24 stundir - 30.04.2008, Qupperneq 11
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 11
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Hönnunin byggir á gamalli erki-
týpu af magasleða. Þetta er auð-
vitað eldgömul fyrirmynd,“ segir
Dagur Óskarsson vöruhönnuður
um sleða, EA 800, sem hann hefur
hannað. Sleðinn var lokaverkefni
hans í vöruhönnun við Listahá-
skóla Íslands og er meðal þess sem
er til sýnis á útskriftarsýningu
skólans sem stendur yfir á Kjar-
valsstöðum til 1. maí.
Tengsl við heimahagana
Dagur segir hugmyndina að
sleðanum hafa kviknað vegna þess
að hann vildi gera eitthvað sem
tengdist heimabæ hans, Dalvík.
„Ég sótti svolítið í gamlar ljós-
myndir sem afi minn skildi eftir
sig,“ segir Dagur og bætir við: „Ég
fann umslög sem merkt voru sem
vetrar-, snjóa- og skíðamyndir.
Þar voru meðal annars svona sleð-
ar.“ Dagur segir sleða sem þessa
hafa verið mikið notaða til þess að
flytja kol og margt fleira yfir ófær-
ur og að þeir hafi verið til í öllum
stærðum og gerðum. Dagur segir
nafn sleðans, EA 800, einnig hafa
tengingu við Dalvík. „EA er merk-
ing skipa á Eyjafjarðarsvæðinu og
800 táknar lengdina á honum.“
Framleiddur á Dalvík
„Þegar ég fór af stað með þetta
verkefni þá var ég með það í huga
að láta Promens, sem áður hét
Sæplast, á Dalvík framleiða sleð-
ann fyrir mig,“ segir Dagur. „Þau
sjá um að steypa hann en ég
hannaði sleðann og smíðaði mót-
ið fyrir hann,“ bætir hann við.
Dagur segir að Promens muni
koma til með að geta fjöldafram-
leitt sleðann. „Þetta er nokkuð dýr
framleiðsla þar sem það tekur
nokkurn tíma að búa til hvern
sleða. Það er þó hægt að samnýta
þetta með annarri framleiðslu og
það heldur verðinu niðri.“
Hugsaður sem leikfang
Dagur segir sleðann aðallega
vera hugsaðan sem leikfang. „Þeg-
ar ég var að taka upp kynning-
arefni fyrir sýninguna fékk ég lán-
aðan bróðurson minn og við
eyddum heilum degi á sleðanum,“
segir Dagur og bætir við: „Hann
virkaði svo vel að ég ætlaði aldrei
að ná litla manninum heim úr
brekkunni.“
Endalausir möguleikar
Dagur segir að hann sé nú þeg-
ar búinn að fá nokkrar pantanir
frá fólki sem vildi endilega fá sleða
um leið og byrjað væri að fram-
leiða þá. Hann segist ekki enn
hafa ákveðið á hvaða hátt hann
ætli að markaðssetja sleðann. „Ég
er enn að velta þessu fyrir mér og
ætla að fá ráðgjöf frá fólki sem
þekkir til,“ segir Dagur. „Þetta er
spurning um það hvort ég ætli að
selja hann á bensínstöðvum eða í
búðum eins og Saltfélaginu.“
Dagur segir möguleikana í fag-
inu vera endalausa. „Það endur-
speglast mjög vel á sýningunni.“
Sleði í nýjum
búningi
Dagur Óskarsson hannaði sleða eftir gamalli fyrirmynd
EA 800 Dagur Ósk-
arsson með sleðann
EA 800.
➤ Sleði EA 800 er til sýnis á út-skriftarsýningu Listaháskóla
Íslands á Kjarvalsstöðum.
➤ Þar eru til sýnis lokaverkefninemenda úr myndlistardeild
og hönnunar- og arkitekt-
úrdeild.
➤ Síðasti sýningardagur er 1.maí.
VÖRUHÖNNUN
24stundir/Kristinn
MARKAÐURINN Í GÆR
! ""#
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>53?@A5
3?A5@@B@B
354A>CCB5
?3543453
D??3@433D
553@5AA
B>CA>4B5
?5>C5C?C3D
53>4@B@?A
?4DAB?>4
C?BADC44
>?3D5C?>D
?45335
CA34?3AA
,
?34B4AAA
DD3>CBD
?5>AD53
,
,
D3@C4BC44
,
,
B43BDCC
,
,
BDB>AAAA
>DA43CA
,
@E3A
3CED5
?DED?
4E>?
?4E4A
D?EBA
DDE?A
C5AEAA
DBEB5
CBE@A
5EA?
?DECC
3E@D
BCE>A
?E35
4E44
D>?EAA
?>DAEAA
3>5EAA
AEC5
?>4EAA
,
,
,
,
,
5A35EAA
?AEAA
,
@E35
3CE5A
?DE3D
4E>D
?4E@A
DDE?5
DDE3A
C5DEAA
3AE3A
BAEDA
5EA4
?DEBA
3E@4
BBEAA
?E3@
4E@D
D>>EAA
?>3BEAA
355EAA
AEC4
?5AEAA
DEAA
D?EB5
@E5A
,
,
5??AEAA
?DEAA
5EBA
/
- @
>B
>D
C
D5
?
?3
>D
>3
@
DD
>5
D
?3
,
3
3
3
,
,
DD
,
,
?
,
,
4
?
