24 stundir - 30.04.2008, Qupperneq 15
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 15
Hið sunnlenska tvíeykiFramsóknar, GuðniÁgústsson
formaður og Bjarni
Harðarson þing-
maður, er alveg
austur í Flóa úti í
mýri eða jafnvel of-
an í skurði í Evr-
ópumálum í samanburði við mál-
flutning fyrrverandi formanns
flokksins, Jóns Sigurðssonar.
Jón, sem tók við formennsku af
Halldóri Ásgrímssyni, hefur
bæði veitt Framsókn og Seðla-
bankanum forystu og hann segir:
- Tími umsóknar er kominn. -
Grein hans í Morgunblaðinu í
gær vakti verulega athygli og var
þegar í stað skrifað um hana víða
um ritvöllinn og hún jafnvel köll-
uð tímamót í Evrópuumræðunni.
Einn af þeim sem gripu Evr-ópubolta Jóns Sigurðs-sonar á lofti var við-
skiptaráðherrann. „Yfirveguð
grein Jóns er til
marks um að stór
hluti Framsókn-
arflokksins er tilbú-
inn til að láta til
skarar skríða og
keyra fram nýja
stefnu flokksins … Þvert á við-
horf formannsins núverandi sem
aftekur með öllu aðildarumsókn
að ESB. Þunginn er slíkur að
menn hætta á klofning í flokkn-
um.“ Björgvin G. Sigurðsson er
þó að tala við fleiri en Framsókn,
því hann segir alla flokka nema
Samfylkingu klofna. Ráðherrann
varpar fram hugmynd um tvö-
falda þjóðaratkvæðagreiðslu til að
ná Evrópuumræðunni úr hjólför-
um flokkanna.
Almenningur í landinu eruppteknari af verðbólg-unni og eigin lífskjörum
en klofningi flokka í Evrópu-
málum. Ákall um
aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar berast úr
öllum áttum.
Guðni Ágústsson
og fleiri í Framsókn,
sem nú er sögð hafa
klofnað, klifa á því að rík-
isstjórnin hafi sofnað og að ekki
sé hægt að vekja hana. Björgvin
G. Sigurðsson rumskaði þó þegar
hann ákvað að veita fjórar millj-
ónir króna í verðlagseftirlit.
„Fjórar milljónir gegn verðbólgu-
draugnum,“ segir Anna Krist-
insdóttir, Framsókn, og finnst
óþarft að vakna fyrir slíka smá-
aura. „Betur heima setið en af
stað farið,“ segir hún.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Það er ýmislegt sem hefur
flogið í gegnum kollinn að und-
anförnu við að fylgjast með frétt-
um af mótmælum „atvinnubíl-
stjóra“. Til að byrja með held ég
að flestum hafi þótt í fínu lagi að
menn létu í sér heyra, en þegar á
mótmælin leið fóru að renna á
mann tvær grímur. Auðvitað eru
allir ósáttir við hátt olíuverð en
alls staðar í heiminum glíma
menn við þennan vanda vegna
hækkandi heimsmarkaðsverðs,
svo ekki er bara við íslensk
stjórnvöld að sakast. Svo er það
þetta með hvíldartímann sem
þeir vilja afslátt af! Sú krafa held
ég að hafi lítinn hljómgrunn
meðal almennings sem keyrir um
vegi landsins, þar sem margir
hverjir verða skelfingu lostnir við
að mæta stórum vöruflutninga-
bílum á oft alltof þröngum veg-
um. Ef í ofanálag bætist síðan út-
keyrður bílstjóri held ég að
margir verði hugsi vegna þessara
krafna. Ástand veganna og bæt-
ing þeirra er auðvitað brýnt mál
sem einmitt á að gera átak í á
þessu kjörtímabili. En burtséð frá
því held ég að krafan um und-
anþágu frá hvíldartímanum sé
ekki mál sem eigi sér hljómgrunn
meðal almennings. Hvað er ég þá
að segja? Að málstaður mótmæl-
enda sé vondur eða eigi ekki rétt
á sér? Nei, alls ekki. Þvert á móti
ber ríkisvaldinu að taka mark á
svona mótmælum og skoða t.d.
leiðir varðandi bensíngjaldið við
þessar aðstæður.
Aðferðir og viðbrögð
Það eru aðferðirnar sem vekja
mann til umhugsunar og ekki
síður viðbrögð lögreglu við þeim.
