24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 1
24stundirföstudagur9. maí 200887. tölublað 4. árgangur
Kastar flugu vel
VEIÐI»50
Arnar Tómas Birgisson, þrettán
ára, kastar flugunni listilega vel
enda hefur hann kastað flugu
síðan hann var sex ára.
Þessa dagana veiðir hann
daglega við Elliðavatn.
Guðbjörg Sigurðardóttir segir
nýja stefnu um upplýsinga-
samfélagið byggjast á þjónustu,
skilvirkni og framþróun en ráðist
verður í 65 aðgerðir á fram-
kvæmdatíma stefnunnar.
Þjónusta og aðgerðir
UPPLÝSINGATÆKNI»32
38% verðmunur á
hreinsun sængur
NEYTENDAVAKTIN »4
Svíinn Olivia Haglund fékk
lítinn frið til að gera jógaæf-
ingarnar sínar í Malmö. Hún
kom sér vel fyrir á húsþaki, en
heilmikil læti trufluðu æfing-
arnar. Þar var kominn lög-
reglumaður í kranabíl, sem
ætlaði að fá Haglund ofan af
því að fremja sjálfsvíg.
„Það eina sem ég vildi var að
finna rólegan stað í borg-
arumhverfinu,“ segir Hag-
lund. „Þetta var í fyrsta skipti
sem ég notaði þakið – og
væntanlega það síðasta.“ aij
Jóga, ekki
sjálfsvíg
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 78,47 1,91
GBP 153,35 1,96
DKK 16,21 1,99
JPY 0,75 3,33
EUR 120,97 1,99
GENGISVÍSITALA 156,36 2,00
ÚRVALSVÍSITALA 4.923,03 -0,36
»14
5
8
0
1
0
VEÐRIÐ Í DAG »2
Meint kynferðisbrot sóknarprests á
Selfossi gagnvart þremur unglings-
stúlkum er fyrsta málið sem fer alla
leið til yfirvalda úr fagráði kirkj-
unnar um meðferð kynferðismála,
en málið er jafnframt það fyrsta
þar sem meintir þolendur eru
börn. Sálfræðingur gagnrýnir
íhlutun kirkjunnar í
málinu.
Fyrsta málið sem
fer alla leið
»2
Soffía Vagnsdóttir, fyrrverandi
formaður bæjarráðs Bolung-
arvíkur, undirritar í dag ásamt
systkinum sínum 400 milljóna
króna samning við þýska ferða-
skrifstofu. Smíða á 25 hús og 25
báta fyrir ferðamenn sem koma í
stangveiði til Bol-
ungarvíkur.
Samningur upp
á 400 milljónir
»12
Nýr framkvæmdastjóri miðborg-
armála segir ungfrú Reykjavík með
brenndar tennur. Hann ætlar að
taka á með borgarstjóra sem hafi
hreinni og tærari sýn á íslenska
náttúru en aðrir stjórnmálamenn.
Launin segir hann ekki jafnast á
við launakjör sín síðustu
ár.
Jakob Frímann
í þegnskyldu
»4
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Ég get ekki ímyndað mér að við
verðum rekin út en það er mjög
óþægilegt að vita ekkert,“ segir
Ólafía Jónasdóttir, sem býr í einni
af fimm þjónustuíbúðum sem Ísa-
fjarðarbær rekur á Tjörn á Þingeyri.
Eins og 24 stundir sögðu frá á
miðvikudag hefur Heilbrigðis-
stofnun Ísafjarðarbæjar ákveðið að
loka öldrunardeildinni á Tjörn og
flytja íbúana á Ísafjörð á meðan
starfsfólkið fer í sumarfrí, af sparn-
aðarástæðum. Er þetta í fyrsta
skipti sem þetta er gert, en áður
hefur sama þjónustustigi verið
haldið með því að ráða afleysinga-
fólk.
Þó að Tjörn skiptist með form-
legum hætti í öldrunardeild, sem
heyrir undir HÍ, og þjónustuíbúðir
sem reknar eru af bænum, er heim-
ilið rekið sem ein eining og sinnir
sama starfsfólkið matseld, þrifum
og þvottum fyrir íbúa á báðum
stöðum. Var í gildi um það þjón-
ustusamningur á milli HÍ og Ísa-
fjarðarbæjar en hann rann út um
seinustu áramót.
Margrét Geirsdóttir, forstöðu-
maður skóla- og fjölskylduskrif-
stofu hjá Ísafjarðarbæ, segir að
munnlegt samkomulag hafi náðst
um að HÍ veitti áfram þá þjónustu
sem hún hefur veitt þó að samn-
ingurinn hafi runnið út. Að sögn
Þrastar Óskarssonar, fram-
kvæmdastjóra HÍ, snerist samning-
urinn þó aðeins um að stofnunin
myndi láta vita með fyrirvara ef
hún hætti þjónustunni.
Í byrjun apríl bárust bænum svo
upplýsingar um að nú kæmi að
honum að veita íbúum þjónustu-
íbúðanna tilheyrandi þjónustu
meðan á sumarfríum Tjarnarfólks
stæði, að sögn Margrétar. Hefur
enn ekki verið ákveðið hvernig það
verður leyst en ljóst er að kostn-
aður verður umtalsverður.
Íbúar uggandi
Íbúar þjónustuíbúða á Tjörn á Þingeyri eru uggandi hvað um þá
verður meðan á sumarlokun öldrunardeildar stendur
AFLEYSINGAFÓLK»6
➤ Í þjónustuíbúðunum fimm áTjörn búa nú þrír ein-
staklingar. Von er á tveimur í
viðbót í sumar.
➤ Á öldrunardeildinni búa tveireinstaklingar.
TJÖRN Á ÞINGEYRI
„Það sást víða tár á hvarmi þegar við slepptum blöðrunum og það var gert í þögn,“ segir Soffía Eiríksdóttir
hjúkrunarfræðingur, en milli þrjú og fjögur þúsund manns komu saman til að ganga gegn slysum í blíðskap-
arveðri í Reykjavík í gær. „Ég held og vona að við komum þeim skilaboðum áleiðis út í samfélagið að okkur er
ekki sama. Það skiptir okkur miklu máli að fólk komi öruggt og heilt heim frekar en til okkar.“
Saman gegn slysum
24 stundir/Kristinn Ingvarsson
„Skiptir okkur miklu máli að fólk komi öruggt og heilt heim“
NETRÍKIÐ ÍSLAND
Sérblað um rafræna stjórnsýslu fylgir
24 stundum í dag
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500, opið: 10-18 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504, opið virka daga: 10-18 og laugard. 11-16
Enginn er betri
Violino
hágæða
leðursófar