,
F#
-#-
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
D?>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DB>DAAC
DC>DAAC
D3>DAAC
DB>DAAC
?A3DAAC
?@>DAAC
DD>DAAC
4?DDAA@
DDCDAA@
DB>DAAC
DB>DAAC
@3DAAC
● Mestu viðskiptin í Kauphöll
OMX í gær voru með bréf í Kaup-
þingi fyrir 1.549 milljónir króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
í Century Aluminum eða um
3,67%. Bréf í Atlantic Petroleum
hækkuðu um 1,49% og bréf í
Atorku um 0,14%.
● Mesta lækkunin var á bréfum í
Icelandair Group, 4,13%. Bréf í
Landsbanka Íslands lækkuðu um
3,23% og bréf í SPRON um 2,5%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
1,57% og stóð í 5.215,87 stigum í
lok dags.
● Íslenska krónan veiktist um
1,33% í gær.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 0,62%. Breska FTSE-
vísitalan stóð í stað og þýska
DAX-vísitalan lækkaði um 0,6%.
Ameríska vikuritið Newsweek hef-
ur valið Geir Haarde forsætisráð-
herra „grænasta stjórnmálaleið-
togann.“ Af því tilefni er viðtal við
Geir í alþjóðlegri útgáfu tímarits-
ins. Í inngangi að viðtalinu segir
blaðamaður Newsweek frá því að
heppileg lega Íslands hafi gert það
að verkum að hækkandi heims-
markaðsverð á olíu, kolum og
jarðgasi hafi ekki komið jafn illa
við Íslendinga og marga aðra. Þá segir jafnframt að þrátt fyrir að Ís-
land sé auðugt af náttúrulegum auðlindum, hafi það tekið stjórnvöld
áratugi að venja þjóðina af notkun kola og annarra jarðefnaeldsneyta.
Í viðtalinu er m.a. fjallað um þróun íslenska hagkerfisins úr því að
grundvallast nánast eingöngu á fiskveiðum. Þá er Geir spurður út í
ágreininginn vegna virkjunar Kárahnjúka. hos
Geir „grænasti“ leiðtoginn
Olíufyrtækið BP og Shell skiluðu
bæði betri hagnaði fyrstu þrjá
mánuði ársins en búist hafði ver-
ið við. Háu olíuverði er þakkaður
hagnaðurinn en það nálgast óð-
fluga 120 bandaríkjadali á tunnu.
Hagnaður Shell var 7,8 milljarðar
bandaríkjadala samanborið við
6,9 milljarða á sama tímabili fyrir
ári síðan. Hagnaður félagsins á
árinu 2007 var 27,6 milljarðar
bandaríkjadala.
Á fyrstu þremur mánuðum þessa
árs var hagnaður BP 6,6 millj-
arðar bandaríkjadala, sam-
anborið við 4,4 milljarða á sama
tímabili í fyrra.
Hlutabréf í báðum félögum
hækkuðu í kauphöllinni í Lond-
on, BP um tæp 5,96 prósent og
Shell um 5,36 prósent. ejg
Olíufélög græða
á háu olíuverði
Tap skandinavíska flugfélagsins
SAS nam 13,26 milljörðum ís-
lenskra króna á fyrsta fjórðungi
þessa árs. Á sama tímabili í fyrra
nam tap SAS 18 milljónum
sænskra króna. SAS ætlar að
segja eitt þúsund manns upp
störfum til þess að draga úr
kostnaði í rekstri. mbl.is
SAS segir upp
þúsund manns
Fulltrúar fyrirtækisins 3x Technology gerðu góða ferð á sjávarútvegs-
sýninguna í Brussel á dögunum. Þar voru gerðir þrír samningar sam-
tals að andvirði hátt í 200 milljónir króna. Fyrirtækið sérhæfir sig í
tækjalausnum fyrir matvælaiðnað. „Við veltum um hálfum milljarði
þannig að þetta er mjög stórt,“ segir Jóhann Jónasson framkvæmda-
stjóri 3x. Hjá 3x starfa um 40 manns á Ísafirði en félagið er einnig með
söluskrifstfu í Reykjavík. Jóhann segir það hafa marga kosti að reka
fyrirtæki eins og 3x úti á landi. „Samgöngurnar hamla þó svakalega.
Þess vegna erum við með söluskrifstofu í Reykjavík því við fáum ekki
allar sendinefndir sem koma til Íslands til Ísafjarðar,“ segir hann.
Hann segir það myndi verða til mikilla bóta fyrir framleiðslugrein-
arnar á landsbyggðinni ef strandflutningar yrðu hafnir að nýju. ejg
3x selur fyrir hátt í 200 milljónir
Hagnaður bandaríska greiðslu-
kortafyrirtækisins MasterCard
ríflega tvöfaldaðist á fyrsta árs-
fjórðungi. Hagnaðurinn nam
446,9 milljónum dala eða rúmum
32 milljörðum króna, sam-
anborið við 214,9 milljónir dala á
fyrsta ársfjórðungi 2007.
Hagnaðurinn
tvöfaldaðist
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Þetta er spurning um það hvort
ég ætli að selja hann á bens-
ínstöðvum eða í búðum eins og Salt-
félaginu.
Ferðaskrifstofa
Sjóðheittsólarlottó!
Spilaðu með og láttu sólina leika við þig.
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is
Í boði eru 200 sæti til Krítar, Marmaris, Mallorca og Costa Del Sol.