24 stundir - 30.04.2008, Blaðsíða 23
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 23
„Þjónustutryggingin byggist á
gömlum hugmyndum um að
borga konum fyrir að vera heima
og leysir að mínu mati engan
vanda,“ segir Bryndís Ísfold Hlöð-
versdóttir, Samfylkingunni,
en minnihluti borgarstjórnar
sat hjá í atkvæðagreiðslu um
Borgarbörn – átak Reykjavík-
urborgar sem var samþykkt í leik-
skólaráði fyrir skemmstu.
„Greiðslur sem þessar eru oft
uppnefndar kvennagildra. Þó hef-
ur verið lagt upp með að greiðsl-
urnar verði í sama ferli og fæðing-
arorlofsgreiðslur og þannig reynt
að tryggja að jafnræði sé með
kynjum.
Upphæðin, 35.000 krónur á
mánuði í greiðslu til foreldra, er
að auki það lág að enginn getur
lifað af henni. Þar af leiðir að for-
eldri er ómögulegt að nota þessa
greiðslu til að vera heima með
barninu sínu.
Ég tel að þessar greiðslur séu
flótti frá ábyrgð því í borginni eru
foreldrar í raunverulegum vanda
sem þarf að leysa nú þegar. Við í
minnihluta sátum hjá við at-
kvæðagreiðslu Borgarbarna. Það
stafaði af því að við höfðum afar
skamman tíma til að skoða hvað
þessar áætlanir fela í sér. Við höfð-
um aðeins einn dag til að meta
allt það sem átakið Borgarbörn
felur í sér. Þegar áætlunin er skoð-
uð má sjá að þar felst margt sem
öllum ætti að lítast vel á í sjálfu
sér. Hins vegar er lítið sem er nið-
urneglt og þar má nefna alla
samninga við einkarekna leikskóla
og fyrirhugaða ungbarnaleikskóla.
Við höfum engin svör fengið um
hvort gjaldskrá í þessum skólum
fylgi almennum gjaldskrám til að
mynda.“
dista@24stundir.is
Þjónustutrygging byggist á gömlum hugmyndum
Höfðum lítinn sem engan tíma
Umdeild borgarbörn Bryndísi líst vel á ýmislegt í átakinu Borgarbörn en segir lítið
niðurneglt og þjónustutrygginguna lítið gagnast.
Námskeið fyrir ungmenni á 12.
aldursári og eldri verður haldið á
vegum Rauða krossins víða um
land. Þar er farið í ýmsa þætti sem
varða umgengni og framkomu við
börn. Rætt er um árangursrík sam-
skipti, aga, umönnun og hollar
lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er
áhersla á umfjöllun um slysavarnir
ásamt ýtarlegri kennslu í skyndi-
hjálp. Þátttakendur fá staðfesting-
arskírteini að lokinni þátttöku.
Námskeið fyrir
börn um börn
Foreldrar sem vilja gefa börnum sínum gæludýr ættu aldrei að varpa
ábyrgðinni á þeim alfarið á þau. Því að þó svo að börn séu full ábyrgð-
artilfinningar og öll af vilja gerð krefst umsjón gæludýra ákveðins lág-
marksþroska sem ekki næst á barnsaldri. Það er þó öllum börnum hollt
að gegna ákveðnum skyldum gagnvart dýrum sínum. Til dæmis er gott að
gefa þeim einn dag í viku þar sem þau sjá alein um þau verk sem þarf að
vinna í tengslum við dýrin. Þannig ættu hvorki þau né dýrin að bíða
skaða þótt eitthvað kunni að gleymast.
Ábyrgð á dýrum
Fæstum þykir óhófleg tölvu-
leikjaiðkun göfug fyrir börn. Það
er þó ekki þar með sagt að ekki
séu til gagnlegir tölvuleikir fyrir
börn. Á vef menntagáttarinnar
er til dæmis hægt að spila alls
kyns skemmtilega tölvuleiki sem
örva kunnáttu í stærðfræði og
tungumálum. Leikina má finna á
www.menntagatt.is undir Sér-
verkefni MRN og Stafrænt
námsefni.
Gagnlegir
tölvuleikir
HEILBRIGÐ MELTING ER UNDIRSTAÐA GÓÐRAR HEILSU
Adult‘s Blend
– Fyrir yngri en 65 ára
Inniheldur 12 billjónir vinveittra gerla til
að viðhalda eðlilegri flóru hjá fullorðnu
fólki. Bætir frásog næringarefna, eflir
meltinguna, takmarkar virkni örvera, sýkla
og sjúkdómsvaldandi baktería.
Infant´s Blend
– Fyrir ungabörn og smábörn
Inniheldur 7 tegunda sérhæfðan
gerlahóp sem viðheldur eðlilegri flóru
í ungum börnum. Inniheldur B.infantis,
mikilvægustu örverurnar í meltingarvegi
ungbarna og smábarna.
