24 stundir - 30.04.2008, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
Endurhæfing Ronaldo íBrasilíu gengur afar velsamkvæmt fregnum og
er kappinn að
ná fullum bata
af hné-
meiðslum og
andlegu álagi
sem hrjáði
hann í vetur
hjá AC Milan.
Verra er að náðst hafa myndir
af stjörnunni í kynlífsleikjum
með þremur klæðskiptingum á
hóteli í Ríó og er ekki um ann-
að talað í borginni. Segja hörð-
ustu gárungar að þarna sé kom-
in skýringin á því af hverju hver
stórstjarnan á fætur annarri
hverfur heim til Brasilíu til
endurhæfingar eftir meiðsli.
Nýr þjálfari tekur viðManchester City aðlokinni leiktíðinni.
Tilkynnti helsti
aðstoðarmaður
Sven-Göran
Eriksson að
þeir kumpánar
færu líklega frá
félaginu vegna
óánægju eig-
anda þess, Thaksin Shina-
watra, með gengið eftir jól.
Fyrir jól vildi hann hins vegar
ólmur gera óendanlegan samn-
ing við Svíann enda vannst þá
hver leikurinn á fætur öðrum.
Umrædd tilkynning kombeint í kjölfar fregnafrá umboðsmanni Ro-
naldinho um
að Börsungum
hefði borist til-
boð í Bras-
ilíumanninn
frá Manchester
City að upp-
hæð 4,6 millj-
arðar króna. Er sú upphæð
töluvert yfir matsverðinu og
þreföld sú upphæð sem Silvio
Berlusconi eiganda AC Milan
hefur tekist að nurla saman en
Berlusconi hefur að eigin sögn
„vart sofið“ yfir spenningi að
sjá stjörnuna klæðast búningi
Milan.
Vonlaust er fyrir FabioCapello að gera Eng-land að stórveldi í
boltaheimum á ný vegna þess
að úrval leik-
manna sem
hann getur val-
ið úr er lítið og
lélegt. Firnafast
skot frá Mar-
cello Lippi sem
á ekki óglæsi-
legri feril að baki sem þjálfari
en Capello sjálfur og er heldur
ekki þekktur fyrir yfirlýs-
ingagleði. Enda margir sam-
mála honum um slæma stöðu
enskra.
Fjölmargir eru nú kenndirvið uppbyggingu New-castle í sumar. Einn sá
líklegasti og jafnframt efnileg-
asti er Bafe-
timbi Gomis
hjá St. Etienne í
Frakklandi en
kappinn sá hef-
ur verið kall-
aður „hinn nýi
Didier
Drogba“ í frönskum miðlum
um tveggja ára skeið. En fleiri
eru um hituna og hafa Sevilla,
Marseille og Arsenal ítrekað
sent menn út af örkinni til að
fylgjast með Gomis.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Úrslitakeppni NBA-körfuboltans
vestra er í fullum gangi og flest
úrslit þar enn sem komið er eftir
bókinni ef frá er talið hikst í vél-
um Boston Celtics og Detroit Pi-
stons. Mál málanna vestanhafs er
þó hugsanlegt uppgjör Los Ang-
eles Lakers og Boston Celtics í
úrslitum í fyrsta sinn í fjölda ára
en það vita þeir sem fylgst hafa
lengi með körfuboltanum ytra að
eitt mesta gullaldarskeið NBA
var einmitt þegar þessi tvö félög
öttu hvað mest kappi á níunda
áratugnum. Þá voru það nöfn
Larry Bird og Magic Johnson
sem upp úr stóðu en nú eru það
nöfn Kobe Bryant og Kevin Gar-
nett.
Öllum að óvörum
En kannski hafa spekingar verið
helst til fljótir á sér hvað varðar
Boston Celtics því þeir hafa
gloprað niður 2-0 forskoti sínu
gegn versta liðinu í úrslitakeppn-
inni að þessu sinni, Atlanta Hawks,
og þykir það benda til að liðið sé
brothættara nú þegar breidd fer að
skipta verulega máli. Fáir efast um
að þeir klári viðureignir sínar gegn
Atlanta en þeir verða þá þreyttari
en ella þegar næsti mótherji og öllu
öflugari en Atlanta, að líkindum
Cleveland Cavaliers, kemur í hús.
Að sama skapi hefur hitt liðið
sem eitthvað kvað að í austurdeild-
inni í vetur, Detroit Pistons, einnig
lent í vandræðum gegn Philadelp-
hiu og ljóst að það sama er uppi á
teningnum þar; aldur og lítil
breidd farin að segja til sín.
Lakers eða Spurs
Spekingar stærstu íþróttamiðla
Bandaríkjanna, ESPN og SI, telja
engan vafa leika á að vestanmegin
sé staðan ljós. Þar standi Lakers eða
San Antonio Spurs uppi sem bestu
liðin og annað hvort þeirra fari í
úrslitin. Fleiri vilja sjá Lakers en
Spurs en það helgast líkast til af
einhverri fortíðarhyggju þó vissu-
lega megi færa rök fyrir að Lakers
spili skemmtilegri bolta gagnvart
áhorfendum en Spurs.
