24 stundir - 30.04.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Kínverskur dómstóll dæmdi í
gær sautján Tíbeta til refs-
ingar fyrir aðild sína að mót-
mælunum í tíbesku höf-
uðborginni Lhasa í síðasta
mánuði. Mennirnir voru að
lágmarki dæmdir í þriggja ára
fangelsi, en nokkrir hlutu lífs-
tíðardóm.
Að sögn kínverskra ríkisfjöl-
miðla voru réttarhöldin opin
og voru um 200 manns við-
staddir dómsuppkvaðningu.
Von er á dómum yfir fleiri
mótmælendum á næstunni. aí
Mótmælin í Lhasa
Tíbetar fá
þunga dóma
STUTT
● Hernaður Rússnesk stjórnvöld
segja stjórnarher Georgíu nú
undirbúa hernaðaraðgerðir í
Abkasíu-héraði, sem hefur lýst
yfir sjálfstæði frá Georgíu.
● Ostur Heilbrigðis- og land-
búnaðarráðuneyti Ítalíu
ákváðu í gær að heimila út-
flutning á mozzarellaosti unn-
um úr mjólk buffalóa á ný.
● Mannfall Um þrjátíu herská-
ir sjítar létust í átökum við
bandaríska hermenn í Sadr
hverfinu í írösku höfuðborg-
inni Bagdad í gær.
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hyggst koma
á sérstöku átaksteymi til að fást við
matvælakreppuna sem vofir nú yfir
milljónum jarðarbúa. Ban segir
heimsbyggðina standa frammi fyrir
„víðtækri hungursneyð, vannær-
ingu og félagslegum óstöðugleika af
áður óþekktu umfangi“ vegna sí-
hækkandi matvælaverðs.
37 milljónir frá Íslandi
Á fundi Sameinuðu þjóðanna og
Alþjóðabankans í Bern í Sviss í gær
sagði Ban það vera forgangsatriði að
ná að safna 755 milljónum Banda-
ríkjadala, jafnvirði 56 milljarða
króna, til Matvælastofnunar SÞ á
þessu ári og hvatti hann ríki heims
til að leggja fram fjárveitingar þegar
í stað. Að sögn Urðar Gunnarsdótt-
ur, fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðu-
neytisins, mun Ísland leggja hálfa
milljón Bandaríkjadala af mörkum
eða 37 milljónir króna.
Matvælastofnunin telur um 100
milljónir manna víðs vegar um
heim nú standa frammi fyrir mat-
vælaskorti. Á fréttavef BBC segir að
ríki heims hafi einungis heitið 62
prósentum af þeim 56 milljörðum
króna sem vantar til stofnunarinn-
ar, og af því hafi einungis rúmur
milljarður skilað sér.
Verð á nokkrum af helstu hrávör-
um heims, svo sem hrísgrjónum,
korni, olíu og sykri, hefur hækkað
um helming á einu ári og segir Ban
að hækkandi matarverð bitni mest á
þeim sem fátækastir eru og búa við
verstu lífsskilyrðin.
Átaksteymið
Ban mun sjálfur vera í forsvari
átaksteymisins, en auk hans munu
yfirmenn stofnana SÞ og Alþjóða-
bankans eiga þar sæti. Ban segir það
nauðsynlegt að veita bændum í fá-
tækari ríkjum fjárhagslega aðstoð.
„Til viðbótar við hækkandi mat-
vælaverð verðum við vitni að því að
bændur í þróunarríkjum bæði
rækta og framleiða minna vegna
hækkandi áburðar- og orkuverðs.
Við verðum að grípa til allra mögu-
legra ráða til að styðja þá bændur, til
að við sjáum ekki fram á enn frekari
matarskort á næsta ári.“
Ban segir ástæður matvælaskorts-
ins margvíslegar, þar á meðal lofts-
lagsbreytingar, langvarandi þurrka,
breytt neyslumynstur í stærstu þró-
unarríkjunum og nýtingu ræktar-
lands til framleiðslu á lífrænu elds-
neyti. Hann vonar að þjóðarleið-
togar mæti til fundar í Róm í júní til
að ræða aðgerðir gegn vandanum.