Advanced Adult‘s Blend
– Fyrir 60 ára og eldri
Inniheldur sérhæfðan gerlahóp sem er
sérstaklega ætlaður eldra fólki og valdir
með tilliti til lakrar starfsemi ristilsins
og lífaldurs. Bætir meltingu próteina
kolvetna og fitu.
Super 8 – Gegn sveppasýkingu
Inniheldur 8 tegundir vinveittra baktería
sem koma jafnvægi á gersveppinn og
óþéttan meltingarveg. Einnig góð gegn
sýkingu í leggöngum og þvagfærum.
Super 5 – Fyrir munnheilsuna
Inniheldur fimm tegundir vinveittra
gerla sem eru gagnlegir fyrir
munnhirðu. Vernda gegn þrusku,
særindum í gómi, tannskemmdum,
vefjaskemmdum og andfýlu.
Probiotic blöndurnar eru sérstaklega hannaðar með tilliti til viðhalds og endurnýjunar heilbrigðrar meltingar sem aftur leiðir til betri heilsu!
Probiotics fæst í Lyfju, Heilsuhúsinu,
Heilsuhorninu Akureyri, Samkaup Úrval
Njarðvík og Blómaval.
Góðu gerlarnir til
höfuðs þeim vondu
Probiotic eru nákvæmar
samsetningar sérhæfðra
gerlahópa fyrir mismunandi
aldursskeið, lífsstíl og ástand.
Regluleg inntaka Probiotic
kemur m.a. jafnvægi á gerla-
gróðurinn, jafnar ástand
meltingarvegarins og eykur
hæfni hans við upptöku á
næringarefnum.
100%
náttúrulegt
ORKA-ÚTHALD-ÁRANGUR
Líf Söndru Fannarsdóttur, rekstrarstjóra á Nings, breyttist
til batnaðar fyrir rúmlega tveimur árum þegar hún hóf að
taka inn Metasys. „Ég var búin að vera mjög veik og
ómöguleg, hafði alltaf unnið mikið og er úr fjölskyldu þar
sem enginn aumingjaskapur er leyfður, rétt eins og flestir
Íslendingar. Einn daginn hringir vinkona mín í mig en við
vorum alltaf að reyna að létta okkur saman og segir mér
að hún sé að taka Metasys. Ég fussaði yfir því þar sem ég
var fyrir löngu búin að gera mér grein fyrir því að það eru
engar töfralausnir. Nema að hún segir við mig að síðan
hún byrjaði að taka þetta sé hún aldrei þreytt. Ég var
einmitt orðin afskaplega þreytt á því hvað ég var alltaf
þreytt,“ segir Sandra og hlær. „Ég hafði látið vinnuna
ganga fyrir og vitanlega kom maður sér fram úr rúminu
og í vinnuna, þó maður átti erfitt með það. En svo kom ég
heim á kvöldin og gat ekkert gert.“
Léttist um 18 kíló
Það er hins vegar ekki sá veruleiki sem Sandra lifir við í
dag. „Núna kem ég heim á kvöldin, elda matinn, geng frá
þvotti, fer í göngu svo eitthvað sé nefnt. Það er því ekki
hægt að líkja þessu saman og Metasys er það besta sem
ég hef nokkurn tímann komist yfir. Ég er í mjög krefjandi
starfi, var að klára kennaranám og er að fara að gefa út
bók sem hluti af mínu lokaverkefni en samt sem áður er
ég full af orku allan daginn,“ segir Sandra sem hefur lést
um 18 kíló síðan hún byrjaði að taka Metasys. „Þyngdar-
tapið er náttúrlega bara bónus, en mjög góður bónus. Í
haust byrjaði ég að hreyfa mig og venjulega hef ég dottið
í algjörar öfgar, hreyft mig þrisvar á dag og gefist svo upp.
Núna ákvað ég að vera skynsöm og ég er búin að halda
við stöðugri hreyfingu. Ég, sem var ómöguleg í hnjánum
áður en ég tók Metasys, er farin að skokka, fer í ræktina og
geng reglulega.“
Fleiri og fleiri Íslendingar kjósa Metasys til að
grenna sig, bæta orkuúthald og heilsu, það
hefur verið fáanlegt í rúm þrjú ár og aukast
vinsældir þess ár frá ári.
Frekari upplýsingar um Metasys er
hægt að finna á www.metasys.is
Metasys er fáanlegt í öllum apótekum,
heilsubúðum, Hagkaup, Fjarðarkaup og
Vöruvali Vestmannaeyjum.
w
w
w
.s
m
id
ja
n.
is
Sandra Fannarsdóttir
Full af orku allan daginn...