24 stundir - 30.04.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
HJÁ ATVINNULÍFINU
KEMUR ÞÉR Á KORTIÐ
Tölvunarfræði er afar fjölbreytt fagsvið sem býður upp á marga valkosti fyrir nám og störf,
allt frá hagnýtum verkefnum til fræðilegra, frá umsjón tölvukerfa til smíði flókinna hug-
búnaðarkerfa, frá forritun til stjórnunar. Tölvunarfræðinám er góður grunnur fyrir starfsferil á
fjölmörgum sviðum.
Tölvunarfræðinám við Háskólann í Reykjavík einkennist af fjölbreytileika og skapandi um-
hverfi þar sem nemendum gefst kostur á að vinna verkefni í nánum tengslum við fræðimenn
og fyrirtæki.
• BSc í tölvunarfræði (90 einingar)
• BSc í hugbúnaðarverkfræði (90 einingar)
• BSc í stærðfræði (90 einingar)
• MSc í tölvunarfræði
• MSc í hugbúnaðarverkfræði
• MSc í máltækni
• PhD í tölvunarfræði
• Kerfisfræðigráða (60 eininga
nám í fjarnámi og með vinnu)
TÖLVUNARFRÆÐI
Tölvunarfræðideild HR býður upp á nám í
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Sú skyndilega hækkun vísitölu
neysluverðs sem varð í apríl kemur
sér mjög illa fyrir þá sem tekið hafa
verðtryggt lán. Vísitalan hækkaði
um 3,4% á milli mánaða og hefur
ekki hækkað meira í tæpa tvo ára-
tugi.
Svo tekið sé einalt dæmi þýðir
3,4% hækkun vísitölu neysluverðs
að sá sem þarf að greiða 100.000
krónur af jafngreiðsluláni í maí,
þarf að greiða 103.400 krónur af
því í júní þegar hækkun vísitölu í
apríl er farin að taka gildi til verð-
tryggingar. Að sama skapi hækkar
höfuðstóll 20 milljóna króna láns í
rúmar 20.682.000 krónur.
Afborgun hækkar um þriðjung
Einnig má taka dæmi af einstak-
lingi sem tók 20 milljóna króna
jafngreiðslulán til 40 ára með
4,15% vöxtum 1. september 2004.
Ef lánið hefði verið óverðtryggt,
næmi hver mánaðargreiðsla tæp-
um 86 þúsund krónum. Eins og
vísitalan hefur þróast þarf viðkom-
andi hins vegar að greiða tæpar 110
þúsund krónur í afborgun 1. júní
nk., eða tæpum þriðjungi meira.
Ef verðbólga hefði haldist 3,7%,
eins og hún var í ágúst 2004, hefði
afborgunin 1. júní nk. verið tæpar
98 þúsund krónur. Hin raunveru-
lega afborgun er 12% hærri, og til
þess að greiðslubyrðin hafi ekki
þyngst, þurfa laun viðkomandi því
að hafa hækkað um það sem því
nemur á umræddu tímabili.
Allt yrði vitlaust í Danmörku
„Í landi þar sem lán eru verð-
tryggð er gríðalega mikilvægt að
verðbólga sé aldrei há,“ segir Bryn-
hildur Pétursdóttir, ritstjóri Neyt-
endablaðsins. Strax fyrir tveimur
árum, þegar verðbólga var ekki í
námunda við það sem nú er, hafi
Neytendasamtökin bent á þetta.
„Ég sé ekki fyrir mér að aðrar
þjóðir myndu sætta sig við svona
miklar sviptingar. T.d. ímynda ég
mér að allt yrði vitlaust í Dan-
mörku ef fólk sæi lánin sín hækka
svona mikið á einu bretti.“
Hún bendir á að verðtryggingin
hækki höfuðstól láns töluvert jafn-
vel þegar verðbólga er ekki nema
2,5%, sem er verðbólgumarkmið
Seðlabankans. Því sé mikilvægt að
lántakendur leggist vel yfir útreikn-
inga á lánum og stökkvi ekki á allt
sem bjóðist.
Vilja afnema verðtryggingu
Ýmsir hafa orðið til þess að
gagnrýna verðtrygginguna, sem er
nánast séríslenskt fyrirbæri. Hefur
því t.d. verið haldið fram að ef
verðtryggingin væri afnumin
myndi það verða til þess að stjórn-
völd tækju sig á í baráttunni gegn
verðbólgu, þar sem verðtrygging
frestar í raun áhrifum verðbólgu á
almenning.
Frjálslyndi flokkurinn hefur sem
dæmi lagt fram þingsályktunartil-
lögu þess efnis að verðtryggingin
verði afnumin, en tillagan er til
umfjöllunar hjá allsherjarnefnd. Í
neikvæðri umsögn um tillöguna
benti Seðlabanki Íslands á að það
að afnema verðtryggingu verði að
öllum líkindum til þess að auka
verðbólgu enn frekar.
