á
leiksvæðinu.
Erfitt að greina á milli bílastæðis og leiksvæðis við Stakkaborg
Bílum lagt við sandkassann
24stundir/Frikki
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Skiptar skoðanir eru meðal þing-
manna Framsóknarflokksins um
það hvort Ísland eigi að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Jón
Sigurðsson, fyrrverandi formaður
flokksins, gerði það að tillögu sinni
í grein í Morgunblaðinu í gær að
sótt yrði um aðild. Búist er við að
málið verði rætt á miðstjórnarfundi
flokksins um helgina.
Skiptar skoðanir í flokknum
„Eitt af því sem Jón Sigurðsson
kenndi mér var að ef Íslendingar
ætla að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu þá gera þeir það ekki í
veikleika sínum, heldur í styrkleika
sínum. Þess vegna kemur grein
Jóns mér á óvart,“ segir Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins, aðspurður um álit á grein
forvera síns. Guðni segist sjálfur
vera andvígur aðild en segir skiptar
skoðanir vera um málið í flokknum
og að umræðan sé ekki ný af nál-
inni. „Umræðan í flokknum hefur
verið opinská og hún hefur reynt á
hann,“ segir Guðni sem telur að
málið muni reyna á innviði allra
stjórnmálaflokka.
Bjarni Harðarson, þingmaður
flokksins, segir grein Jóns vera and-
stæða stefnu flokksins. „Hún er
ekki í samræmi við þá stefnu sem
Jón Sigurðsson talaði fyrir þegar
hann var formaður,“ segir hann og
bætir við: „Mér finnst merkilegt
þegar málsmetandi menn sveiflast
mjög fyrirvaralítið í sinni afstöðu
og ég hef ekki trú á því að slík
sveifla sé að verða í grasrótinni í
Framsóknarflokknum.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla lausnin
Valgerður Sverrisdóttir, varfor-
maður flokksins, segist ekki þora að
fullyrða að stuðningur við aðild sé
að aukast þótt margt bendi til þess.
„Þjóðfélagið virðist vera að taka
mjög mikið við sér og ekki síst at-
vinnulífið. Umræðan hefur þrosk-
ast gríðarlega mikið á tiltölulega
fáum vikum,“ segir hún. Valgerður
telur að eðlilegast sé að lenda þessu
máli með því að halda þjóðarat-
kvæðagreiðslu um það hvort hefja
eigi aðildarviðræður. „Með þeim
hætti ætti að vera hægt að fá nið-
urstöðu sem allir geta sætt sig við.“
Stelur senunni Jón stal
senunni af Guðna í gær.
Ólík afstaða til
ESB-aðildar
Þingmenn Framsóknarflokksins ósammála í ESB-málum
Guðni Ágústsson segir opinskáa umræðu ekki nýja af nálinni
➤ Í ályktun um Evrópumál áflokksþingi 2007 er ekki tekin
afgerandi afstaða til aðildar.
➤ Þar segir að fara eigi framupplýst umræða innan
flokksins og að aðlaga þurfi
stjórnarskrána að nýjum
veruleika.
STEFNA FRAMSÓKNAR
24stundir/Brynjar Gauti
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
heldur í dag fyrirlestur um þróun
stjórnmála í Suður-Afríku, þar sem
hún hefur verið sendiherra í tæp
tvö ár. Mun hún gefa innsýn í þær
pólitísku hræringar sem þar hafa
átt sér stað undanfarið.
„Ég er ekki að tala um þróun-
armál, neyð eða vopnuð átök.
Þessu þykir mér hafa verið gert
heldur mikið úr þegar Afríka er
annars vegar. Ég er að tala um
stjórnmál í Suður-Afríku alveg eins
og við tölum um stjórnmál í ná-
grannalöndunum.“
Stjórnmálaskýrendur hafa gert
því skóna að næsta ár geti orðið
það hættulegasta í sögu hins unga
lýðveldis. Sigríður telur svo ekki
þurfa að vera. „Frá fyrstu frjálsu
kosningunum árið 1994 hefur einn
flokkur, Afríska þjóðarfylkingin,
setið við völd. Hann hefur þróast
úr nokkurs konar andspyrnuhreyf-
ingu gegn aðskilnaðarstefnunni yf-
ir í stjórnmálaflokk. Meðfram
þeirri breytingu fer fram opin, lýð-
ræðisleg umræða. Hún er kannski
hættuleg að því leytinu að enginn
getur stjórnað lýðræðinu, en vilj-
um við það?“
Auk breytinga á Afrísku þjóð-
arfylkingunni mun Sigríður ræða
ýmis önnur mál sem ber hátt í Suð-
ur-Afríku þessa dagana, svo sem
ástandið í grannríkinu Simbabve,
aukna orkuþörf landsins og hækk-
að matarverð, sem hún segir koma
fátækum löndum sérstaklega illa.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12.15 í
stofu 101, Háskólatorgi. Alþjóða-
málastofnun HÍ stendur fyrir fyr-
irlestrinum í samstarfi við utanrík-
isráðuneytið. andresingi@24stundir.is
Sendiherra Íslands á hádegisfundi
Stjórnmál Suður-Afríku rædd
Allir velkomnir!
Lögreglan
í herlausu landi
– framtíðarsýn
Hádegisverðarfundur í Valhöll
miðvikudaginn 30. apríl, kl. 11.45 – 13.15
Frummælendur:
Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
og Valtýr Sigurðsson,
ríkissaksóknari.
Fundarstjóri:
Bjarni Benediktsson,
alþingismaður og formaður
utanríkismálanefndar.
Að fundinum stendur
Réttarfars- og stjórnskipunarnefnd.
Sjúkraflutningar
Námsstefna 2. og 3. maí
á Hótel Loftleiðum
Aðgangur ókeypis
Skráning á netfanginu sjukraflutningar@gmail.com
Dagskrá á heimasíðunni http://lsos.is/
Landssamband Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna
● Fyrirlestrar.
● Kynning á námi og búnaði.
● Heilbrigðisráðherra kynnir skýrslu um
framtíðarskipulag sjúkraflutninga.