24 stundir - 30.04.2008, Page 27
24stundir MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 27
Það er óþarfi að fara yfir um á greiðslu-
kortinu þó að maður fari í gott ferðalag,
hvort heldur innanlands eða utan. Með
góðri skipulagningu og smáfyrirhyggju má
halda kostnaði vegna ferðalaga innan skyn-
samlegra marka án þess að það komi niður á
ánægjunni. 24 stundir rifjuðu upp nokkur
góð ráð fyrir sumarfríið.
Upplýsingar og samanburður
Það er ómetanlegt að skipuleggja fríið vel,
gera jafnvel kostnaðaráætlun áður en lagt er
af stað og reyna að halda sig við hana. Með
því minnkar maður líkurnar á að reikning-
urinn komi manni óþægilega á óvart þegar
heim er komið.
Netið kemur í góðar þarfir því að þar má
leita upplýsinga um hagstæðar flugferðir, gist-
ingu, veitingastaði og verslanir. Jafnvel er hægt
að bera saman þá möguleika sem í boði eru.
Skynsamlegt er að leita upplýsinga hjá
þeim sem eru staðkunnugir því að þeir
luma oft á góðum ráðum sem er ekki endi-
lega getið um í ferðamannabæklingum.
Þá geta vinir og kunningjar jafnvel skotið
yfir mann skjólshúsi þegar maður er á ferða-
lögum. Þar með sparar maður ekki aðeins fá-
einar krónur heldur nýtur góðs félagsskapar
og leiðsagnar sem er jafnvel enn meira virði.
Munur á verðlagi
Í stórborgum erlendis getur verið talsverð-
ur munur á verðlagi eftir því hvar maður er.
Miðsvæðis eru verslanir og veitingastaðir
gjarnan dýrari en í öðrum hverfum þó að
gæðin séu ekki endilega meiri. Sérstaklega
ættu menn að hafa varann á sér á ferða-
mannastöðum þar sem verðlag er oft óeðli-
lega hátt.
Sparnaðarráð fyrir ferðalagið
Ferðast á ódýran hátt
Ódýr ferðalög Hægt er að
draga úr kostnaði vegna ferða-
laga á ýmsan hátt.
Nú þegar sumarfrí eru fram-
undan og margir hyggja á ferða-
lög til útlanda er ágætt að minna
á starfsemi Evrópsku neyt-
endaaðstoðarinnar. Þeir sem telja
að þeir hafi verið beittir órétti í
viðskiptum innan landa Evrópu-
sambandsins geta leitað til henn-
ar til að fá úrlausn sinna mála.
Jafnframt aðstoðar hún erlenda
ferðamenn sem lenda í vandræð-
um vegna viðskipta hér á landi.
Evrópska neytendaaðstoðin hefur
verið starfrækt hér á landi frá
árinu 2001 og má nálgast helstu
upplýsingar um hana á vefsíð-
unni www.ena.is.
Slæm viðskipti
í útlöndum
Íslandspóstur hyggst bjóða fólki
að afþakka fjölpóst með sér-
stökum merkingum á lúgum.
Fyrirtækið dreifir um 12% þess
fjölpósts sem kemur inn um lúg-
ur landsmanna að fríblöðum
meðtöldum. Bréfberar Íslands-
pósts munu virða óskir lúgumið-
ans en geta ekki borið ábyrgð á
öðrum dreifendum. Upplýsingar
um nánari tilhögun á afþökkun
fjölpósts má fá hjá þjónustuveri
Íslandspósts í síma 580 1200 og
verða þær einnig birtar á heima-
síðu félagsins innan tíðar.
Fjölpósturinn
afþakkaður
Seltirningar eru hvattir til að láta
hendur standa fram úr ermum
vikuna 2.-9. maí en þá fer fram
hreinsunarvika í bæjarfélaginu.
Starfsmenn áhaldahúss Seltjarn-
arness munu fjarlægja garðaúr-
gang og afklippur í knippum sem
settur hefur við lóðamörk. Al-
mennt rusl og úr sér gengin tæki
verða ekki fjarlægð og er fólki
bent á að koma þeim á næstu
móttökustöð Sorpu.
Hreinsunarvika
á Seltjarnarnesi
*Vörur fylgja ekki með
• Húðin okkar er viðkvæm og veðráttan á
Íslandi getur verið húðinni erfið.
• Decubal er mjög vel rannsökuð húðlína og
þróuð í samvinnu við norræna húðlækna.
• Decubal viðheldur heilbrigði og ferskleika
húðarinnar – allt árið um kring.
• Kynntu þér eiginleika Decubal og kveddu
þurra húð.
KAUPAUKI
Glæsileg rauð snyrtitaska
fylgir ef keypt er fyrir
2500 kr. eða meira.
Tilboðið gildir til 10. maí
eða meðan birgðir endast.*
Decubal húðvörurnar fást í
öllum apótekum.