24 stundir - 30.04.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
framkvæmdastjóri Special Olymp-
ics á Íslandi, sótti nýverið ráð-
stefnu í Katar þar sem fjallað var
um börn með sérþarfir og sérstök
áhersla lögð á samspil íþrótta og
getu. „Á ráðstefnunni var fjallað
um íþróttaiðkun barna með fötlun
út frá almennum mannrétt-
indum,“ segir Anna Karólína.
„Íþróttaiðkun er talin það mik-
ilvæg að það eru almenn mann-
réttindi að geta stundað einhvers
konar íþróttir. Börn með fötlun
vilja vitanlega geta nýtt sér þau til-
boð sem eru í boði og eiga valkosti,
rétt eins og við hin. Þau vilja ekki
vera útilokuð.“
Barátta foreldra
Íþróttaiðkun er ekki síst mik-
ilvæg fyrir börn með fötlun því
margvíslegar rannsóknir hafa
sýnt fram á að íþróttir auki
hreyfiþroska og félagslegan
þroska þeirra. Aðspurð hvernig
staðið sé að íþróttaiðkun barna
með fötlun á Íslandi segir Anna
Karólína að þetta sé ágætis byrj-
un. „Ég óttast samt að foreldrar
þurfi að berjast fyrir því að
koma börnunum í þá íþrótt sem
þau hafa áhuga á og ef ég tek
sund sem dæmi þá vantar oft að-
stoð fyrir börn sem eru alvarlega
fötluð og það hefur háð þeim,“
segir Anna Karólína sem heim-
sótti Shafallah-miðstöðina í
Katar en miðstöðin hefur vakið
alþjóðaathygli fyrir metn-
aðarfullt starf við kennslu og
þjálfun barna með sérþarfir.
„Þar er mjög mikil áhersla lögð á
hreyfiþjálfun og hver morgunn
byrjar með hreyfiæfingum fyrir
nemendur. Í erindi frá lækni
Shaffallah lagði hann mikla
áherslu á að íþróttastarf getur
aukið sjálfstæði, styrkt sjálfs-
mynd og félagsþroska auk ann-
arra þátta enda hafa aðstand-
endur samtakanna upplifað það
sterkt hvað einstaklingar hafa
náð aukinni færni í gegnum
íþróttastarfið.“
Snemmtæk íhlutun
Anna Karólína segist vilja koma
af stað umræðu um snemmtæka
íhlutun og hvaða áhrif það gæti
haft að þjálfa börn með fötlun
snemma. „Sjúkraþjálfarar sinna
þessu upp að vissu marki en for-
eldrar fá svo takmarkaðan tíma og
margir þurfa að bíða lengi. Ég held
að allir séu sammála um að
íþróttaiðkun hafi góð áhrif en það
þarf að vinna betur í þessu. Við
vitum náttúrlega að börn fá mis-
munandi tilboð og börn með fötl-
un fá ekki að takast á við það sama
og önnur börn. Mér finnst kannski
vanta svolítið upp á að það sé
fylgst betur með börnum með fötl-
un, því þau eru stundum sett til
hliðar. Þau fá kannski ekki íþrótta-
kennslu en þess í stað sjúkraþjálf-
un sem á að vera nóg. Á ráðstefn-
unni í Katar kom fram að ef
eitthvað er þá eiga börn með fötl-
un að fá tvöfalt meiri hreyfiþjálfun
en ófötluð börn,“ segir Anna Kar-
ólína og bætir við að á Íslandi hef-
ur sund verið sérstaklega vinsælt
fyrir börn með fötlun. „Hér heima
hefur verið lögð mikil áhersla á að
börn með fötlun fari í sund. Án
þess að ég sé að gera upp á milli
greina þá höfum við þá trú að
sund geri mikið fyrir börnin og
sundið er sérstaklega gott fyrir
börn sem eru með stífa vöðva og
börn sem eru mikið fötluð og eiga
erfitt með að hreyfa sig. Börnin
hreyfa sig miklu betur í vatninu og
upplifa sig frekar sem jafningja.“
Fötluð börn auka hreyfiþroska og félagsþroska með íþróttaiðkun
Almenn mannréttindi
að stunda íþróttir
➤ Á ráðstefnunni var meðalannars fjallað um hvernig
aukin íþróttaiðkun getur eflt
færni og lífsgleði barna og
ungmenna.
➤ Sérstök málstofa var helguðeinhverfu og á næsta ári
verður efnt til alþjóðlegs
átaks til að auka skilning á
henni.
RÁÐSTEFNANÍþróttaiðkun barna með
fötlun er almenn mann-
réttindi, að sögn Önnu
Karólínu Vilhjálmsdóttur
sem óttast að foreldrar
þurfi að berjast fyrir
þessum rétti barna sinna.
Í Katar Hér er Anna Karól-
ína ásamt ungum fóta-
lausum dreng.
Hamraborg 7
Kópavogi
Sími 564 1451
www.modurast.is
Sumarlínan
Mikið úrval af
brjóstagjafa-
höldurum
í brjóstagjafabolum
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Hjá okkur fáið þið mikið úrval af
kerrum og vögnum fyrir börnin
Plastmódel miklu í úrvali
Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is
- kemur þér við
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744