24 stundir - 30.04.2008, Blaðsíða 34
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Það ríkti sannarlega sérstök stemn-
ing í Skeifunni á mánudagskvöldið
þar sem hundruð æstra aðdáenda
Grand Theft Auto IV tölvuleiksins
biðu þess að ná í eintak af leiknum
langþráða en áætlað er að hátt í
900 eintök hafi selst þetta kvöld.
Bæði verslanir BT og Elko efndu
til miðnæturopnunar vegna leiks-
ins og var mikið um að vera. Með-
limir bílaklúbbsins Live 2 Cruise
sýndu flotta sportbíla fyrir framan
BT og fyrir utan Elko var efnt til
rapptónleika þar sem Dóri DNA
og Bent héldu uppi taktföstu fjöri.
Stemningunni á svæðinu mætti
helst líkja við góða útihátíð, að frá-
töldum drykkjulátunum og
handalögmálunum.
Guðjón Elmar Guðjónsson hjá
Árdegi var ánægður með þær við-
tökur sem GTA fékk í verslun BT.
„Við seldum mikið af leiknum og
við vorum gríðarlega ánægðir. Ég
hef aldrei nokkurn tímann séð
svona margt fólk inni í búðinni.“
Örn Ægir Barkarson hjá Elko tekur
í sama streng og bætir við að salan
á GTA hafi einnig verið góð í gær-
morgun en þá seldust 50 eintök á
fyrsta hálftímanum.
Mikið fjör á miðnæturopnun vegna GTA IV
Útihátíðarstemning
Bjarni Heiðar Bjarnason
Ég er búinn að bíða eftir leiknum alveg
frá því að GTA San Andreas kom út. Nú
ætla ég að fara heim og ekki sofa neitt.
Ég þarf víst að mæta í skólann á morgun,
held meira að segja að ég sé að fara í
próf. Ég er samt ekki alveg viss.
Sigurður Hjartarson
Þetta er góð tilfinning að vera kominn
með leikinn. Ég er búinn að bíða hérna
síðan klukkan 7, bara búinn að vera að
drekka bjór og éta KFC. Það er rétti und-
irbúningurinn fyrir GTA-maraþon í nótt.
Ég myndi segja að GTA IV væri framtíðin.
Marinó Guðmundsson
Ég var að kaupa mér GTA og ég er búinn
að bíða eftir þessum leik í um hálft ár. Ég
spilaði alla gömlu leikina og ég er alveg
viss um það hefur margborgað sig að
mæta hér í röðina klukkan 7 en ég mætti
hérna með nokkrum félögum mínum.
Sölvi Magnússon
Tilfinningin að vera kominn með leikinn
er örvandi og fullnægjandi, þú getur ekki
ímyndað þér hvernig þessi tilfinning er.
Auðvitað ætla ég að fara heim núna að
spila, ég tek bara all-nighter á þetta. Það
er víst skóli á morgun.
VAR BIÐIN ÞESS VIRÐI?
Hátt í þúsund manns
safnaðist saman í Skeif-
unni á mánudagskvöldið.
Tilefnið var ekki að mót-
mæla háu bensín- eða
bíóverði heldur vildi fólk
næla sér í eintak af tölvu-
leiknum GTA IV.
24 stundir/Frikki
Langa röðin Viðskiptavinum verslunarinnar var hleypt inn í hollum og því beið fólk í
skipulagðri röð fyrir utan búðina. Allir voru sáttir við að bíða því nóg var til handa öllum.
Rappað fyrir GTA Dóri DNA og Bent voru með rímnaflæðið á hreinu fyrir utan Elko.
Tónlist þeirra félaga hljómaði um allt svæðið og skapaði magnaða stemningu.
Allir vilja GTA IV Það er óhætt að segja að verslun BT í Skeifunni hafi verið troðfull
enda segja kunnugir að aldrei hafi sést önnur eins örtröð í verslun BT.
34 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Ég hef aldrei nokkurn
tímann séð svona mikið
af fólki inni í búðinni.
MYNDASÖGUR
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
SEGÐU MÉR, HEFNER...ERT
ÞÚ ÞÁ GAMALL EN ÁTT NÓG AF
PENINGUM?
ALDREI FARA Á STEFNUMÓT MEÐ MANNI SEM
ER AÐ RANNSAKA DULARFULLT HVARF
EIGINMANNS ÞÍNS
ER ÞÉR EKKI SAMA
ÞÓ ÉG KÍKI AÐEINS
INN, ÉG ER MEÐ
LEITARHEIMILD?
Bizzaró
Getum við
ekki keypt
nýjan?
FORELDRAR FRANKENSTEINS
Hann er bara
ungabarn. Hann
sér engan mun.
Gardínustangir
Stærð 71-122 cm
og 112-274 cm
t r c
c
Feim - Lene Bjerre -
Bæjarlind 6 - www.feim.is
opið virka daga 10 - 18, laugardaga 11 -16
"teg. Gabriella - mjúkur en styður vel
í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J skálum
á kr. 6.990,-"
teg. Mariette - mjög fínlegur og
flottur í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J
skálum á kr. 6.990,-"
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
BARA FLOTTIR FYRIR
„BRJÓSTGÓÐAR“