Ég vil til dæmis halda því fram
að friðsamleg mótmæli við komu
forseta Kína hér um árið hafi
vakið fleiri Íslendinga til um-
hugsunar um þann málstað held-
ur en málstaður vörubílstjóra nú.
Þá var mættur til landsins nokk-
ur hópur mótmælenda sem fór
með friði og hélt á lofti spjöldum
og veifum í gulum lit. Það var
gert til að vekja athygli á mann-
réttindabrotum stjórnvalda í
Kína og komu forseta landsins
hingað í opinbera heimsókn.
Viðbrögðin við þeim mótmæl-
um, af hálfu lögreglu, voru hins
vegar nokkuð ofsafengnari og
harðari en sjá mátti við mótmæl-
um vörubílstjóranna. Strax í
upphafi var fólk handtekið og
ekki var um neinar „viðræður“
að ræða eins og í tilfelli vörubíl-
stjóranna. Til að setja þessa at-
burði í samhengi þá skal það rifj-
að upp að 17. júní árið 2002
voru nokkrir mótmælendur
staddir við Austurvöll og lyftu
spjöldum sínum í mótmælaskyni
þegar hátíðardagskrá fór þar
fram. Undirrituð var þá formað-
ur Þjóðhátíðarnefndar og flutti
ég ræðu þar sem ég gagnrýndi
m.a. hvernig tekið var á frið-
sömum mótmælendum dagana á
undan. Einnig hvatti ég íslensk
stjórnvöld til að standa í lapp-
irnar gagnvart erlendum ríkjum
sem brjóta mannréttindi og því
varð mér nokkuð brugðið, að sjá
lögregluna snúa niður þetta fólk
sem braut það eitt af sér að vera
á staðnum, klæðast gulu og lyfta
spjöldum. Ég velti því fyrir mér
hvað gerst hefði ef hent hefði
verið grjóti eða lögreglumenn
svívirtir og slasaðir líkt og gerðist
í vikunni. Það er augljóst að það
er mikill munur á viðbrögðum
lögreglu nú eða í tilfelli Falun
Gong um árið. Það leiðir aftur
hugann að ástæðunni fyrir þess-
um mismunandi viðbrögðum.
Skyldi það helgast af áhættumati?
Var það mat lögreglu að Falun
Gong-liðar með gulu veifurnar
væru hættulegri en vörubílstjór-
arnir og því bæri að handtaka
það lið strax? Eða liggur eitthvert
annað mat á bak við þessi mis-
munandi viðbrögð? Myndi ég
t.d. komast upp með að kalla
lögregluna fæðingarhálfvita og
ausa hana svívirðingum ef ég
væri stoppuð fyrir of hraðan
akstur? Ég efast um það. Nú er
ég ekki að gagnrýna lögreglu fyr-
ir viðbrögðin við mótmælum
vörubílstjóra undir lokin, eina
sem upp úr stendur er spurn-
ingin um hvers vegna beitt er
mismunandi aðferðum eftir því
hver á í hlut?
Höfundur er alþingismaður
Er sama hver mótmælir?
VIÐHORF aSteinunn Valdís Óskarsdóttir
Var það mat
lögreglu að
Falun Gong-
liðar með
gulu veif-
urnar væru
hættulegri
en vörubíl-
stjórarnir og því bæri að
handtaka það lið strax?
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Miðvikudagur 30. apríl 2008
Skærum þeirra Móra og Poetrix er
ekki lokið. Svívirðingarnar ganga á
báða bóga í dagblöðum og rapp-
textum.
» Meira í Morgunblaðinu
Rappstríð heldur áfram
Vélhjólahjálm-
ar og hönnun
innblásin af
furðuveröld
leikstjórans
Stanley Ku-
brick var með-
al þess sem sýnt var á Áströlsku
tískuvikunni.
» Meira í Morgunblaðinu
Dimm framtíðarsýn
Hilmar Oddsson
bíður spenntur eftir
jólaljósunum, því
þegar þau koma
getur hann hafið
upptökur á nýrri
kvikmynd. Í mynd-
inni verður baslið
sem fylgir jólunum tekið til um-
fjöllunar.
» Meira í Morgunblaðinu
Jólabaslið í bíó
reykjavíkreykjavík
ATVINNUBLAÐIÐ
atvinna@24stundir.is
alltaf á laugardö
gum
Pantið gott pláss t
ímanlega