24 stundir - 30.04.2008, Blaðsíða 9
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 9
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Súpersól til
Salou
23. maí
frá kr. 39.995
Terra Nova býður frábært tilboð til Salou í sumarbyrjun. Salou er
fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar
er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar.
Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú
bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir.
Kr. 39.995
Netverð á mann. M.v. 2-4 saman í
herbergi/stúdíó/íbúð. Súpersól tilboð. 23. maí í viku.
Aukavika kr. 12.000.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
TB
W
A\
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga
um kaup á íbúðum í fjölbýli á
þessu ári er aðeins þriðjungur þess
sem var á sama tíma í fyrra, eða
484 samningar á móti 1288. Þó
virðist fasteignaverð ekki vera farið
að lækka, þó að það sveiflist á milli
mánaða.
Verðlækkun kemur seinna
„Það hefur orðið svipuð stöðvun
á fasteignamarkaði og varð árin
2001-2002. Þetta er mjög eðlilegt,“
segir Ingólfur Bender, forstöðu-
maður greiningar Glitnis.
„Fyrst dregur úr umsvifum á
markaði og svo kemur verðlækk-
unin á eftir,“ segir Lúðvík Elíasson,
hagfræðingur á greiningardeild
Landsbankans. Hann bætir við að
þróunin sé eins og bankinn hafi
búist við, en hann hefur spáð því
að fasteignaverð lækki seinna í vor.
Allir halda að sér höndum
„Við finnum fyrir því að marga
langar til að kaupa sér húsnæði en
fá ekki lán. Svo er töluvert um að
menn bíði með fasteignakaup í von
um að vextir lækki og verðbólgan
fari niður,“ segir Sigurpáll Jóhann-
esson, sölumaður fasteigna hjá Re-
max Borg. Segist hann bjartsýnn á
að verð fari að lækka og óttast ekki
að verkefnaleysi sé yfirvofandi.
Sé skoðað hvernig íbúðir hafa
selst það sem af er ári sést að þótt
mun færri kaupsamningum hafi
verið þinglýst nú, eru hlutföllin á
milli ólíkra stærða íbúða mjög
svipuð nú og á sama tíma í fyrra.
Sem dæmi má nefna að árið
2007 voru þriggja herbergja íbúðir
í fjölbýli um 35% seldra íbúða á
höfuðborgarsvæðinu fyrstu fjóra
mánuði ársins en eru um 32% það
sem af er þessu ári. Því virðast hús-
næðiskaupendur í öllum flokkum
halda jafnt að sér höndum.
„Grunnurinn að fasteignamark-
aðnum er minnstu íbúðirnar. Þeg-
ar eigendur þeirra geta ekki selt,
geta þeir heldur ekki stækkað við
sig, svo kólnunin færist ofar,“ út-
skýrir Viðar Böðvarsson, viðskipta-
fræðingur og fasteignasali hjá fast-
eignasölunni Fold.
Íbúðaverð hefur
enn ekki lækkað
Aðeins þriðjungssala íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu mið-
að við sama tíma í fyrra Allir halda jafnt að sér höndum
➤ Eftir að framboð á íbúða-lánum hjá bönkunum minnk-
aði taka fleiri lán hjá Íbúða-
lánasjóði.
➤ Hann lánar sem nemur 120%af brunabótamati auk lóð-
armats eða að hámarki átján
milljónir.
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR
Fasteignir Lítið hefur
selst af íbúðum á árinu
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Glitnis, telur ólíklegt að
jafnmiklar verðlækkanir verði á ís-
lenskum fasteignamarkaði og orðið
hafa á ýmsum stöðum erlendis, þar
sem markaðurinn sé ólíkur erlend-
um mörkuðum.
„Í fyrsta lagi er hér lítið um spá-
kaupmennsku því að fólk býr í hús-
næðinu sínu og á fæst fasteignir sem
það getur selt um leið og væntingar
koma um verðlækkanir. Í öðru lagi
er lánamarkaðurinn sérstakur. Er-
lendis hafa bankarnir nær einvörð-
ungu setið að íbúðalánunum en hér
höfum við einnig Íbúðalánasjóð og
að nokkru leyti lífeyrissjóðina sem
halda lánamarkaðnum uppi um
þessar mundir.
Að lokum hefur leiðrétting á
verði hér átt sér fyrst og fremst stað í
gegnum raunverðslækkun en ekki
lækkun á nafnverði.“ þkþ
Fasteignamarkaður hér ólíkur erlendum
Séríslensk einkenni
MEÐALTALSNAFNVERÐ Á FERMETRA JANÚAR 2007 TIL APRÍL 2008
Tölur eru í krónum. Miðað er við þinglýsta kaupsamninga og eru upplýsingar fengnar á vef FMR.
Janúar 2007 Apríl 2008
2ja herbergja íbúðir
3ja herbergja íbúðir
4ra herbergja íbúðir
5 herbergja íbúðir
250.519
232.496
212.229
206.753
290.393
240.333
234.500
249.721
„Í ljósi þessara yfirlýsinga sem
komu fram í 24 stundum þá mun-
um við skoða þetta mál líkt og aðrar
ábendingar um það sem betur má
fara,“ segir Hafsteinn Pálsson, verk-
fræðingur hjá umhverfisráðuneyt-
inu, en 24 stundir sögðu frá því í gær
að skemmti- og veitingastaðir sem er
veitt vínveitingaleyfi fái úthlutuð slík
leyfi án þess að uppfylla ákvæði gild-
andi byggingarreglugerðar.
Byggingarreglugerðir eru gefnar
út af umhverfisráðuneytinu og því er
það á valdi þess að gera breytingar á
þeim.
Hafsteinn segir ekkert liggja fyrir
um hverju sú skoðun muni skila.
„Þetta verður að fara í þennan farveg
en það er ekkert hægt að fullyrða
hvað kemur út úr þessari skoðun.“
Byggingarfulltrúi vill breytingar
Margir skemmtistaðir í miðborg
Reykjavíkur eru í mjög gömlum
húsum þar sem til dæmis stigar upp-
fylla ekki ákvæði núgildandi bygg-
ingarreglugerðar.
Þeir fá þó vínveitingaleyfi á
grundvelli þess að þeir uppfylli
ákvæði reglugerða frá þeim tíma
sem viðkomandi húsnæði var sam-
þykkt. Í mörgum tilfellum er um að
ræða hús sem falla undir áratuga
gamlar byggingarreglugerðir sem
ekki gera sömu öryggiskröfur.
Magnús Sædal Svavarsson, bygg-
ingarfulltrúi Reykjavíkurborgar,
sagði í 24 stundum í gær að hann
vildi breyta þessum reglum og setja
stífari reglur hvað varðar öryggi.
„Það hafa svo sannarlega orðið slys
hérna, til dæmis í stigum, og mörg
þeirra slæm.“
thordur@24stundir.is
Staðir sem uppfylla ekki núgildandi reglugerðir fá vínveitingaleyfi
Ráðuneytið hyggst skoða málið