24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 26

24 stundir - 09.05.2008, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Biðraðir í þjónustustofnunum munu heyra sögunni til,“ segir Re- bekka Rán um markmiðin með þjónustuveitunni Ísland.is. „Þarna verður á einum stað að- gengi að upplýsingum og þjónustu allra opinberra stofnana ríkisins,“ bætir hún við. „Verkefnið er ef til vill viða- meira en margir gera sér grein fyr- ir því að á Ísland.is verður aðgengi að nánast öllum eyðublöðum rík- isins á einum stað. Þá verður þar að finna grunnupplýsingar um öll sveitarfélög og stofnanir og hag- nýtar upplýsingar um þá mála- flokka sem vefurinn nær til sem og fjöldi tilvísana í ítarefni og þjón- ustu sem finna má á vefjum ráðu- neyta, stofnana og sveitarfélaga.“ Rebekka Rán Samper segir að leiðarvísirinn og þjónustuveitan Ísland.is munu marka tímamót í sögu þjónustu hins opinbera því þar verði lögð mikil áhersla á það að sníða vefinn að þörfum not- andans. „Á Ísland.is verður hægt að af- greiða sig sjálfur hvenær sem er, hvar sem er og án tafar. Ísland.is verður sjálfsafgreiðslumiðstöð hins opinbera. Átt er við hvers kyns þjónustu, umsóknir, vottorð, tilkynningar, tímapantanir, gagna- skil og fleira sem snýr að sam- skiptum við opinbera aðila. Þá verður líka hægt að nálgast upplýsingar sem snúa að hverjum og einum, þar má til dæmis nefna upplýsingar um einkunnir og gát- lista hvað varðar ýmsa viðburði er henda okkur í lífinu.“ Þjónusta fyrir fólk Rebekka nefnir dæmi um einn slíkan gátlista af mörgum. Gátlista vegna andláts í fjölskyldunni. „Á Ísland.is verður til dæmis gátlisti sem tekur til alls þess er þarf að gera þegar andlát verður í fjölskyldunni. Þetta er einn af mörgum þjónustuliðum sem verður bætt við á Ísland.is.“ Samstarf mikilvægt Ísland.is er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga og hefur for- sætisráðuneyti umsjón með verk- inu. Rebekka Rán segir gríðarlega mikilvægt að samstarf um að koma þjónustunni á verði lipurt og gott. Það verða allir að vera af vilja gerðir til að koma að þessu verkefni með opnum huga og metnaði til að gera betur. „Mark- miðið á að verða stórbætt þjón- usta og hagræði fyrir alla.“ 24stundir/G.Rúnar Ísland.is er fyrir alla Íslendinga Rebekka Rán Samper segir að í framtíðinni verði vefsvæðið öflugt og marki tímamót í þjónustu hins opinbera. Ísland.is er miðlæg þjónustuveita Afgreiðsla á einum stað og engar biðraðir ➤ Á Ísland.is eru upplýsingarfyrir innflytjendur á nokkrum tungumálum. ➤ Orðskýringar á Ísland.isgagnast öllum notendum þjónustuveitunnar, ekki síst innflytjendum. ➤ Einnig er lögð áhersla á að Ís-land.is nýtist öllum, þar á meðal blindum, sjónskertum og lesblindum. ÍSLAND.IS FYRIR ALLA Ísland.is verður netmið- stöð sem gefur yfirlit um þjónustu opinberra aðila. Þar verður einnig að- gengi að upplýsingum og þjónustu allra opinberra stofnana á einum stað. Verkefnisstjóri Ísland.is er Rebekka Rán Samper sem segir að Ísland.is muni marka tímamót í sögu þjónustu hins op- inbera. Þrátt fyrir mikla jafnréttisbar- áttu undanfarin ár er íslenskt menntakerfi og vinnumarkaðurinn mjög kynjaskiptur sem á móti get- ur haft gríðarleg áhrif á samfélagið. Flestir foreldrar vilja að börn sín leiti sér að vinnu eða sæki nám eft- ir áhuga en ekki eftir því hvað tíðk- ast fyrir viðkomandi kyn. Á síð- unni Jafnretti.felagsmalaraduneyti.is má finna upplýsingar og góðar hug- myndir fyrir kynjameðvitaðar leið- beiningar varðandi menntun og störf fyrir stráka og stúlkur. Til- gangurinn er að foreldrar, kenn- arar og ráðgjafar, sem eiga að ráð- leggja ungmennum varðandi menntun og störf, geti hér fundið efni til umhugsunar og innblást- urs. Það er nauðsynlegt að þeir sem umgangast ungt fólki hafi þetta í huga þar sem þessi kynjaskipting getur haft margvísleg áhrif, þar á meðal að kynið verði afgerandi þáttur í vali á menntun og störfum frekar en hæfileikar og langanir, að margir karlar og margar konur vinni eingöngu með fólki af sama kyni, að reynsla, þekking og hæfi- leikar beggja kynja nýtist