24 stundir - 30.04.2008, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 24stundir
„Hafa allir Íslendingar farið í
magaspeglun? Af hverju var mér
haldið utan við þetta grín fram á
gamals aldur? … var ekkert mál,
ég fékk eitthvert lyf í æð sem
verkar eins og nauðgunarlyf, því
ég man nákvæmlega ekki neitt frá
rannsókninni.“
Elísabet Arnardóttir
betabaun.blogspot.com
„...að Íslendingar hegði sér eins
og þeir séu maníó-depressífir.
Fyrir ári trúðum við því að við
værum að leggja undir okkur
heiminn. Við kynnum eitthvað í
viðskiptum sem aðrir föttuðu
ekki. Nú er þunglyndið tekið við.
Tuð, óánægja og gremja.“
Egill Helgason
eyjan.is/silfuregils
„[…]Ég get ekki hætt að vera fúll-
yndur bloggari! ef ég næ ekki að
blogga á hverjum degi fæ ég frá-
hvörf sem lýsa sér í miklum svita-
köstum og þunglyndi. Ég vil
læknast en það er svo erfitt, það
eru ekki til neinar töflur til þess
að taka við fúllyndablogg-
ararsyndróminu.“
Ómar Örn Ólafsson
omar.eyjan.is
BLOGGARINN
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
„Ég get ekki beðið eftir að gera
nýja plötu með þetta nám í fartesk-
inu,“ segir Ragnhildur Gísladóttir,
söngkona og nú tónsmiður, en hún
hefur undanfarin þrjú ár lært tón-
smíðar í Listaháskóla Íslands.
Ragnhildur hefur áratuga
reynslu af tónlist, bæði sem laga-
höfundur, söngkona og hljóðfæra-
leikari. Hún segir námið hafa opn-
að aðrar og nýjar víddir í
tónlistinni. „Námið opnaði fyrir
mér nýja heima sem áður voru
mér lokaðir. Það er tvímælalaust
kveikja að einhverju nýju og
spennandi auk þess sem það eflir
sjálfstraustið hjá verðandi tón-
smiðum,“ segir Ragnhildur, alsæl
með BA-gráðuna sína.
Líka tónmenntarkennari
Ragnhildur er einnig menntaður
tónmenntarkennari, en hún segir
sér ekki hafa hugnast að starfa sem
slíkur. „Nei, ég entist mjög stutt í
því starfi. Það er mjög strembið og
illa launað og átti ekki við mig,“
segir hún og viðurkennir að hafa
aldrei lært söng, blaðamanni til
mikillar furðu. „Nei, ég hef aldrei
lært söng, nema ég fór í einn og
einn tíma á einhverju tímabili. Það
er nú allt og sumt.“
Þær stöllur Ragnhildur og Lydía
Grétarsdóttir, sem útskrifast í ný-
miðlum, halda sína útskriftartón-
leikana hvor í Iðnó, sunnudaginn
4. maí klukkan 20.00.
Lydía segist hafa verið að mestu í
raftónlist. „...Ég en var áður í klass-
ískri tónlist og lærði á píanó, sem
er undirstaða mín í tónlist. Ég
kynntist Ragnhildi í náminu og
sökum praktískra atriða ákváðum
við að halda tónleika saman, þar
sem við vorum með svipaðar hug-
myndir um húsnæði. Þetta eru þó
tvennir tónleikar, ég er með mitt
efni og Ragnhildur sitt,“ segir
Lydía sem flytur hljóðverk fyrir
átta hátalara. „Ég er að vinna með
venjuleg og hversdagsleg hljóð sem
framkalla má í timburhúsi.“
Ragnhildur Gísladóttir útskrifast úr Listaháskólanum
Getur fyrst nú
kallað sig tónsmið
Eftir margra áratuga
reynslu í tónlistarbrans-
anum getur Ragga Gísla
fyrst nú kallað sig tón-
smið. Hún og Lydía Grét-
arsdóttir halda útskrift-
artónleika í Iðnó.
24stundir/Frikki
Tónsmiðir Lydía og Ragnhildur
geta nú kallað sig tónsmiði.
