24 stundir - 30.04.2008, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Bínubækur & myndalottó
fyrir 2 – 6 ára fjörkálfa
Ásthildur Bj. Snorradóttir er tal-
meinafræðingur og hefur langa
reynslu af því að vinna með börnum.
Ef börn skilja og vita til hvers er ætlast
af þeim hverfa mörg hegðunar-
vandamál eins og dögg fyrir sólu.
Leikskólar mæla eindregið
með Bínubókunum!
styrkja boðskiptafærni, leiðbeina og sýna hvernig á
að sitja kyrr, hlusta, bíða, gera til skiptis.
Skemmtilegar sögur,
leikur og málörvun.
„Við stýrum því ekki hverjir búa
hér á landinu. Þegar ungt fólk
kemur hingað og velur að búa hér
viljum við bjóða það velkomið.
Starf Rauða krossins beinist í
auknum mæli að innflytjendum og
þar er rík þörf fyrir stuðning og
hjálp,“ segir Garðar H. Guð-
jónsson, formaður Kópavogs-
deildar Rauða krossins.
„Enter er starf með ungum inn-
flytjendum 9-12 ára fyrir nem-
endur í móttökudeild fyrir nýbúa í
Hjallaskóla. Markmið verkefnisins
er að auðvelda börnum af erlend-
um uppruna aðlögun að íslensku
samfélagi og þátttöku í því.“
Garðar segir forsögu verkefn-
isins vera þarfagreiningu sem hafi
leitt í ljós þörf fyrir stuðning við
börn nýbúa. „Við tókum viðtöl við
alla þá er tengjast verkefnum
Rauða krossins, félagsþjónustuna,
skólana, fræðslumiðstöð, lögregl-
una og mæðravernd. Í viðtölunum
komumst við á snoðir um að það
gæti verið góð hugmynd að tengj-
ast betur ungum nýbúum í Kópa-
vogi. Til þess að gera það komum
við okkur í samband við nýbúa-
deildina í Hjallaskóla og úr því
vannst þetta verkefni.
Verkefnið er hugsað sem eins
konar samfélagsfræðsla. Krakkar
koma allan veturinn til okkar einu
sinni í viku og gera eitthvað sam-
an. Það er farið í leiki og fleira,
einnig höfum við heimsótt stofn-
anir og fyrirtæki. Við höfum til
dæmis farið og heimsótt bæj-
arstjórann. Við viljum opna þeim
góða sýn á samfélagið sem þau búa
í til að efla þau.“
dista@24stundir.is
Tómstundastarf fyrir unga innflytjendur
Enter krakkar
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Uppeldishæfni foreldra er van-
rækt,“ segir Ólafur Grétar um
viðhorf íslenskra foreldra til for-
eldrahlutverksins. „Flestir leggja
hart að sér fyrstu árin í lífi
barnsins. Það er ansi algengt að
foreldrar séu búnir að snúa bak-
inu við unglingum þegar þeir
eru komnir af barnsaldri. Láta
þá afskiptalausa. Það er mín
skoðun að það sé þekkingarleysi
og mikill misskilningur sem ligg-
ur þar að baki. Unglingar hafa
mikla þörf fyrir foreldra sína á
þessum erfiða og óreiðukennda
tíma í lífi þeirra þannig að þeir
geti orðið að heilbrigðum og
sterkum einstaklingum.“
Ób-ráðgjöf fór af stað með
verkefni árið 2004 sem þjónar
foreldrum unglinga. Unglingar í
áttunda bekk í tuttugu og tveim-
ur grunnskólum landsins og for-
eldrar þeirra fá fræðslu um sam-
skipti innan fjölskyldunnar.
„Í sumum skólum mætti hvert
einasta foreldri á fræðslufund,“
segir Ólafur. „Sem er einsdæmi.“
Óöryggi foreldra kviknar
Að sögn Ólafs Grétars er það
einmitt þegar börnin komast á
unglingsár sem foreldrar þurfa
að horfast í augu við eigin
bresti. „Uppeldishæfni er ekki
sjálfgefinn eiginleiki sem hver og
einn býr yfir en allir geta bætt
sig í uppeldishlutverkinu og öðl-
ast aukið öryggi og ánægju. Það
er á unglingsárunum sem við
fáum aukna sjálfsvitund, kyn-
hneigð og aðgreinum okkur frá
öðrum, til að mynda foreldrum
okkar,“ skýrir Ólafur frá. „Þetta
eru þættir sem fullorðnir hafa
lítið skoðað hjá sjálfum sér,
fengu lítinn stuðning með þegar
þeir sjálfir voru unglingar þann-
ig að þeirra óöryggi verður lif-
andi þegar þeir mæta unglingn-
um sínum.“
Ólafur Grétar segir frá því að
oft vilji það því gerast að í stað-
inn fyrir að foreldrar takist á við
sig sjálfa og séu til staðar fyrir
unglinginn á heimilinu gefist
þeir upp. Uppgjöfin lýsi sér helst
þannig að unglingurinn fái að
komast á fullorðinsárin án aga,
aðhalds og hvatningar.
„Reglur styðja og gefa kjöl-
festu,“ segir Ólafur. „Að búa til
reglur fyrir unglinginn sem miða
að velferð hans og fjölskyld-
unnar allrar felur í sér djúpa og
þroskaða ást.“
Velferð fjölskyldunnar
Ólafur Grétar nefnir að helsta
togstreita milli unglinga og for-
eldra felist í sjálfstæðisbaráttu
unglingsins á heimilinu og þörf
hans til að aðgreina sig frá for-
eldrum sínum.
„Partur af því að vaxa úr grasi
er að hafna foreldrunum,“ segir
Ólafur Grétar. „Unglingar þurfa
að hafa fullt leyfi til að hafna
foreldrum sínum en þeir mega
aldrei hafna unglingnum. Ást-
úðin þarf að vera skilyrðislaus
og þarna reynir á þroska foreldr-
anna.“
Að sögn Ólafs Grétars er verk-
efni foreldra þrælerfitt þegar
hættur nútímans bætast við.
„Það er þá helst klámvæðingin
og neysluaukningarstefna sam-
félagsins sem er fjandsamleg og
þjálfar unglinginn í gegnum alls
kyns miðla að suða í foreldrum
sínum og sigra í allskyns bar-
áttu. Foreldrar mega ekki láta
neyslusamfélag ala upp unglinga.
Unglingsárin eiga ekki að snú-
ast um það að byrja að stunda
kynlíf og neyta áfengis. Ungling-
ar eru efni í meira en það. Þeir
mega hafa veigameira hlutverk á
heimilinu sem einstaklingar að
fullorðnast.“
Skilyrðislaus ástúð og hæfilegur agi í bland
Ekki snúa baki við
unglingnum
„Sitji fjölskyldan saman
við kvöldverðarborðið
hvern dag og tali saman
um daginn og veginn er
hún strax komin í elítu-
flokk fjölskyldna,“ segir
Ólafur Grétar Gunn-
arsson, fjölskylduráðgjafi
hjá Ób-ráðgjöf, um sam-
skipti foreldra við börn
og unglinga á heimilinu.
Foreldrar í þjálfun Ólafur
Grétar hjá Ób-ráðgjöf gefur
foreldrum góð ráð til eflingar
í foreldrahlutverkinu.