24 stundir - 30.04.2008, Side 21
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 21
Gyða Haraldsdóttir sálfræð-
ingur tók saman eftirfarandi ráð
fyrir foreldra sem vilja örva mál
ungra barna. Þau ætti að nota í
samræmi við þroska og aldur
barna.
Málörvun
-Nota skal almennt stuttar
setningar við barnið og kveða
skýrt að hverju orði.
-Nefna heiti hluta og at-
burða sem koma fyrir í dag-
legum samskiptum við barnið.
-Herma eftir barninu stök
orð og setningar, með hvetj-
andi áherslu og leiðréttum
framburði.
-Hlusta á barnið og svara
því þegar það segir eitthvað,
örva þannig málnotkun þess.
-Gefa barninu tíma þegar
það sýnir viðleitni til að tala.
Veita því hrós og hvatningu.
-Skoða myndir með
barninu. Nota einfaldar
myndabækur eða myndaspjöld
með 1-4 myndum, t.d. úr
Lottó-spilum. Þegar geta
barnsins eykst má nota bækur
með fleiri myndum.
-Stoppa við hverja mynd,
benda á og nefna. Reyna svo
að láta barnið benda á mynd
sem spurt er um (t.d. hvar er
kisan?) og vera þá fyrst bara
með eina mynd á blaðsíðu en
svo má láta barnið velja rétta
mynd af 2 eða fleiri.
Reyna að láta barnið sjálft
nefna myndirnar eða hvað er
að gerast, spyrja t.d. hver er
þetta, hvað heitir þetta, hvað
segir þessi, hvað er þessi að
gera?
dista@24stundir.is
Málörvun barna á fyrsta ári
Að byggja upp orðaforða
Myndabækur Koma sér
vel í málræktinni.
Gera má fastlega ráð fyrir fjölgun
hjólabrettakappa á göngustígum
og torgum þéttbýlisstaða landsins
með sumrinu. Á vef Forvarnahúss
Sjóvá er hægt að nálgast upplýs-
ingar um helstu öryggisatriði í
tengslum við hjólabrettaiðkun. Til
dæmis er mælt með því að velja
hjólabretti sem hæfa aldri og
þroska barnsins, og að þau klæðist
góðum skóm með stömum botn-
um.
Ef hjólin eru slitin og ójöfn þarf að
skipta um þau, enda geta illa farin
hjól valdið falli jafnt hjá byrj-
endum sem reyndum brettaiðk-
endum. Sandpappírsplatan sem
staðið er á þarf að vera stöm og
síðast en ekki síst er brýnt að sjá
barninu fyrir viðeigandi örygg-
isbúnaði, svo sem hjálmi og hlífum
fyrir olnboga, úlnliði og hné.
Öryggi á
hjólabretti
Í barnaverndarlögum er kveðið á
um útivistartíma barna. Þar kemur
fram að börn 12 ára og yngri mega
ekki vera á almannafæri eftir
klukkan 20 nema í fylgd með full-
orðnum. Börn á aldrinum 13 til 16
ára skulu ekki vera á almannafæri
eftir klukkan 22, nema þau séu á
heimferð frá viðurkenndri skóla-,
íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á
tímabilinu 1. maí til 1. september
lengist útivistartími barna um tvær
klukkustundir.
Lengdur útivist-
artími á morgun
eftir Hallgrím Helgason
tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson
og fleiri
Leikstjóri: Gunnar Helgason
forsýning þri. 30/4 uppselt
frumsýning fim. 1/5 uppselt
sýn. fös. 2/5 uppselt
sýn. mið. 7/5 örfá sæti laus
sýn. fim. 8/5
sýn. fim. 15/5
sýn. fös. 16/5
sýn. lau. 17/5
Miðasala í síma 551 1200
og á leikhusid.is
örfá sæti laus
örfá sæti laus
örfá sæti laus
örfá sæti laus