HEYRST HEFUR …
Fjölmiðlamaðurinn Óli Björn Kárason gagnrýnir á
vefnum t24.is nýlega frétt 24 stunda um barta
Hauks Hólm fréttamanns. Segir hann íslenska fjöl-
miðla á villigötum þar sem skemmtanagildi og
fréttir af hinum frægu séu í fyrirrúmi. Ekki þarf að
taka fram að fréttir í aftasta hluta 24 stunda eiga að
vera skemmtilegar, en slíkar fréttir birtust að sjálf-
sögðu aldrei í DV í ritstjóratíð Óla Björns... afb
… Og talandi um hárprúða fjölmiðlamenn. Egill
Helgason þótti vera kominn með of þykkan lubba
fyrir upptökur Kiljunnar í vikunni. Ragna Foss-
berg, förðunardíva RÚV, tók sig því til og klippti
krullur Egils, en á meðan lokkarnir styttust gekk
Kolbrún Bergþórsdóttir inn og mótmælti klipp-
ingunni harðlega. Sagði hún að lokkar Egils væru
vörumerki sem helst ætti að friða. afb
Hinn tónelski fyrrverandi bæjarstjóri Bolung-
arvíkur, Grímur Atlason, gæti sest í annan bæj-
arstjórastól á næstunni, en kollegi hans í Súðavík,
Ómar Már Jónsson, er að hætta eftir farsælan feril
sem sveitarstjóri. Grímur er ættaður úr Súðavík og
því hæg heimatökin. Grímur verður hinsvegar í
hlutverki bassaleikara í kvöld, er hann spilar með
hljómsveitinni Grjóthrun í Edinborgarhúsinu. tsk
„Við erum að fara í romm-,
nautakjöts-, vindla- og fótbolta-
ferð til Barcelona,“ segir Erpur Ey-
vindarson, rappari og sjónvarps-
maður.
Erpur er meðlimur í klúbbnum
Maradona Social Club, sem heldur
árshátíð í Barcelona um þessar
mundir. 25 trýni eru í klúbbnum
að sögn Erps og fjölmargar íslensk-
ar goðsagnir. „...Alls konar lið,
Matti, sem er kokkur á Vegamót-
um. Steindi jr. af X-inu, Dóri
DNA, Lúlli úr Rottweiler, Eyjó
bróðir og fleiri,“ segir hann.
Næsta árshátíð í Napoli
Hópurinn verður á Spáni í þrjár
vikur og dvelur annars
vegar í Barcelona og
hins vegar í Andalús-
íu. Þá hyggst hóp-
urinn fara til borg-
arinnar Valencia og
horfa á fótboltaleik
með Eið Smára og fé-
lögum í Barcelona.
„Það verður
argentískt
nautakjöt út
í eitt og
romm og
vindlar,“
segir Erpur sem var augljóslega
gríðarlega spenntur fyrir ferðinni,
enda annálaður nautnaseggur.
„Maradona spilaði nátt-
úrulega með Barcelona.
Það var fyrsta Evr-
ópuliðið sem hann
spilaði með. Næsta
árshátíð verður hald-
in í Napoli.“
atli@24stundir.is
Maradona Social Club með árshátíð á Spáni
Romm, nautakjöt,
vindlar og fótbolti
Nautnaseggur Erpur hlakkar til að skola
nautakjöti niður með rommi í Barcelona.
Maradona Goð strákanna
í Maradona Social Club.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
8 6 2 7 4 3 9 1 5
3 4 9 8 5 1 2 6 7
7 5 1 9 2 6 3 4 8
2 7 6 1 3 8 4 5 9
9 1 4 2 6 5 8 7 3
5 8 3 4 7 9 6 2 1
4 9 7 3 1 2 5 8 6
6 2 8 5 9 7 1 3 4
1 3 5 6 8 4 7 9 2
Stendur „lærðu að lesa á sjö dögum“
á þessari bók?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Ekki lengur, þar sem
rotþróin er horfin. Það er
spurning hvernig lyktin verður
þegar dæmt verður í málinu.
Ólafur, er skítalykt af þessu máli?
Ólafur Helgi Kjartansson er sýslumaður á
Selfossi, en rotþró, svartri að lit, var stolið úr
sumarbústaðarlandi í Grímsnesi í vikunni.