24 stundir - 30.04.2008, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLNEYTENDUR
neytendur@24stundir.is a
Það eru nokkrir valmöguleikar á borðinu
til skoðunar og rannsóknar en það er
ekki ljóst hvað verður ofan á.
leigu voru þrjár tegundir af spólum
með sömu myndinni og maður
valdi þá sem passaði í það tæki sem
maður var með heima hjá sér. VHS
varð síðan ofan á en í upphafi vissi
enginn hvað yrði,“ segir Özur og
bætir við að það sama sé að gerast á
bílamarkaðnum. „Það eru nokkrir
valmöguleikar á borðinu til skoð-
unar og rannsóknar en það er ekki
ljóst hvað verður ofan á. Auðvitað
kæmi það sér mjög vel fyrir okkur
Íslendinga ef það yrði rafmagn eða
vetni,“ segir hann.
Ekki gallalausir
Þó að bílar sem ganga fyrir öðrum
orkugjöfum en jarðefnaeldsneyti
hafi vissulega sína kosti eru þeir ekki
heldur gallalausir. „Vetnisbílar
standa almenningi ekki til boða í dag
og það er ekki ljóst hvenær það verð-
ur. Sumir segja að það verði eftir tíu
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Samfara hækkunum á eldsneytis-
verði er eðlilegt að fólk líti í aukn-
um mæli til bíla sem eru sparneyt-
nari eða ganga fyrir öðrum
orkugjöfum en jarðefnaeldsneyti.
„Um leið og eldsneytisverð hækkar
fara menn að spá í eyðslu bíla. Bíla-
sala hefur dregist saman en þeir
sem eru að spá í bíla velta þessu að
sjálfsögðu fyrir sér,“ segir Özur
Lárusson, framkvæmdastjóri Bíl-
greinasambandsins. Sambandið
stóð ásamt fleirum að kynningu á
visthæfum bílum á dögunum.
Stjórnvaldsaðgerðir varasamar
Þar gafst fólki jafnframt tækifæri
til að reynsluaka bílum sem ganga
fyrir öðrum orkugjöfum svo sem
metani, vetni og raforku. Özur segir
erfitt að spá fyrir um hvaða elds-
neytisgjafi verði ofan á í framtíð-
inni. „Þess vegna er mjög hættulegt
að fara út í einhverjar stjórnvalds-
aðgerðir til að beina mönnum í átt
að einhverri einni tækni því að
stjórnvöld vita ekkert hvaða tækni
verður ofan á. Bílaframleiðendur
vita það ekki enn þann dag í dag,“
segir Özur og líkir þessu við ástand-
ið sem ríkti þegar myndbandstækn-
in hóf innreið sína. „Þá voru þrjú
kerfi í boði. Þegar maður fór út á
ár, aðrir eftir 30 ár og enn aðrir að
það verði aldrei,“ segir Özur. „Raf-
magnsbíll er víða kominn í sölu en
gallinn er að batteríið er ekki nógu
öflugt til að hægt sé að treysta á það
til lengri vegalengda þó að það sé
kannski hægt að nota þá í snatt inn-
anbæjar,“ segir Özur. „Metanið er
mjög sniðugt en takmörkuð auð-
lind. Það er mjög gott að nýta það í
stað þess að sleppa því út í andrúms-
loftið. Sorpa getur þjónustað 4.000-
5.000 bíla með því að endurnýta
ruslið. Bílarnir sem sækja ruslið eru
knúnir áfram af því, sem er snilld.“
Rafbíll Bílar sem ganga fyrir öðrum
orkugjöfum en jarðefnaeldsneyti
hafa sína kosti og galla.
Leitin að arftaka bensínbílsins
Óvíst hvað verður ofan á
Samfara hækkandi elds-
neytisverði lítur fólk í
auknum mæli til spar-
neytnari bíla og jafnvel til
bíla sem ganga fyrir öðr-
um orkugjöfum. Erfitt er
að spá fyrir um hvaða
orkugjafi tekur við af
jarðefnaeldsneyti í fram-
tíðinni.
➤ Ýmis fyrirtæki og stofnanirhafa markað sér visthæfa
samgöngustefnu sem felst
meðal annars í því að nota
visthæfa bíla.
➤ Hér á landi eru 13 vetnisfólks-bílar í almennri umferð.
VISTHÆFIR BÍLAR
Farþegar sem ferðast með evr-
ópsku flugfélagi á hvaða áfangastað
sem er eiga rétt á skaðabótum fyrir
það tjón sem verður á farangri er
hann tefst, glatast, skemmist eða
eyðileggst. Ef farangur tefst, glatast,
skemmist eða eyðileggst skal far-
þegi tilkynna það á þjónustuborði í
flugstöð áður en hann yfirgefur
flugstöðina.
Farþegi getur beint kröfu sinni
um bætur að því flugfélagi sem
hann flýgur með eða til þeirrar
ferðaskrifstofu eða flugfélags sem
hann keypti ferðina hjá.
Nánari upplýsingar um réttindi
flugfarþega má nálgast á heimasíðu
Neytendastofu, www.neytenda-
stofa.is.
Réttindi flugfarþega
Frá og með næsta hausti þurfa
breskir ökunemar að sýna fram á
færni sína í vistakstri í ökuprófi.
Prófdómari metur hversu „grænt“
aksturslag þeirra er og tekur meðal
annars tillit til þess hvort þeir gefi í
eða hemli snögglega, hvort þeir
kunni að athuga loftþrýsting í hjól-
börðum og viti hvers virði það er
að ofhlaða ekki bílinn. Rannsóknir
hafa sýnt að með réttu aksturslagi
er ekki aðeins hægt að draga veru-
lega úr koltvísýringsútblæstri held-
ur geta menn jafnframt dregið úr
eldsneytiskostnaði um allt að 17
prósent.
Nýjung í ökunámi á Bretlandi
Vistakstur í ökuprófi
Visthæfir bílar í
höfuðborginni
Sparneytnum bílum fylgir ekki
aðeins minni mengun heldur get-
ur munað miklu í heimilisbók-
haldinu. Sem dæmi má nefna að
bílar sem teljast visthæfir eyða
fimm lítrum eða minna á 100 km
en ekki er óalgengt að meðalstór
fjölskyldubíll eyði 10-13 lítrum á
100 km.
Ekki má heldur gleyma því að
talsverður munur getur verið á
eyðslu bíla innan sama stærð-
arflokks. Á vefsíðu Orkuseturs
www.orkusetur.is er hægt að bera
saman eyðslu ólíkra tegunda.
Dregið úr eyðslu
Eigendur visthæfra bíla njóta
vissra fríðinda í Reykjavík. Þeir
geta lagt bílunum ókeypis í bíla-
stæði í 90 mínútur í senn. Sérstök
bílastæðaskífa hefur verið útbúin
af þessu tilefni og geta ökumenn
sett hana í framrúður bílanna. Á
heimasíðu Bílgreinasambandsins
www.bgs.is er að finna lista yfir
bíla sem uppfylla skilyrði til að
teljast vishæfir.
Þannig mega bensínbílar ekki
eyða meira en 5 lítrum á 100 km
eða minna auk þess sem koltvíox-
íðsútblásturs má að hámarki vera
120 g/km. Eyðsla dísilbíla í
blönduðum akstri má ekki fara
yfir 4,5 lítra á 100 kílómetra og
koltvíoxíðsútblástur skal að há-
marki vera 120 g/km.