„Ég veit nú ekki hvort það
myndi skipta miklu máli í því um-
hverfi sem við erum í núna,“ segir
Jón Magnússon, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, um aðvaranir
Seðlabankans. „Á sama tíma og
þeir sem lána peninga verða að
hafa tryggingu, má kerfið ekki vera
þannig að öll heimsins óáran bitni
á þeim sem taka lán.“
Verðtryggingin skárri kostur
Valgerður Sverrisdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins,
bendir hins vegar á að ef verðtrygg-
ing er afnumin við það verðbólgu-
ástand sem hefur ríkt hér á landi,
yrðu bankarnir annað hvort að
hafa öll lán á breytilegum vöxtum,
og hækka þannig vexti um leið og
verðbólga eykst, eða hækka vexti á
línuna til að verja sig gegn hættu á
verðbólgu.
Þórólfur Matthíasson, prófessor
í hagfræði, tekur undir með Val-
gerði. „Það er erfitt að sjá fyrir sér
að það sé hægt að halda gangandi
lánakerfi hér á landi ef verðtrygg-
ingin verður afnumin.“
Ef það yrði gert þyrfti að veita
lánveitendum áhættuálag, til að
þeir sæju sér hag í að veita lán í
þeirri miklu verðbólgu og óvissu
um verðbólgu sem ríkt hefur hér á
landi.
ÞEKKIR ÞÚ DÆMI?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Höfuðstóllinn rýkur upp
ÁHRIF VERÐBÓLGU Á HÚSNÆÐISLÁN
Hækkun 20 milljón króna höfuðstóls
vegna 3,4% verðbólgu á mánuði
Höfuðstóll
í maí
Höfuðstóll
1. júní
20
.0
00
.0
00
k
r.
20
.6
81
.8
18
k
r.
20.000.000 króna jafngreiðslulán til 40 ára
4,15% vextir, tekið 1.9.2004
Mánaðargreiðslur með verðtryggingu (kr.)
Mánaðargreiðslur án verðtryggingar (kr.)
1. gjalddagi
1.10.2004
1.6.2005 1.6.2006 1.6.2007 1.5.2008 1.6.2008
85.583 85.583 85.583 85.583 85.583 85.583
85.948
87.808
94.448
98.862
105.939
109.551
➤ Ef tekið var 20 milljóna krónajafngreiðslulán í september
árið 2004, með 4,15% vöxt-
um, verður afborgunin 1. júní
109.551 króna.
➤ Ef verðbólga hefði haldist3,7%, eins og hún var í ágúst
2004, þyrfti viðkomandi að
greiða 97.826 krónur 1. júní.
GREIÐSLUBYRÐI
20 milljóna króna höfuðstóll hækkar um 680 þúsund Verðtryggingin hækkar afborgun um þriðjung
„Þetta svæði er á náttúruminjaskrá
sem útvistarsvæði. Þarna er sýnis-
horn af öllu því sem er fallegast í ís-
lenskri náttúru,“ segir Lára Hanna
Einarsdóttir en hún hefur ásamt fleir-
um látið útbúa veggspjald þar sem
vakin er athygli á fyrirhugaðri Bitru-
virkjun. Það er sami hópur og stend-
ur að heimasíðunni hengill.nu.
„Við höfum ekki sett okkur upp á
móti Hverahlíðarvirkjun sem er
sunnan þjóðvegarins, þetta svæði er
hins vegar of dýrmætt til að breyta í
iðnaðarhverfi,“ segir hún. Lára
Hanna segir það ósk hópsins að
svæðið verði friðað til frambúðar.
„Sveitarfélagið Ölfus hefur auglýst
breytingu á aðalskipulagi svæðisins
en frestur til að senda athugasemdir
er til 13. maí,“ segir hún. Síðastliðið
haust rann út frestur til að gera at-
hugasemdir við umhverfismat og
segir Lára Hanna 678 athugasemdir
hafa borist, fleiri en nokkru sinni áð-
ur.
Hún segir einkum tvennt gagnrýnt
í þessu ferli. Annars vegar skipulags-
og byggingarlögin sem hún segir veita
fámennum sveitarstjórnum heimild
til að taka ákvarðanir sem beint og
óbeint varða mörg þúsund manns.
„Svo eru það lögin um mat á um-
hverfisáhrifum. Auðvitað þarf að
meta þau en samkvæmt okkar lögum
er það framkvæmdaraðilinn sjálfur
sem sér um umhverfismatið. Svo eru
gerðar athugasemdir, þær flokkaðar
og taldar og loks sendar fram-
kvæmdaraðilanum sem fer yfir þær
og dæmir í eigin máli. Þetta eru arfa-
vitlaust lög.“ fifa@24stundir.is
Nýtt veggspjald hvetur til athugasemda
Allt það fallegasta
Landssamband sumarhúsaeig-
enda skorar á Alþingi að lögfesta
frumvarp um frístundabyggð á
yfirstandandi þingi.
Sambandið lýsir í ályktun, sem
samþykkt var á aðalfundi fyrir
skömmu, áhyggjum af því að
leigusamningar, sem renna út á
næsta ári, verði ekki endurnýj-
aðir.
Þá segir að samskipti leiguliða
við bændur séu yfirleitt góð. Nú
sé hins vegar landslagið orðið
annað með tilkomu fjárfesta sem
sjái tækifæri í því að þvinga fólk
sem er á staðnum til uppkaupa á
því verði sem eigendunum hent-
ar.
Frumvarpið verði að lögum