Varar við útflutningsbanni
Robert Zoellick, yfirmaður Al-
þjóðabankans sem einnig sótti
fundinn í Bern, varaði stjórnvöld í
ríkjum heims við að grípa til út-
flutningsbanns í þeim tilgangi að
vernda matvælabirgðir heima fyrir.
Stjórnvöld í Indlandi, Rússlandi,
Argentínu, Egyptalandi, Víetnam
og fleiri ríkjum hafa þegar gripið til
þessa ráðs. „Þessar ívilnanir ýta
undir hamstur, þrýsta verðinu upp
og bitna á þeim fátækustu sem
rembast við að komast yfir mat.“
Átaksteymi komið á
vegna matarkreppu
Ban Ki-Moon segir nauðsynlegt að veita bændum í fátækari ríkjum fjárhagsaðstoð
Neyðaraðstoð Óttast er
að hækkandi mat-
vælaverð leiði til uppþota
í fátækum ríkjum.
➤ Verð á hrísgrjónum hefurhækkað um 74% á einu ári og
verð á hveiti um 130%.
➤ Ástæður matarskortsins erumeðal annars aukin eft-
irspurn í Kína og Indlandi og
hækkandi olíuverð.
➤ Alþjóðabankinn hyggst tvö-falda lánsfjármagn sitt til
landbúnaðar í Afríku á næstu
tólf mánuðum.
MATARSKORTUR
Lífsýni úr Austurríkismannin-
um Josef Fritzl staðfesta að hann er
faðir barnanna sex sem Elisabeth,
dóttir hans, ól á meðan hún var
læst inni í gluggalausum kjallara
Fritzl um 24 ára skeið. Hinn 73 ára
Fritzl var úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald í gær, en tals-
maður lögreglu segir hann skipu-
lega hafa blekkt eiginkonu sína,
fjölskyldu og nágranna í austur-
ríska bænum Amstetten.
Fritzl sagði ekkert er hann mætti
fyrir dómara í bænum Sankt Pöl-
ten í gær, en hann hafði áður við-
urkennt að hafa læst dóttur sína í
kjallaranum, að sögn til að vernda
hana fyrir eiturlyfjum.
Lögregla hélt áfram að rannsaka
kjallarann í gær, auk efri hæða
hússins þar sem Fritzl bjó með eig-
inkonu sinni og þremur börnum
Elisabethar. atlii@24stundir.is
Blóðskömm í Austurríki
Lífsýni sanna að Fritzl
er faðir barnabarnanna
Evrópusambandið og serbnesk
stjórnvöld hafa gert með sér
samning um
aukna sam-
vinnu. Skrifað
var undir
samninginn,
sem túlka má
sem fyrsta skref
Serbíu að ESB-
aðild, eftir að
samkomulag
náðist við hol-
lensk og belgísk stjórnvöld sem
voru treg til að samþykkja samn-
inginn. Talið er að þetta styrki
stöðu evrópusinnaðra flokka í
Serbíu, en þingkosningar fara
fram í landinu þann 11. maí. Taf-
ir urðu á samningnum þar sem
Serbum hefur ekki tekist að ná og
framselja meinta glæpamenn til
stríðsglæpadómstólsins í Haag. aí
Aukin samvinna í Evrópu
Serbar skrefi
nær ESB-aðild
Rúmlega tvö þúsund alifuglum
og öndum hefur verið fargað eftir
að fuglaflensu varð vart á bónda-
býli á dönsku eynni Fjóni á
mánudaginn. Býlið er nærri bæn-
um Stenstrup og var sett í eins
kílómetra sóttkví eftir að fugla-
flensan greindist.
Fuglaflensa hefur áður greinst á
bóndabýlum í Danmörku, síðast
fyrir rúmum tveimur árum. Þá
var gripið til þess ráðs að banna
útflutning á kjöti frá eynni um
skeið. aí
Fuglaflensa á Fjóni
Tvö þúsund
fuglum fargað
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Rýmingarsalan
heldur áfram
þangað til allt er selt!!
Geggjaður afsláttur
af öllum vörum.
Ekki missa af þessu