24 stundir - 30.04.2008, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um sívaxandi vinsældir golfsins
hérlendis en ekkert lát virðist þar á.
Síst meðal smáfólksins en nám-
skeið og skólar hvers konar þar sem
golfkennsla kemur við sögu hafa
aldrei verið vinsælli en nú. Er nú
þegar fullbókað í mörg námskeið
fyrstu vikur sumars en einn sá vin-
sælasti undanfarin ár hefur verið
Golfleikjaskólinn í Garðabæ. Hann
rekur Anna Día Erlingsdóttir en að
auki kemur hún nálægt öðrum
skóla sem tekur til starfa á næstu
dögum, US Kids-skólinn, en þar er
kennt eftir bandarískum reglum og
ekki aðeins áhersla lögð á golf-
kennslu heldur einnig siði og venj-
ur úti á vellinum.
Fullbókað í fyrstu tímana
Skólarnir tveir eru mismunandi
í nokkrum meginatriðum. Golf-
leikjaskólinn er hugsaður sem vett-
vangur fyrir alla fjölskylduna ef svo
ber undir en Anna Día segist þó
leggja áherslu á að fullorðinn ein-
staklingur sé með barni sínu í
kennslustundunum. „Skólinn er
blanda af kennslu og leik og hug-
myndin er að mæður og aðrir full-
orðnir taki þátt með barninu og
skapi þannig samkennd en
skemmtun um leið. Þannig er það
krafa að allir sem þangað fara séu
með foreldrum eða fullorðnum á
námskeiðinu.“
Hvert námskeið tekur eina viku,
klukkustund í senn og kostar sex
þúsund krónur sem verður að telj-
ast allgott enda lágmarksgjald hjá
venjulegum golfkennara vart undir
þrjú þúsund krónum. „Enda er það
svo að það er fullbókað í alla fyrstu
tímana hjá okkur og í raun ótrúlegt
hvað ásóknin er mikil.“
Að erlendri fyrirmynd
Hinn skólinn, US Kids, er ein-
göngu ætlaður börnum og ung-
lingum en kennsla fer fram á Set-
bergsvelli í Hafnarfirði ólíkt
Golfleikjaskólanum en þar er kennt
á stóru túni við Álftanesveg. Anna
segir hann um margt merkilegan.
„Þar er farið vandlega eftir æfinga-
kerfi frá US Kids í Bandaríkjunum
en það fyrirtæki framleiðir meðal
annars golfkylfur sérstaklega fyrir
börn. Þar er ekki aðeins farið í golf-
ið sjálft heldur einnig hefðir og
reglur sem eru margar í golfinu.
Þar reyna krakkarnir sig á alvöru
velli og foreldrar geta í raun spilað
stóra völlinn á meðan börnin eru á
þeim litla. Þetta námskeið er í sam-
vinnu við golfklúbbinn Odd og er
þetta fyrsta sumarið sem hann er
starfræktur.“
Það er því af nógu að taka fyrir
smáfólkið og foreldrana ef því er að
skipta en vikan í US Kids-skólan-
um kostar tíu þúsund krónur.
Golfskólar fyrir yngri kynslóðina slá í gegn hér á landi
Þar sem golfið er
leikur og skemmtun
Hafi einhverjir haft sér-
staklega mikið að gera
undanfarin ár eru golf-
kennarar ábyggilega
framarlega í þeim flokki.
Þótt flestir klúbbar bjóði
upp á kennslu og að-
stöðu hefur minna farið
fyrir eiginlegum golf-
skólum utan þeirra en
minnst tveir slíkir verða
starfræktir í sumar.
Því fyrr því betra Því eldri sem einstaklingur er því erfiðara er að læra und-
irstöðuatriðin í golfinu. Hafi börn áhuga er um að gera að drífa sig með þau sem fyrst.
Fagmennska Aðeins fullorðnir fyrsta
flokks kennarar koma nálægt kennslu.
Félagsskapur Fátt betra en að læra golf
með öðrum krökkum á sama aldri.
Margir eru kallaðir og sitt sýn-
ist hverjum og einum en sam-
kvæmt úttektum tímaritanna Golf
Digest og Golf Magazine á síðasta
ári er Pine Valley völlurinn í New
Jersey í Bandaríkjunum sá besti
þar í landi og tiltölulega óþekktur
norður-írskur völlur, Royal
County Down tók þann titil á al-
þjóðavísu hjá fyrra tímaritinu.
Tölurnar eru uppfærðar árlega
hjá tímaritunum og verða nýir
listar kynntir í næsta mánuði en
venjan er að litlar breytingar
verða ára á milli.
Á síðustu listum lenti hinn
margfrægi gamli völlur St.And-
rews í öðru sæti en fimm bestu
golfvelli utan Bandaríkjanna mátti
finna á Bretlandseyjum sam-
kvæmt stöðlum Golf Digest. Staða
þeirra batnaði ennþá meira þegar
litið var til þeirra tíu bestu en að-
eins tveir utan Bretlandseyja kom-
ust þar á blað; Royal Melbourne í
Ástralíu og Cape Kidnappers á
Nýja-Sjálandi.
Spænskir golfvellir náðu ekki
hátt á listum tímaritanna fyrir ári
en þangað sækja flestir íslenskir
kylfingar árið um kring. Hinn
sögufrægi Valderrama er þeirra
efstur en mælist aðeins í 46. sæti
og systurvöllur hans Sotogrande í
76. sæti. Aðrir spænskir komast
ekki á blað og verður að teljast
markvert miðað við þá spreng-
ingu sem þar hefur orðið á síð-
ustu tíu til fimmtán árum. For-
vitnilegt verður þó að fylgjast með
því hvort sú staða breytist í næsta
mánuði.
Hverjir eru bestu golfvellir heims?
Heldur Pine Valley sætinu
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Búdapest
8. maí
frá kr. 49.990
Frábær 4 nátta ferð um Hvítasunnu!
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á
hverju ári með Heimsferðum. Vorið er frábær tími til að heimsækja borgina.
Tíminn í þessari ferð nýtist einkar vel þar sem flogið er út í beinu morgun-
flugi en heim seint að kvöldi annars í Hvítasunnu. Fararstjórar Heimsferða
gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu.
Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri
gestrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða.
Verð kr. 49.990
- *** gisting
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 4
nætur á Hotel Mercure Duna *** með
morgunmat.
Verð kr. 59.990
- **** gisting
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 4
nætur á Hotel Mercure Korona ****
með morgunmat.
M
bl
9
89
89
5
VORIÐGOLF
lifsstill@24stundir.is a
Skólinn er blanda af kennslu og leik og
hugmyndin sú að foreldrar taki þátt í
leiknum með barni sínu og skapi þannig sam-
kennd og meiri skemmtun um leið.