Ekki má þó alveg loka fyrir þann
möguleika að eitthvert liðið komi á
óvart og New Orleans Hornets er
líklegast enda hefur liðið spilað ótrú-
lega vel og á í fullu tré og meira til
við Dallas Mavericks. Að ógleymdu
liði Utah Jazz sem er næsta ósigrandi
á heimavelli og engir auðveldir sigrar
sóttir í þeirra greipar.
Gömlu stór-
veldin í úrslit?
Þrátt fyrir óvænt hikst í vél Boston Celtics í úrslitakeppni NBA
eru flestir á því að þeir fari alla leið í úrslitin Spekingar vest-
anhafs og hér heima veðja á að mótherjinn þar verði LA Lakers
Birgir Leifur Hafþórsson at-
vinnukylfingur tekur þátt í
mjög sterku móti á evrópsku
mótaröðinni um helgina,
Opna spænska mótinu, en
meðal keppenda þar er N.-
Írinn Darren Clarke sem ný-
lega vann sinn fyrsta sigur á
mótaröðinni í fimm ár. Birgir
Leifur er sem stendur mjög
neðarlega á peningalista mót-
araðarinnar og þarf að spila
betur en hann hefur verið að
gera. Er besti árangur hans í
vetur 50. sætið á Opna s.-
afríska mótinu í desember.
Ný atlaga
Unglingalið Pittsburg Pengu-
ins í NHL íshokkídeildinni fer
hamförum. Ekki er það í raun
unglingalið heldur státar af
nokkrum af skærustu ung-
stjörnum íþróttarinnar og
gengur vægast sagt vel. Þeir
eru komnir í átta liða úrslitin
og hafa þar forskot á New
York Rangers, lið sem er troð-
fullt af leikreyndum kempum.
Ungt og
leikur sér
Hinn goðsagnakenndi Pat Ri-
ley þjálfari Miami Heat tók
pokann sinn eftir eitt hörmu-
legasta tímabil hans sem þjálf-
ara en Heat var óumdeilanlega
versta liðið í allri NBA deild-
inni aðeins andartökum, að
því er virðist, síðan liðið
hampaði NBA meistaratitl-
inum 2006. Vann félagið að-
eins 15 leiki en tapaði 67 þessa
leiktíðina og er tölfræðin 59-
105 á þeim tveimur árum sem
liðin eru síðan Miami varð
meistari. Riley hafði fyrr í vet-
ur gefið það út að hann yrði
við stjórnvölinn næstu þrjú
árin en hefur bakkað með það
og í hans stað kemur yngsti
þjálfari í NBA deildinni, Erik
Spoelstra. Riley er þó ekki al-
farinn því hann er forseti liðs-
ins og ætlar sér að verða það
áfram og ekki er heldur loku
fyrir skotið að hann komi aft-
ur að þjálfun. Hann hefur áð-
ur sagst vera hættur en hætti
við þegar rétta tilboðið barst.
Hættur en
samt ekki
SKEYTIN INN
„Engin spurning í mínum huga
að mínir menn fara alla leið og
þar mæta þeir
sínum gömlu
fjendum úr La-
kers,“ segir Einar
Bollason.
„Vandræðin gegn
Atlanta hafa
komið á óvart en
þeir klára það og
læra af því. Ég fæ
ekki annað séð en þeir eigi að
hafa önnur lið í austurdeildinni
og í úrslitunum fara þeir að
sjálfsögðu með sigur af hólmi.
Þetta verður endurnýjun lífdaga
fyrir gamla Boston-hunda eins
og mig og það yrði afskaplega
gaman að upplifa aftur slíkt eftir
alltof mörg mögur ár hjá lið-
inu.“
Einar Bollason
Þetta verður
ár Boston
„Ég get tekið undir að skemmti-
legasta rimman væri sennilega
milli Celtics og
Lakers í úrslitum
en ef ég á að vera
raunsær tel ég
Spurs hafa meiri
vilja og breidd en
Lakers vest-
anmegin,“ segir
Benedikt Rúnar
Guðmundsson.
„Svo er ég ekki á því að ekkert
óvænt geti gerst og nefni Utah
eða New Orleans í því sambandi.
Þá er líka athyglisvert að Boston
og Detroit sem allir hafa spáð
auðveldum sigrum í úrslita-
keppninni hafa rekist á veggi.
Heldur má ekki afskrifa Detroit
austanmegin þó það lið sé komið
á lokasprettinn sýnist mér.“
Benedikt Guðmundsson
Spurs fremur
en Lakers
„Ég átti nú satt best að segja
ekki von á Boston svona sterk-
um á sínu fyrsta
ári með svona
breytt lið en ég
sé ekkert annað
fyrir mér en þeir
fari alla leið í
úrslit og sigri
þar,“ segir Sig-
urður Ingi-
mundarson.
„Staðan nú minnir dálítið á
gullaldarárin þegar þessi lið
börðust hér áður. Liðin nú eru
vissulega ekki jafn sterk og þá
en þessi tvö, Boston og Lakers í
úrslitum, það yrði afar jákvætt
fyrir körfuna. Þau eru skemmti-
leg á að horfa en að sama skapi
mjög ólík félög. En Boston hef-
ur þetta á endanum.“
Sigurður Ingimundarson
Boston komið
á óvart
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Svo útiloka ég alls ekki að eitthvað
óvænt gerist og nefna þá Utah Jazz
eða New Orleans Hornets í því sambandi.