ekki til fulls á öllum sviðum, að kynja- skipting vinnumarkaðarins sé meginástæða mismunandi at- vinnutekna karla og kvenna og að það sé flöskuháls á einu sviði á sama tíma og atvinnuleysi ríkir á öðru sviði. svanhvit@24stundir.is Kynjaskiptur vinnumarkaður Kynið hefur áhrif á menntun og störf Framtíðin Hætta er á að kyn verði afgerandi þáttur í vali á menntun og störfum. „Með nýrri stefnu ríkistjórn- arinnar um upplýsingasamfélagið renna upp nýir tímar,“ segir Halla Björg Baldursdóttir, tölvunarfræð- ingur og verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu á skrifstofu upplýsinga- samfélagsins í forsætisráðuneyti. „Nú eiga gögn að ferðast á milli stofnana en ekki fólk. Eitt af mark- miðum stefnunnar er að innan stjórnsýslunnar verði til samhæft heildarskipulag og þarfir við- skiptavina ráði því hvernig gögn ferðist á milli.“ Halla Björg segir frá því að í dag sé þjónustustig opinberra aðila með öllu óásættanlegt. „Upplýs- ingar eru iðulega margskráðar á mismunandi stofnunum og fólk er orðið langþreytt á því að ferðast á milli stofnana og eyða miklum tíma í að ganga frá tiltölulega ein- földum málum. Nýja stefnan snýst um að laga þetta ástand,“ bætir Halla við. Minni skriffinnskubyrði „Stöðlun, samræming, sam- vinna milli stofnana og öryggi er lykilatriði til að markmiðin verði sem fyrst að veruleika,“ að sögn Höllu Bjargar. „Mikilvægt er að nýta upplýsingatæknina til hins ýtrasta til að einfalda alla ferla eins og hægt er til að minnka skrif- finnskubyrði. Þegar hefur farið fram talsverð undirbúningsvinna í því skyni að ryðja úr vegi hindr- unum fyrir því að hægt sé að veita þjónustu á netinu og þeirri vinnu þarf að halda áfram. Sem dæmi um hindrun má nefna að til eru lög og reglugerðir þar sem tekið er sérstaklega fram að umsókn eða upplýsingar skuli vera skráðar í tvíriti. Slík lög þarf að endurskoða samhliða því að stuðlað sé að frið- helgi einkalífsins og persónuvernd eins og áður.“ Allir saman í liði „Við þurfum að fá alla saman í lið,“ leggur Halla mikla áherslu á. „Markmið okkar er bæði að bæta þjónustu og einnig að auka gæði hennar. Það verður ekki gert nema stofnanir taki höndum saman og vinni sem einn maður að mark- miðinu.“ Aðspurð að því hvort aukin sjálfvirkni muni verða til þess að störfum fækki hjá hinu opinbera svarar Halla Björg því til að þannig hafi þróunin ekki verið hingað til, heldur hafi störfin breyst og þá oft- ast til hins betra. Nefna má sem dæmi að ef fólk skráir sjálft inn upplýsingar eða ef upplýsingar eru forskráðar á umsóknir þá minnka líkur á villum við endurskráningu. Starfsfólk þarf þá ekki lengur að eyða tíma sínum í leiðréttingar, heldur getur einbeitt sér að fljót- virkari og betri afgreiðslu erind- isins.“ Halla Björg segir að unnið verði að því að staðla og samræma að- ferðir og verklag í rafrænni stjórn- sýslu og baklandið verði með því styrkt til muna til að auðvelda stofnunum að innleiða komandi breytingar.“ dista@24stundir.is Gögn ferðist á milli stofnana, ekki fólk Nýir tímar Enga skriffinnsku meir! Halla Björg segir rafræna stjórnsýslu og bætt þjón- ustustig koma öllum til góða. „Við ætlum okkur að gera tilboð í tollkvóta rafrænt. Tilboðsaðilar geta boðið í tollkvótana á netinu og þannig fylgst með allri fram- vindu mála, séð hvað aðrir eru að bjóða hverju sinni. Þannig verður gagnsæi betra og allt tilboðsferlið sanngjarnara,“ segir Guðný Steina Pétursdóttir hjá sjávarútvegs -og landbúnaðarráðuneyti. Guðný Steina segir að mörgu að huga þegar kemur að því að setja uppboðin á netið. „Við munum leggja í þá vinnu og þurfum að finna gott kerfi til að nota. Norð- menn hafa sín uppboð á netinu og þaðan höfum við því ákveðna fyr- irmynd og getum ef til vill sótt í þeirra reynslu og þekkingu.“ Að sögn Guðnýjar fylgir ferlinu nú töluverð pappírsvinna og því verði mikið hagræði að breyting- unni. „Þetta eru nauðsynlegar breytingar sem verða öllum til góðs,“ bætir hún við að lokum. dista@24stundir.is Sanngirni og gagnsæi Tollkvótar á netinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.