24 stundir - 30.04.2008, Qupperneq 25
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 25
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Sköpun er örvandi lyf sem ég
get ekki verið án.
Cecil B. DeMille
Á þessum degi árið 1945 framdi
Adolf Hitler sjálfsmorð ásamt eig-
inkonu sinni Evu Braun. Þau
höfðu gengið í hjónaband kvöldið
áður. Daginn eftir héldu banda-
menn og sovéskar hersveitir inn í
Berlín.
Hitler hafði hafst við í neðan-
jarðarbyrgi í Kanslarahöllinni
ásamt nánum stuðningsmönnum
sínum. Þegar hann sá fram á fall
þriðja ríkisins sá hann einungis
eina útgönguleið. Hann tók inn
eitur ásamt eiginkonu sinni.
Fimmtán mínútum síðar skaut
Hitler sig í höfuðið. Martin Borm-
an hellti bensíni yfir lík þeirra
hjóna og kveikti í. Á þessum sama
degi frömdu áróðursmeistarinn
Joseph Goebbels og eiginkona
hans sjálfsmorð eftir að börn
þeirra, sex að tölu, höfðu verið lát-
in taka inn eitur.
Viku síðar lýstu Þjóðverjar yfir
uppgjöf. Seinni heimsstyrjöldinni
var lokið.
MENNINGARMOLINN
Hitler fremur
sjálfsmorð
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
Íslensk málnefnd og Samtök móð-
urmálskennara standa fyrir ljóða-
samkeppni unglinga á aldrinum
13-15 ára, í 8. 9. og 10. bekk
grunnskóla. Úrslit verða tilkynnt á
hundrað ára afmæli Steins Stein-
ars, 13. október. Vegleg bókaverð-
laun verða veitt fyrir efstu þrjú
sætin. Verðlaunaljóðin og úrval
annarra ljóða verða síðan birt í 24
stundum. Landsbankinn og For-
lagið eru styrktaraðilar samkeppn-
innar.
Árlegur viðburður?
„Við vonumst til að samkeppnin
takist það vel að hún verði árlegur
viðburður og efli og styðji skap-
andi þáttinn í skólastarfinu. Við
treystum mjög á að kennarar komi
upplýsingum um keppnina til
nemenda og hvetji þá til þátttöku,“
segja Sæmundur Helgason kennari
og Þórarinn Eldjárn skáld sem sitja
í undirbúningshópi. Sæmundur
segir viðhorf nemenda til ljóða
mjög jákvætt. „Það er líka mikil-
vægt að kennarinn falli ekki í þá
gryfju að byggja kennsluna ein-
ungis upp á greiningu á ljóðum og
vanræki skapandi þáttinn. Ég hef
tekið eftir því að gott er að kenna
stuðla, höfuðstafi og rím og láta
börnin síðan búa til sín eigin ljóð."
Hugmyndir eru alls staðar
Þórarinn hefur verið iðinn við
að yrkja fyrir börn. „Ég hef gert
talsvert af því að lesa ljóðin upp í
skólum og þá tala ég gjarnan við
krakkana um yrkingar. Það hefur
komið mér á óvart hvað áhugi
þeirra er mikill og þau eru algjör-
lega ófeimin við að spyrja. Ég legg
alltaf mjög mikið upp úr því að
innprenta þeim að ljóðagerð sé
ekki eitthvað háfleygt og uppskrúf-
að heldur bara sjálfsagður hlutur.
Þau spyrja mikið um það hvernig
maður fái hugmyndir. Ég bendi
þeim á að hugmyndir eru alls stað-
ar svífandi allt í kringum okkur.“
Með ljóð í hausnum
Þegar Þórarinn er spurður hvort
honum þyki æskilegt að börn og
unglingar séu látin læra ljóð utan
að í skólum segir hann: „Mín
skoðun er sú að aldrei sé nóg af ut-
anbókarlærdómi hvað ljóð varðar.
Ef ljóðum er ekki raðað inn í haus-
inn á börnunum þá fer eitthvert
drasl þar inn og tekur öll bestu
sætin.“ Sæmundur svarar sömu
spurningu og segir: „Mér verður
hugsað til Norðmannsins sem var í
boði og var spurður hvort heldur
hann vildi hvítvín eða rauðvín.
