24 stundir - 30.04.2008, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Borgarbókasafn Reykjavíkur
hefur haldið ritsmiðju fyrir börn á
aldrinum 6 til 12 ára á hverju
sumri frá árinu 1994 og verður
sumarið í ár engin undantekning.
Hver ritsmiðja stendur í viku og
vinna börnin í tvo tíma á dag í
samstarfi við rithöfunda og mynd-
listarmenn.
Góð þátttaka
Um og yfir 100 börn taka þátt í
ritsmiðjunni á ári hverju og sem
dæmi um höfunda sem hafa unnið
með börnunum undanfarin ár má
nefna Iðunni Steinsdóttur, Þor-
grím Þráinsson, Ragnheiði Gests-
dóttur og Herdísi Egilsdóttur.
Afraksturinn af vinnu barnanna
er settur í bók fyrir barnið og í lok
hverrar ritsmiðju er haldið lokahóf
þar sem foreldrum, systkinum,
ömmum og öfum er boðið til
veislu þar sem börnin lesa upp
ljóðin sín og sögurnar.
Heilu systkinahóparnir
„Ritsmiðjan nýtur mikilla vin-
sælda hér á Borgarbókasafninu og
oft koma sömu börnin ár eftir ár.
Þá hafa heilu systkinahóparnir
fengið ritþjálfun á sumarnám-
skeiðum Borgarbókasafnsins,“ seg-
ir Sigrún Jóna Kristjánsdóttir,
barnabókavörður í Sólheimasafni
Borgarbókasafns Reykjavíkur.
„Það sem gerir þessa ritsmiðju sér-
staka miðað við það sem ég hef séð
annars staðar í heiminum er að hér
vinna krakkarnir oftast með höf-
undum sem hafa mikla reynslu af
því að skrifa fyrir börn,“ bætir hún
við. Ritsmiðjan í ár verður vikuna
9. til 13. júní og að vanda er ekkert
þátttökugjald.
Árleg ritsmiðja í Borgarbókasafni Reykjavíkur
6 til 12 ára börn fá ritþjálfun
Mynd/Borgarbókasafnið
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is
Gel/ethanOl
aRineldStæði í
SumaRbúStaðinn
eða heimilið.
ReyKlauS OG
lyKtaRlauS
byltinG í SVefnlauSnum
tilbOðSdaGaR - VaxtalauS lán í 6 mánuði
55
ára
Húsgagnavinnustofa rH
Frí legugreining og
fagleg ráðgjöf um val
á heilsudýnum.
20-50%
afSláttuR
Líkt og undanfarin sumur verða
haldin sumarnámskeið í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum fyrir krakka á
aldrinum 10 til 12 ára (fædda 1996
til 1998) nú í ár. Tvenns konar nám-
skeið verða í boði. Annars vegar
verður námskeiðið Hani, krummi,
hundur, svín og hins vegar Vís-
indakrakkar. Skráning hefst þann 7.
maí á reykjavik.is.
Hani, krummi,
hundur, svín
Sönglist og Borgarleikhúsið standa
fyrir leiklistarnámskeiðum í sumar
þar sem kennd verða und-
irstöðuatriði í einbeitingu, trausti,
raddbeitingu og leikgleði. Unnið er
markvisst að því að virkja sköp-
unarkraft nemenda og efla sjálfs-
traust þeirra. Þó svo að kennslan
byggist aðallega á leiklistaræfingum
verður einnig sungið og dansað.
Nánari upplýsingar eru á songlist.is.
Leiklist fyrir
börn
Það er mjög gott að ferðast
með ung börn til Spánar. Spán-
verjar eru barngóðir og gera
margt til að gleðja barna-
fjölskyldur. Spánn er vinsælasti
sumarleyfisstaðurinn fyrir fjöl-
skyldur að því er kom fram í
breskri könnun. Þar með fór
Spánn fram úr Frakklandi sem
hafði áður verið í fyrsta sæti.
Matsölustaðir á Spáni taka tillit
til barnafólks og á flestum þeirra
eru barnastólar og matseðill fyrir
börn.
Bestu strendurnar á Spáni fyrir
fjölskyldur eru á meginlandinu.
Allt frá Costa Blanca, og þar er
Benidorm meðtalið, til Barcelona.
Einnig er ströndin Costa de la
Luz á suðvesturhorni Spánar vin-
sæl fyrir fjölskyldur. Á þessum
stöðum eru ævintýra- og vatns-
garðar sem börn hafa gaman af.
Stærstu ævintýragarðarnir eru
Warner Brothers Movie World
nálægt Madrid og Tarragona í
Katalóníu.
Best er að fara með börn utan
heitasta tímans, t.d. í lok maí en
þá er einnig ódýrara að dvelja á
Spáni heldur en um mitt sumar.
Brjóstagjöf ætti ekki að fara
fram á almannafæri, Spánverjar
eru margir viðkvæmir fyrir því.
Auðvelt er að fá pela hitaða á
veitingastöðum.
Mjög gott þykir að fara með
börn til La Manga, sem er ekki
langt frá Alicante, en þar er sér-
staklega mælt með La Manga
Club sem þykir afar fjöl-
skylduvænn staður. Auðvelt er að
gúgla fjölskylduvæn hótel á Spáni
og héðan er hægt að fljúga til
Alicante með ferðaskrifstofunum
og Iceland Express. Einnig bjóða
ferðaskrifstofur upp á fjöl-
skylduvæn íbúðahótel.
Barnamatur er seldur í betri
stórmörkuðum og í apótekum
sem eru víða á ferðamannastöð-
um á Spáni. Lífrænt ræktaður
barnamatur er seldur í stórum
verslunum eins og t.d. El Corte
Ingles og Hipercor. Í apótekum
er hægt að fá vel þekkt vörumerki
í barnamat eins og t.d. Nestlé og
Milupa. Þekkt vörumerki í
bleium, eins og Pampers, er víða
hægt að nálgast.
Þá má benda foreldrum á að
hagstætt er að kaupa barnaföt og
skó á Spáni.
Sumafrí Börnin kunna
að meta gott frí með for-
eldrum sínum.
Fjölskylduvænt sumarfrí
Einfalt að ferðast með börn til Spánar
Það er skemmtilegt að
ferðast með börn, líka
þau allra yngstu. Börnin
þurfa frí eins og full-
orðnir en sumir eru
smeykir við að fara með
mjög ung börn til fram-
andi landa.
➤ Spánn er fjölskylduvænnstaður til að eyða
sumarfríinu á.
➤ Heilbrigðisþjónusta er góð en öruggara er að hafa góða
ferðatryggingu fyrir fjöl-
skylduna.
➤ Nauðsynlegt er að bera mikiðaf sólarvörn á börnin.
➤ Þekkt vörumerki í barnamatog bleium er auðvelt að
nálgast.
MEÐ BÖRNIN TIL SPÁNAR