24 stundir - 30.04.2008, Page 40
24stundir
Sæktu um besta kortið fyrir þig á www.americanexpress.is eða í síma 575 5900
er útgefandi American Express® á Íslandi
Kortið sem kemur þér út
Þetta er eina kortið sem gefur þér
félagamiða með flugmiðanum
þínum. Það er besta leiðin til að
komast út í góðum félagsskap.
? Það er eitt sem hefur gleymst al-gjörlega að fjalla um í allri neikvæðn-inni síðustu vikur og útskýrir svomargt. Alls staðar leynast vitleysingarsem hafa áhrif á allt og alla sem íkringum þá eru. Ég geng út frá því að flestir séusæmilegasta fólk þangað til annað
kemur í ljós en fram að því leyfi ég
fólki að njóta vafans. En það eru vit-
leysingar í öllum stéttum. Flestir vöru-
bílstjóranna eru eflaust ágætis fólk en
inn á milli eru vitleysingar. Það sama á
við um lögguna og alþingismenn – ef-
laust ágætis fólk að stærstum hluta en
eins og alls staðar annars staðar þá eru
vitleysingar innan um sem skemma
fyrir hinum.
Þetta má líka yfirfæra á útlendingana
sem hingað hafa flust á síðustu árum.
Vafalítið eru flestir þessara einstaklinga
fínasta fólk sem vill engum illt en inn á
milli eru vitleysingar. Þegar útlensku
vitleysingarnir koma svo í fréttum út af
einhverri vitleysu bregðast íslensku vit-
leysingarnir jafn harðan við og alhæfa
af mikilli vitleysu um alla útlendinga
og dæma þá alla sem vitleysinga.
En eins og ég segi þá er flest fólk
sæmilegt inn við beinið og að mestu
laust við að vera vitleysingar – hvort
sem það eru löggur, vörubílstjórar, al-
þingismenn, fólk í greiningardeildum
bankanna, Íslendingar eða útlendingar.
En það eru alltaf vitleysingar inn á
milli – við megum bara ekki dæma
heilu hópana út frá gjörðum þessa fá-
menna minnihluta vitleysinga.
Þetta er nú meiri vitleysan
Ágúst Bogason
lætur vitleysuna
ekki buga sig
YFIR STRIKIÐ
Stjórnast um-
ræðan alls staðar
af vitleysingum?
24 LÍFIÐ
Hundruð manna mættu á forsölu
blóðuga tölvuleiksins Grand Theft
Auto 4, sem er talinn
stærsti leikur allra tíma.
Fjör á forsölu
Grand Theft Auto
»34
Ragga Gísla er að útskrifast úr LHÍ
og getur því loksins kallað sig tón-
smið eftir mörg ár í
bransanum.
Ragga Gísla útskrif-
ast sem tónsmiður
»38
Erpur Eyvindarson og félagar í
Maradona Social Club eru staddir
á Spáni á árshátíð
klúbbsins.
Romm, vindlar og
nautakjöt á árshátíð
»38
● Verðbólgan
„Við biðjum fólk
að fara niður á
Broadway í dag
milli klukkan 13
og 17 og kaupa
miða,“ segir
Kristinn Bjarna-
son, tónleikahald-
ari hjá Flex Music. Plötusnúðurinn
Eric Pryds kemur fram á Broadway
17. maí og forsala miða er hafin.
Vegna óhagstæðs gengis, verðbólgu
og nýs skatts sem leggst á tónleika-
haldara vonast Kristinn til þess að
selja sem flesta miða í apríl. Það er
því 1.000 króna afsláttur á
skemmtunina í dag og kostar mið-
inn 3.000 krónur í stað 4.000.
● Slegið á sátta-
hönd „Þetta eru
mér mikil von-
brigði,“ segir
Anna Stef-
ánsdóttir, annar
starfandi forstjóra
Landspítalans, um
að hjúkr-
unarfræðingar halda við fyrri
ákvörðun um að hætta störfum á
miðnætti, þótt breytingum á vökt-
um hafi verið frestað. Anna telur
yfirstjórn spítalans hafa gefið kost
á samráði. „Við töldum okkur hafa
rétt fram sáttahönd og ætluðum að
hefja viðræður við þær strax í
næstu viku um ýmsar leiðir. Nú
verður ekkert af því. Dagurinn fer í
að ljúka við neyðaráætlun. “
● Þjappar fólki
saman Hið ár-
lega óperuball,
sem undanfarin
ár hefur verið
haldið í Íslensku
óperunni, verður
að þessu sinni
haldið í Iðnó.
„Þar er vissulega aðeins minna
pláss en það þjappar fólki bara
saman,“ segir Davíð Ólafsson,
söngvari og einn aðstandenda
kvöldsins. „Þetta verður gala-
kvöld með óperusöngvum, sam-
kvæmisdönsum og fleiru í anda
óperuballa Vínarborgar.“ Ballið
hefst klukkan 20.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við