Báðar sortir,“ svaraði hann. „Það
er gott að nemendur fái tækifæri til
að læra ljóð utan að, þylja og
syngja þau og vinni einnig að
greiningu á ljóðum. Að yrkja og
skapa hlýtur samt að vera það
skemmtilegasta.“
Þórarinn bætir við: „Ég viður-
kenni að hér áður fyrr gat verið of
mikið um að ljóðakennsla byggði
einungis á utanbókarlærdómi. En
margt af því sem þannig var inn-
byrt lifir eða lifnar í manni. Ára-
tugum síðar lætur það allt í einu á
sér kræla og maður skilur allt í
einu það sem maður skildi ekki
sem krakki. Að hafa ljóð í höfðinu
er eins og að hlusta á tónlist. Við
tileinkum okkur tónlist með því að
hlusta á hana. Maður tileinkar sér
ljóð með því að lesa þau og læra.“
Ljóðasamkeppni unglinga
Ljóðagerð er
sjálfsagður hlutur
„Við vonumst til að sam-
keppnin takist það vel að
hún verði árlegur við-
burður og efli og styðji
skapandi þáttinn í skóla-
starfinu,“ segja Sæmund-
ur Helgason kennari og
Þórarinn Eldjárn skáld
um ljóðasamkeppni ung-
linga.
Sæmundur og Þórarinn
„Að hafa ljóð í höfðinu er
eins og að hlusta á tónlist.“
➤ Ljóð skal setja í umslag merktLjóðasamkeppni og senda Ís-
lenskri málnefnd, Neshaga
16, 107 Reykjavík. Skila-
frestur er til 1. júní.
➤ Ljóðin skulu merkt dulnefnien rétt nafn höfundar fylgi
með í lokuðu umslagi merktu
sama dulnefni, ásamt heim-
ilsfangi, nafni skóla og bekk.
KEPPNIN
Laugardaginn 3. maí klukkan
17 verður opnuð sýning Stígs
Steinþórssonar í Fótógrafí,
Skólavörðustíg 4. Sýningin
nefnist Óreiða og sýnir hvers
kyns manngerða óreiðu.
Stígur Steinþórsson útskrif-
aðist frá málaradeild Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands
vorið 1987. Hann hefur tekið
þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum en þetta er hans fyrsta
einkasýning á ljósmyndum.
Stígur hefur starfað sem leik-
myndahönnuður í öllum
helstu leikhúsum landsins í
tuttugu ár og hefur hannað
fjölmargar leikmyndir fyrir
sjónvarp, kvikmyndir og söfn.
Sýning Stígs stendur til 6.
júní.
Óreiða Stígs í
Fótógrafí
AFMÆLI Í DAG
Willie Nelson söngvari, 1933
Lars von Trier
leikstjóri, 1956
Bókaverðlaun barnanna 2007
voru afhent á sumardaginn
fyrsta í aðalsafni Borg-
arbókasafns, Grófarhúsi.
Borgarbókasafn veitir verð-
launin ár hvert fyrir tvær bæk-
ur, aðra frumsamda og hina
þýdda. 6-12 ára börn velja
bækurnar og fer valið fram í
grunnskólum og á bókasöfn-
um um allt land. Þetta er í sjö-
unda sinn sem verðlaunin eru
veitt og að þessu sinni tóku
rúmlega
5 þúsund börn taka þátt í
kosningunni. Hildur Bald-
ursdóttir barnabókavörður af-
henti verðlaunin en þau hlutu
Hrund Þórsdóttir, höfundur
Loforðsins, og Snorri Hergill
Kristjánsson, þýðandi Skóla-
söngleiksins, en sú bók er
byggð á sjónvarpsmynd sem
mörg börn þekkja.
Bækur
barnanna
Hrund Þórsdóttir
Jón Baldur Hlíðberg teiknari
opnar sýningu í Gerðubergi
laugardaginn 3. maí kl. 15.
Sýningin nefnist
Kynjaskepnur úr íslenskum
þjóðsögum
Kynjaskepnur
úr þjóðsögum